Rúm 66 prósent landsmanna segjast hlynnt lagningu Sundabrautar

Mældur stuðn­ingur við Sunda­braut á meðal Reyk­vík­inga er á pari við lands­með­al­talið, sam­kvæmt könnun sem Maskína fram­kvæmdi um afstöðu til þess­arar stór­fram­kvæmdar í febr­ú­ar­mán­uði.

Í könnun Maskínu var spurt hvort fólk væri hlynnt eða andvígt lagningu Sundabrautar, óháð því hvort um brú eða göng yrði að ræða.
Í könnun Maskínu var spurt hvort fólk væri hlynnt eða and­vígt lagn­ingu Sunda­brautar, óháð því hvort um brú eða göng yrði að ræða. Mynd: Kjarninn

Afar fáir Íslend­ingar eru and­vígir lagn­ingu Sunda­brautar, eða ein­ungis 6,2 pró­sent, sam­kvæmt könnun sem Maskína fram­kvæmdi í febr­ú­ar­mán­uði. Rúm 66 pró­sent segj­ast hins vegar mjög eða fremur hlynnt fram­kvæmd­inni og 27,5 pró­sent svara því til að þau séu í með­al­lagi hlynnt eða and­víg lagn­ingu Sunda­brautar.

Maskína spurði fólk út í afstöðu til fram­kvæmd­ar­innar, burt­séð frá því hvort Sunda­brautin yrði á brú eða í göngum, en báðir kostir koma enn til greina af hálfu yfir­valda og ekki er útséð með hvernig útfærslan verður.

Flestir hlynntir á Vesturlandi og Vestfjörðum

Nið­ur­stöður Maskínu eru brotnar niður eftir kyni, aldri, búsetu, menntun, tekjum og hjú­skap­ar­stöðu, auk stuðn­ings við ein­staka stjórn­mála­flokka.

Þegar bak­grunns­breyt­urnar eru skoð­aðar kemur í ljós að stuðn­ingur við Sunda­braut er mestur á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum, en þar segj­ast 76,2 pró­sent mjög hlynnt fram­kvæmd­inni og 12,4 pró­sent til við­bótar fremur hlynnt.

Í Reykja­vík­ur­borg, þar sem fram­kvæmdir vegna Sunda­brautar fara fram, er stuðn­ingur á pari við lands­með­al­talið, en and­staðan mælist þó ögn meiri eða 9,2 pró­sent.

[adspot]

Ekki er neinn æpandi munur á stuðn­ingi við lagn­ingu Sunda­brautar eftir tekju­hópum, kynjum eða mennt­un­ar­stigi, þó að reyndar fari hlut­fall þeirra sem lýsa sig and­víga fram­kvæmd­inni yfir 10 pró­sent hjá þeim sem segj­ast hafa lokið fram­hald­námi á háskóla­stigi og yfir 12 pró­sent hjá þeim sem hafa tekjur yfir 1,2 millj­ónum á mán­uði.[links]

Mest andstaða í kjósendahópi Samfylkingarinnar – en þó mjög lítil

Er horft er á póli­tíska sviðið seg­ist meiri­hluti stuðn­ings­fólks allra flokka vera hlynnt lagn­ingu Sunda­brautar. Alls 92 pró­sent þeirra svar­enda sem segja að þeir myndu kjósa Mið­flokk­inn til Alþingis eru hlynntir Sunda­braut og í þeirra hópi sagð­ist eng­inn svar­andi vera and­vígur fram­kvæmd­inni. Hið sama átti við um stuðn­ings­fólk Flokks fólks­ins og Sós­í­alista­flokks­ins.

Í öllum öðrum væntum kjós­enda­hópum mátti finna ein­hverja sem sögð­ust and­vígir fram­kvæmd­inni. Mest and­staða við fram­kvæmd­ina er á meðal þeirra sem segja að þeir myndu kjósa Sam­fylk­ing­una til þings, en þar segja 13,5 pró­sent vera and­víg eða mjög and­víg lagn­ingu Sunda­brautar. Í þeim sama kjós­enda­hópi segj­ast þó rúm 61 pró­sent hlynnt fram­kvæmd­inni.

Brú eða göng?

Könnun Maskínu var fram­kvæmd dag­ana 7.-14. febr­úar og var lögð fyrir svo­kall­aða Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks sem dreg­inn er af handa­hófi úr Þjóðskrá. Um net­könnun var að ræða.

Svar­endur voru alls voru alls 926 tals­ins, en 811 tóku afstöðu til þeirrar spurn­ingar sem hér er fjallað um og byggja pró­sentu­tölur í frétt­inni á svörum þess hóps. Alls 6,5 pró­sent allra svar­enda könn­un­ar­innar komu þeirri skoðun á fram­færi að afstaða þeirra til Sunda­brautar færi eftir því hvort hún yrði lögð á brú eða í göngum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sundabraut

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár