Bílaleigubílum í umferð fjölgar milli mánaða

Bíla­leigur hafa fjölgað bílum í umferð um tæp­lega 2.500 á milli mán­aða. Flotinn heldur samt sem áður áfram að minnka og hann er núna fimmt­ungi minni en á sama tíma í fyrra.

Bíla­leigu­bílum í umferð fjölg­aði um tæp­lega 2.500 á milli júní og júlí sam­kvæmt tölum frá Sam­göngu­stofu sem finna má í skamm­tíma­hag­vísum ferða­þjón­ust­unnar sem Hag­stofan birtir mán­að­ar­lega. Í upp­hafi júlí voru bíla­leigu­bílar í umferð alls 15.628 sam­an­borið við 13.143 bíla í upp­hafi júní. Í júlí í fyrra voru bíla­leigu­bílar í umferð rétt tæp­lega 25 þús­und.

Með því að skoða tölur á vef Hag­stof­unnar um bíla­leigu­bíla eftir skrán­ingu og mán­uðum sést að fjölg­unin er aðal­lega drifin áfram af bíla­leigu­bílum sem snúa aftur á göt­urnar eftir að hafa verið teknir úr umferð.

Í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins brugðu bíla­leigur á það ráð að taka stóran hluta af flota sínum úr umferð. Þá eru bíl­arnir teknir af núm­erum og við það spar­ast ýmis gjöld sem þarf að greiða af bíl­unum. Fjöldi bíla­leigu­bíla sem voru úr umferð náði hámarki í maí en í upp­hafi þess mán­aðar voru þeir 7.869. Í upp­hafi júlí voru alls 4.455 bíla­leigu­bílar úr umferð.

Flotinn heldur líka áfram að minnka, heild­ar­fjöldi bíla í eigu bíla­leiga er nú rúm­lega 20 þús­und og nemur fækk­unin tæpum 700 bílum milli mán­aða. Í júlí í fyrra voru alls 25.640 bíla­leigu­bílar í flot­anum svo hann hefur skroppið saman um fimmt­ung á síð­ast­liðnu ári. Ekki hafa verið færri bílar í flot­anum síðan í maí árið 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bílaleigur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár