Bílaleigubílum í umferð hefur fækkað um hátt í helming á milli ára

Stjórn­endur tveggja af stærstu bíla­leigum lands­ins gera ráð fyrir um 70 til 80 pró­sent sam­drætti í útleigu í ár. Fjöldi bíla­leigu­bíla sem ekki eru í umferð hefur rúm­lega sjö­fald­ast á milli ára.

Ljóst er að færri ferðamenn munu aka um þjóðvegi landsins á bílaleigubílum í sumar.
Ljóst er að færri ferða­menn munu aka um þjóð­vegi lands­ins á bíla­leigu­bílum í sumar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bíla­leigu­bílum í umferð hefur fækkað um 46 pró­sent á milli ára, í upp­hafi júní voru þeir alls 13.143 tals­ins en í upp­hafi júní í fyrra voru þeir 24.374 tals­ins. Þetta kemur fram í svari Sam­göngu­stofu við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hafa bíla­leigur lands­ins þurft að grípa til ýmissa hag­ræð­ing­ar­að­gerða. Það liggur beint við að leig­urnar bregð­ist við minnk­andi eft­ir­spurn með því að losa sig við bíla sem ann­ars myndu standa óhreyfðir. Leig­urnar hafa því selt bíla í stórum stíl á síð­ustu mán­uðum.

Fimm þúsund færri bílar í flotanum í ár

Á síð­ustu tólf mán­uðum hafa bíla­leig­urnar selt tæp­lega fimm þús­und fleiri bíla heldur en þær hafa keypt. Þetta sést í tölum yfir bíla­leigu­bíla á skrá frá Sam­göngu­stofu. Í upp­hafi júní í fyrra voru alls 25.437 bíla­leigu­bílar á skrá en nú eru þeir 20.776. Floti bíla­leigu­bíla hefur því skroppið saman um tæp 20 pró­sent.

En minnk­andi umsvif bíla­leiga sjást kannski best í fjölda bíla sem ekki eru í umferð en fjöldi þeirra hefur rúm­lega sjö­fald­ast á milli ára. Í júní í fyrra voru 1.063 bílar úr umferð en í ár er fjöldi þeirra alls 7.633. Þegar bílar eru teknir úr umferð er núm­era­plötum þeirra skilað inn og leig­urnar spara sér því kostnað í formi bif­reiða­gjalda og greiðslna til trygg­inga­fé­laga. Þannig minnka leig­urnar kostnað sem hlýst af óhreyfðum bílum.

Gerir ráð fyrir 75 prósenta samdrætti

Bíla­leig­urnar hafa þurft að grípa til fleiri aðgerða til þess að halda sjó. „Við nátt­úr­lega nýttum okkur úrræði stjórn­valda, fyrst hluta­bóta­leið­ina og svo sögðum við upp fólki. Það er kannski það helsta,“ segir Hjálmar Pét­urs­son, for­stjóri ALP, um það hvernig fyr­ir­tækið tók á þeim skakka­föllum í rekstri sem fylgdu kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, en ALP á og rekur Avis og Budget bíla­leig­urnar.

„Við erum nátt­úr­lega búin að skera niður í starfs­mönnum og fækka bílum eins og við getum. Höfum skorið niður þann kostnað sem hægt er og þetta verður alveg hræði­legt ár sama hvernig sum­arið fer úr þessu. Það eru komnir þrír tekju­lausir mán­uðir með engum túristum,“ segir Hjálmar um horf­urnar en hann gerir ráð fyrir um 75 pró­senta sam­drætti í útleigu í ár.

Töluverð fjölgun í langtímaleigu Íslendinga

Að hans sögn hafa Íslend­ingar ekki getað stoppað í gatið sem erlendu ferða­menn­irnir skildu eftir. „Við fórum strax í það að bjóða bíla á inn­an­lands­markað í lang­tíma­leigu og skemmri leigu og við höfum náð fínum árangri þar, Íslend­ingar tóku vel við því. En það er ekk­ert fyrir ferða­lög, heldur bara í sölu og lang­tíma­leigu,“ segir Hjálmar sem telur að aukn­ingin í lang­tíma­leigu til Íslend­inga nemi um 50 pró­sentum á milli ára.

Staðan er svipuð hjá Höldur sem rekur Bíla­leigu Akur­eyrar og Europcar. „Við höfum bæði verið að reyna að draga úr bíla­kaupum fyrir það fyrsta og auka bíla­sölu. Það er verk­efni númer eitt, tvö, og þrjú að minnka flot­ann og fækka bílum. Og svo eru alls konar önnur mál eins hjá öllum öðrum fyr­ir­tækjum. Frysting á afborg­unum og leng­ing lána og eitt­hvað slíkt, þetta hefð­bundna bara. Og við nýttum okkur hluta­bóta­leið­ina í apríl og maí en gerum það reyndar ekki lengur. Fækkað fólki og lækkað laun og allar þær aðgerðir sem ég held að flest ef ekki öll ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa verið nauð­beygð í,“ segir Stein­grímur Birg­is­son, for­stjóri Höldurs, um aðgerðir fyr­ir­tæk­is­ins.

Fagnar hverri bókun

Stein­grímur gerir ráð fyrir svip­uðum sam­drætti og Hjálmar. „Í okkar áætl­unum erum við að gera ráð fyrir 70 til 80 pró­sent. Þannig að ég held að það breyt­ist ekk­ert þó að það sé búið að opna landið og það séu ein­hverjar bók­anir að koma og allt það,“ segir Stein­grímur sem fagnar hverri bókun.

„Síðan er maður bara far­inn að horfa á 2021. Ég held að 2020 verði mjög slæmt ár fyrir alla sem eru í ferða­þjón­ustu. Það er jákvætt að fá ein­hverjar bók­anir inn núna og von­andi fer þetta hægt og rólega að tikka inn. Maður vonar bara að Íslend­ingar og þeir sem sækja okkur heim passi enn þá upp á sótt­varn­ar­mál. Maður er nátt­úr­lega skít­hræddur um að þetta blossi upp aftur,“ segir Stein­grímur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bílaleigur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár