Stefna að opnun Sundabrautar árið 2031

Borg­ar­stjóri og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra und­ir­rit­uðu í dag yfir­lýs­ingu um lagn­ingu Sunda­brautar. Ekki er enn ljóst hvort brú eða göng verða fyrir val­inu en fram­kvæmdin verður fjár­mögnuð með gjald­töku.

Ríki og borg sammælast um að Sundabraut verði lögð alla leið á Kjalarnes, í einni samfelldri framkvæmd, en ekki aðeins í Gufunes.
Ríki og borg sam­mæl­ast um að Sunda­braut verði lögð alla leið á Kjal­ar­nes, í einni sam­felldri fram­kvæmd, en ekki aðeins í Gufunes. Mynd: Stjórnarráðið

Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í Reykja­vík und­ir­rit­uðu í dag yfir­lýs­ingu um lagn­ingu Sunda­brautar. Í yfir­lýs­ing­unni sam­mæl­ast ríki og borg um það að Sunda­braut verði lögð til Kjal­ar­ness í einni sam­felldri fram­kvæmd. Stefnt er að því að fram­kvæmdir hefj­ist árið 2026 og að Sunda­braut verði tekin í notkun árið 2031. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins. [links]

Ekki er gert ráð fyrir því að rík­is­sjóður muni koma til með að fjár­magna vega­fram­kvæmd­ina, heldur verði Sunda­braut fjár­mögnuð með veggjöldum. Gjald­taka á Sunda­braut muni þó ekki standa lengur en í 30 ár. „Sunda­braut er meðal sex sam­göngu­mann­virkja sem falla undir lög um sam­vinnu­verk­efni um vega­fram­kvæmdir sem heim­ila að eiga sam­vinnu við einka­að­ila um fjár­mögnun, hönnun, und­ir­bún­ing og fram­kvæmdir ásamt við­haldi og rekstri í til­tek­inn tíma,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Brú eða göng?

Fyrr á þessu ári greindi Sigurður Ingi frá því að nið­ur­staða starfs­hóps um legu Sunda­brautar hefði verið sú að brú væri talin afger­andi betri kostur en jarð­göng til þess að tengja Sæbraut við Gufunes. Brú væri mun ódýr­ari kostur og hefði auk þess jákvæð áhrif umfram göng, svo sem á heild­arakstur og tíma­sparnað umferðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, almenn­ings­sam­göngur, hjóla- og göngu­leiðir.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni er hins vegar ekk­ert ákveðið í þeim efnum hvort brú eða göng verða fyrir val­inu, enda sá mögu­leiki enn fyrir hendi að Sunda­göng verði ofan á. „Þessi yfir­lýs­ing tryggir það og und­ir­strikar mik­il­vægi sam­ráðs við íbúa og hags­muna­að­ila í næstu skrefum. Sunda­göng og Sundabrú eru áfram megin val­kost­irnir. Í kjöl­far félags­hag­fræði­legrar grein­ingar tekur við frek­ari sam­an­burður og rýni á öllum umhverf­is­þáttum og mót­væg­is­að­gerðum vegna hugs­an­legra nei­kvæðra áhrifa af umferð fyrir nær­liggj­andi hverfi,“ er haft eftir Degi B. Egg­erts­syni í til­kynn­ingu stjórn­ar­ráðs­ins.

Samkvæmt nið­ur­stöðum áður­nefnds starfs­hóps eru minni sjón­ræn áhrif meðal þeirra kosta sem fylgja jarð­göngum. Þá myndu brú­ar­fram­kvæmdir hafa meiri áhrif á hafn­ar­starf­semi á fram­kvæmda­tíma. Sama hvort verður fyrir val­inu, göng eða brú, er ein af for­sendum beggja leiða sú að Sæbraut verði lögð í stokk.

Alþjóðleg hönnunarsamkeppni verði brú fyrir valinu

Líkt og áður segir er næsta skref í verk­efn­inu að ljúka félags­hag­fræði­legri grein­ingu á þessum tveimur kostum við þverun Klepps­víkur. Þar verður greindur og met­inn afleiddur kostn­aður og áhrif á starf­semi í Sunda­höfn og nær­liggj­andi íbúð­ar­hverfi.

Eftir að þeirri vinnu lýkur verður haf­ist handa við að und­ir­búa breyt­ingar á aðal­skipu­lagi borg­ar­innar sem feli í sér end­an­legt leið­ar­val Sunda­brautar. „Stuðst verður við umhverf­is­mat fram­kvæmd­ar­innar og rík áhersla lögð á sam­ráð við íbúa og aðra hags­muna­að­ila í öllum þáttum skipu­lags og umhverf­is­mats,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Ríki og borg sam­mæl­ast um að Sunda­braut verði lögð alla leið á Kjal­ar­nes, í einni sam­felldri fram­kvæmd, en ekki aðeins í Gufunes, til þess að hægt sé að ná mark­miðum verk­efn­is­ins sem snúa að því að beina umferð ekki óhóf­lega um íbúa­hverfi Graf­ar­vogs. Þá er kveðið á um það í yfir­lýs­ing­unni að fram­kvæmdin taki mið af umferð fyrir gang­andi og hjólandi og tryggi góðar sam­göngur hjól­reiða­fólks til og frá Kjal­ar­nesi.

Ríki og borg eru sam­mála um það að ef Sundabrú verður fyrir val­inu en ekki Sunda­göng þá skal efna til alþjóð­legrar hönn­un­ar­sam­keppni um Sundabrú, í ljósi þess hversu áber­andi brúin verður í borg­ar­mynd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sundabraut

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár