Sundabraut samfélagslega hagkvæm, fækkar eknum kílómetrum en fjölgar bílferðum

Ábatinn af lagn­ingu Sunda­brautar fyrir sam­fé­lagið gæti numið allt að 236 millj­örðum króna, sam­kvæmt grein­ingu Mannvits og COWI. Eknum kíló­metrum gæti fækkað um rúm­lega 140 þús­und á dag, en dag­legum bíl­ferðum gæti að sama skapi fjölgað um þús­undir.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tóku við félagshagfræðilegri greiningu um Sundabraut í gær.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra tóku við félags­hag­fræði­legri grein­ingu um Sunda­braut í gær. Mynd: Af vef stjórnarráðsins

Ábati íslensks sam­fé­lags af lagn­ingu Sunda­brautar gæti orðið á bil­inu 186-236 millj­arðar króna, sam­kvæmt félags­hag­fræði­legri grein­ingu frá verk­fræði­stof­unum Mannviti og COWI, sem Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri veittu form­lega við­töku í gær.

Í krónum talið yrði ábat­inn á því 30 ára tíma­bili sem grein­ingin tekur til mestur ef ákveðið verður að Sunda­brautin liggi í jarð­göngum undir Klepps­vík, sam­kvæmt því sem segir í skýrsl­unni, eða 236 millj­arðar króna.

Jarð­göngin á milli Gufuness og Laug­ar­ness eru þó dýr­ari val­kostur en brú yfir Klepps­vík­ina og er svo­kallað nytja-kostn­að­ar­hlut­fall brú­ar­val­kosta hærra og innri vextir þeirra fram­kvæmda sömu­leiðis, sem þýðir að meira fæst til baka í sam­fé­lags­legan ábata fyrir hverja krónu sem lögð er út vegna brú­ar­gerðar.

Ástæðan fyrir því að ábati af jarð­göngum er met­inn meiri í krónum talið en brú­ar­val­kost­irnir, sem sagðir eru skila 185 og 208 millj­arða króna sam­fé­lags­legum ábata, er sú að færri vega­mót eru í Sunda­göngum og stærri hluti leið­ar­innar í frjálsu flæði – og því minni tafir fyrir öku­menn.

Eknum kílómetrum fækki verulega en bílferðum fjölgi líka

Í skýrsl­unni kemur fram að mestur ábati við lagn­ingu Sunda­brautar felist í færri eknum kíló­metrum, minni útblæstri og mengun og styttri ferða­tíma veg­far­enda vegna styttri leiða til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þar er þess þó einnig getið, í umfjöllun um áhrif á umferð einka­bíls­ins, að minni umferð­ar­tafir og styttri ferða­tími þýði að „fleiri muni velja bíl­inn sem sinn sam­göngu­máta, og fleiri bílar muni koma á göt­urnar“ sem dragi að ein­hverju leyti úr stytt­ingu ferða­tíma og fækkun ekinna kíló­metra, sem þó er umtals­verð eða á bil­inu 128-140 þús­und kíló­metrar dag­lega.

Þannig er gengið út frá því í skýrsl­unni að Sunda­braut muni fjölga bíl­ferðum, miðað við að engin Sunda­braut verði byggð, á kostnað bæði ferða með almenn­ings­sam­göngum og ferðum á hjóli. Talið að að dag­legum bíl­ferðum muni fjölga um 2.550-5.000 með til­komu Sunda­brautar – mest ef jarð­göng verði fyrir val­inu.

Nið­ur­staða grein­ing­ar­innar frá Mannviti og COWI er þó sú að Sunda­braut, hvort heldur sem er í jarð­göngum eða um brú, hafi mik­inn sam­fé­lags­legan ávinn­ing og sé metin sam­fé­lags­lega hag­kvæm fram­kvæmd sem slík.

[adspot]

Í til­kynn­ingu inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins vegna máls­ins segir frá því að vinnu starfs­hóps um Sunda­braut, sem hóf störf í júní árið 2020, sé nú form­lega lokið, en hóp­ur­inn skil­aði skila­grein til ráð­herra og borg­ar­stjóra sam­hliða afhend­ingu félags­hag­fræði­legu grein­ing­ar­innar.

Næstu skref eru sögð þau að Vega­gerðin vinni að und­ir­bún­ingi á mati á umhverf­is­á­hrifum og rann­sóknum í sam­starfi við Reykja­vík­ur­borg og Faxa­flóa­hafnir og Reykja­vík­ur­borg vinni að und­ir­bún­ingi nauð­syn­legra skipu­lags­breyt­inga.

„Gert er ráð fyrir að mat á umhverf­is­á­hrifum og nauð­syn­legar skipu­lags­breyt­ingar taki 2 til 3 ár, frek­ari rann­sóknir og hönnun 2 ár og útboðs­ferli stórrar fram­kvæmdar um 1-2 ár. Þessa verk­hluta má vinna að ein­hverju leyti sam­hliða og miðar allur und­ir­bún­ingur við að fram­kvæmdir við Sunda­braut geti haf­ist árið 2026 og að Sunda­braut frá Sæbraut að Kjal­ar­nesi verði lokið árið 2031,“ segir í til­kynn­ingu inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins og Vega­gerð­ar­innar.

Sigurður Ingi segir að grafan mæti árið 2026

Í til­kynn­ingu frá inn­við­a­ráðu­neyt­inu er haft eftir Sigurði Inga að nið­ur­stöð­urnar stað­festi þá sann­fær­ingu hans „að Sunda­braut muni hafa gríð­ar­lega þýð­ingu fyrir sam­göngur og mun umbylta umferð­inni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“[links]

„Sunda­braut mun dreifa álagi, leysa umferð­ar­hnúta og styrkja örygg­is­leiðir. Sunda­brautin mun auk þess stytta vega­lendir fyrir alla þá sem ferð­ast innan og til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu – óháð ferða­máta. Með þessa grein­ingu í fartesk­inu getum við nú brett upp ermar og haf­ist handa við að und­ir­búa fram­kvæmdir sem haf­ist geti innan fárra ára,“ er haft eftir ráð­herra, sem bætir um betur í færslu á Facebook-síðu sinni boðar þar að fram­kvæmdum við Sunda­braut muni ljúka árið 2031.

„Tíminn næstu fjögur árin verður nýttur vel með sam­tölum við íbúa og aðila í nærum­hverfi, breyt­ingum á skipu­lagi og gerð umhverf­is­mats og hönnun fer af stað á næst­unni. Útboðs­ferlið tekur þrjú til fjögur ár og í fram­haldi mætir grafan á stað­inn árið 2026 og fram­kvæmdum lýkur með þverun Kolla­fjarðar árið 2031,“ skrifar Sigurður Ingi á Facebook.

Samráð við íbúa og hagsmunaaðila lykilatriði við leiðarvalið

Haft er eftir Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra í sömu til­kynn­ingu að með sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu borgar og rík­is­ins síð­asta sumar, þess efnis að Sunda­braut verði lögð í einnig fram­kvæmd og tekin í notkun 2031, hafi Sunda­braut­ar­málið kom­ist í traustan og góðan far­veg.

„Félags­hag­fræði­leg grein­ingin sem nú liggur fyrir er mik­il­vægur áfangi en segja má að sam­kvæmt henni sé minni munur en á þeim kostum sem hafa verið til skoð­unar, Sunda­braut á brú og Sunda­braut í göngum,“ er haft eftir Degi í til­kynn­ing­unni, en í því sam­hengi má rifja upp að sam­ráð við íbúa í Laug­ar­dal og Graf­ar­vogi fyrr á öld­inni varð til þess að borgin gerði þá stefnu að sinni að Sunda­braut skyldi leggja í jarð­göngum.

„Í sam­ræmi við sam­komu­lagið eru næstu skref þau að vinna ítar­legt umhverf­is­mat þar sem þessir báðir þessir kostir verða bornir saman við núll-kost. Umhverf­is­matið og sam­ráð við íbúa og hags­muna­að­ila beggja vegna Klepps­víkur verður lyk­il­at­riði við end­an­legt leið­ar­val. Við útfærslu beggja leiða verða allir umhverf­is­þættir og mót­væg­is­að­gerðir vegna hugs­an­legra nei­kvæðra áhrifa af umferð fyrir nær­liggj­andi hverfi sér­stak­lega skoðað. Þá liggur einnig fyrir að hag­munir almenn­ings­sam­gangna, gang­andi og hjólandi verða teknir inn í mynd­ina ásamt hafn­ar­starf­semi,“ er einnig haft eftir Degi í til­kynn­ing­unni frá inn­við­a­ráðu­neyt­inu.

Hagfræðistofnun HÍ telur tímavirði of hátt metið

Í skila­grein starfs­hóps­ins um Sunda­braut­ina segir að Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands hafi verið fengin til þess að rýna helstu for­sendur grein­ing­ar­innar og nið­ur­stöður Mannvits og COWI.

Fram kemur að Hag­fræði­stofnun telji mik­il­vægt að betri for­sendur liggi fyrir var­aðndi nokkra grunn­þætti sem liggi til grund­vallar grein­ingum sem þess­ari, t.d. mat á tíma­virði íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, for­sendur fyrir ferða­máta­vali í sam­göngu­lík­ani, töl­fræði­legt mat á verð­mæti manns­lífa í tengslum við mat á ábata vegna umferð­ar­slysa og mat á verð­mæti umhverfis.

Þá segir frá því að Hag­fræði­stofnun hafi leitt líkum að því að sam­fé­lags­á­bat­inn í grein­ingu Mannvits og COWI væri ofmet­inn, þar sem tíma­virði not­enda væri metið of hátt, en ekki liggi fyrir ítar­legar rann­sóknir á tíma­virði hér­lendis.

Á móti telji Hag­fræði­stofnun þó að tölu­vert hátt álag sé á áætl­aðan stofn­kostnað við fram­kvæmd­ina, sem grein­ingin taki mið af, og að mik­il­vægt sé að horfa til kostn­aðar sam­bæri­legra verk­efna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár