Annar hver farþegi frá Bandaríkjunum

Alls fóru tæp­lega 43 þús­und erlendir far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl í síð­asta mán­uði. Helm­ingur þeirra var frá Banda­ríkj­unum og einn tíundi þeirra var frá Póllandi.

Fjöldi ferðamanna er að aukast hratt aftur, samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu.
Fjöldi ferða­manna er að aukast hratt aftur, sam­kvæmt tölum frá Ferða­mála­stofu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Heild­ar­fjöldi erlendra ferða­manna jókst tölu­vert milli mán­aða í byrjun sum­ars, úr rúm­lega 14 þús­und í maí í tæp 43 þús­und í júní. Helm­ingur allra far­þeg­anna var frá Banda­ríkj­unum. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Ferða­mála­stofu um fjölda far­þega á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Samkvæmt töl­unum fóru rúm­lega 13 þús­und íslenskir far­þegar um flug­stöð­ina í mán­uð­inum, sem er þre­faldur fjöldi þeirra í maí. Hins vegar er fjöld­inn enn langt frá því að vera nálægt því sem hann var áður en far­ald­ur­inn skall á, en í júní 2019 fóru um 65 þús­und Íslend­ingar um Kefla­vík­ur­flug­völl.

Sömu sögu má segja um erlenda ferða­menn, þar sem fjöldi þeirra hefur um það bil þre­fald­ast á milli mán­aða, þrátt fyrir að vera enn langt undir venju­legum fjölda ferða­manna um flug­völl­inn að sumri til. Árið 2019 komu tæp­lega 195 þús­und ferða­menn til lands­ins í júní, en heild­ar­fjöldi þeirra í ár nam tæpum 43 þús­undum.

Langstærstur hluti ferða­mann­anna, eða um helm­ingur þeirra, kom frá Banda­ríkj­unum. Til við­mið­unar var hlut­fall banda­rískra ferða­manna í júní 2019 um 31 pró­sent. Næst stærsti hóp­ur­inn kom frá Póllandi, en sá hópur náði um níu pró­sentum af heild­ar­fjöld­anum. Þjóð­verjar, Bretar og Frakkar koma þar á eftir, en þeir voru sam­tals um 12 pró­sent af heild­ar­fjölda ferða­manna.

Ef miðað er við sama mánuð á árinu 2019 mælist enn 78 pró­senta sam­dráttur á fjölda erlendra ferða­manna, líkt og sést á mynd­inni hér að ofan. Hins vegar hefur dregið hratt og örugg­lega úr sam­drætt­inum á síð­ustu mán­uðum, en hann mæld­ist 95 pró­sent í apríl síð­ast­liðnum.

Eftir að far­ald­ur­inn skall á í mars í fyrra hefur fjöldi erlendra ferða­manna að minnsta kosti verið þremur fjórð­ungum minni en sam­sa­var­andi fjöldi á sama tíma árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár