Aukinn byr í segl bílaleiga og flotinn stækkar

Bíla­leigu­bílum í umferð hefur fjölgað um fimm þús­und á síð­ustu tveimur mán­uðum sem er 30 pró­sent fjölgun. Samt sem áður ná bíla­leigur vart að anna eft­ir­spurn og dæmi eru um að verð hafi marg­fald­ast.

Bílaleigubílum í umferð hefur fjölgað samhliða auknum fjölda ferðamanna.
Bíla­leigu­bílum í umferð hefur fjölgað sam­hliða auknum fjölda ferða­manna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjöldi bíla­leigu­bíla í umferð hefur auk­ist um rúm­lega 30 pró­sent á síð­ustu tveimur mán­uðum. Alls voru rúm­lega 17 þús­und bíla­leigu­bílar í umferð í upp­hafi mán­aðar en þeim hefur fjölgað jafnt og þétt síðan í mars þegar fjöldi þeirra var rúm­lega 12 þús­und. Í maí skreið fjöldi bíla í umferð yfir 13 þús­und og í upp­hafi júní voru þeir orðnir tæp­lega 15 þús­und. Sam­göngu­stofa heldur utan um fjölda bíla­leigu­bíla og eru töl­urnar fengnar úr skamm­tíma­hag­vísum ferða­þjón­ustu sem Hagstofa Íslands tekur saman.

Með auknum fjölda ferða­manna sem hingað koma til lands hafa bíla­leig­urnar fengið byr í seglin. Enn er þó langt í land með að fjöldi bíla­leigu­bíla, bæði í umferð og alls, jafn­ist á við það sem var fyrir far­aldur. Til sam­an­burðar voru um 25 þús­und bíla­leigu­bílar í umferð í júlí fyrir tveimur árum.

Eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á tóku bíla­leig­urnar mik­inn fjölda bíla sinna úr umferð og var tölu­verður fjöldi þeirra seldur í kjöl­farið. Frá upp­hafi far­ald­urs hafa bíla­leigu­bílar sem ekki eru í umferð aldrei verið jafn fáir og nú en þeir eru um eitt þús­und og heild­ar­stærð bíla­leigu­flot­ans því um 18 þús­und. Í upp­hafi árs var fjöldi bíla­leigu­bíla sem ekki voru í umferð rúm­lega fimm þús­und. Þegar mest lét var fjöldi þeirra vel á átt­unda þús­und, í maí í fyrra.

Verð á bílaleigubílum margfaldast

Þrátt fyrir að bíla­leig­urnar hafi stækkað flota sína og fækkað bílum sem eru ekki í umferð er staðan sú að þær anna vart eft­ir­spurn eftir bílum. Líkt og fjallað var um í frétt RÚV, þá er tvennt sem veldur. Annars vegar hefur aukn­ing í komum erlendra ferða­manna verið meiri en gert hafði verið ráð fyrir og hins vegar hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn frestað afhend­ingu á nýjum bílum.

Eft­ir­spurnin eftir bíla­leigu­bílum er slík að leigu­verðið hefur marg­fald­ast á nokkrum mán­uðum. Verð­könnun Túrista leiddi það í ljós að leiga á smá­bíl hjá Hertz á tíma­bil­inu 1. til 8. ágúst hafi hækkað um 324 pró­sent frá því í des­em­ber. Í des­em­ber var leigu­verðið tæp­lega 94 þús­und en þegar verðið var kannað þann 11. júlí var það komið upp í tæp­lega 304 þús­und.

Í frétt Vísis um málið er haft eftir Sigfúsi Bjarna Sig­fús­syni, for­stjóra Hertz, að fólk sé farið að bóka bíla­leigu­bíla seinna en áður og jafnan oft ekki fyrr en eftir að búið er að bóka flug og gist­ingu. „Síðustu sætin í flug­vél­inni selj­ast hugs­an­lega á tölu­vert hærra verði og eins með síð­asta hót­el­her­bergið og bíla­leigu­bíl­inn,“ sagði Sigfús í sam­tali við Vísi.

Líf færist yfir Keflavíkurflugvöll

[links] Í byrjun sum­ars fór fjöldi erlendra ferða­manna ört vax­andi. Í maí fóru rúm­lega 14 þús­und erlendir ferða­menn um Flugstöð Leifs Eiríks­sonar en í júní voru þeir orðnir um þrefalt fleiri, tæp­lega 43 þús­und. Þrátt fyrir þessa miklu aukn­ingu er fjöld­inn enn langt undir eðli­legum fjölda ferða­manna sem fer um flug­vell­inn að sumri til, tæp­lega 195 þús­und ferða­menn komu til lands­ins í júní fyrir tveimur árum.

Snemma í þessum mán­uði til­kynnti ISAVIA svo að fjöldi far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl hefði verið 10.580 laug­ar­dag­inn 3. júlí. Það var í fyrsta sinn í rúma 15 mán­uði sem fjöldi far­þega fór yfir 10 þús­und á einum og sama deg­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bílaleigur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár