„Þurfum ekki að skrifa fleiri skýrslur“: Sundabrú trompar Sundagöng

Brú yfir Klepps­vík þykir fýsi­legri kostur en jarð­göng úr Laug­ar­nesi yfir í Gufunes, sam­kvæmt nýrri skýrslu starfs­hóps. Áætlaður heild­ar­kostn­aður við lagn­ingu Sunda­brautar er tæpir 70 millj­arðar króna.

Valkostirnir tveir sem starfshópurinn rýndi í og mat upp á nýtt voru löng og dýr jarðgöng eða lágbrú sem mun fyrirsjáanlega hafa einhver áhrif á starfsemi Sundahafnar.
Val­kost­irnir tveir sem starfs­hóp­ur­inn rýndi í og mat upp á nýtt voru löng og dýr jarð­göng eða lág­brú sem mun fyr­ir­sjá­an­lega hafa ein­hver áhrif á starf­semi Sunda­hafnar. Mynd: stjórnarráðið

„Við þurfum ekki að skrifa fleiri skýrslur,“ sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra á blaða­manna­fundi í dag, þar sem hann kynnti nið­ur­stöðu starfs­hóps um legu Sunda­brautar. Fram kom í máli ráð­herra að brú væri talin afger­andi betri kostur en jarð­göng til þess að tengja Sæbraut við Gufunes.

Heild­ar­kostn­aður við Sunda­braut er met­inn tæpir 70 millj­arðar króna og áætlað er að verk­efnið verði unnið í sam­vinnu ríkis- og einka­að­ila. Þegar af því verður, en talið er raun­hæft að fram­kvæmdir gætu haf­ist árið 2025 og þeim lokið undir lok ára­tug­ar­ins.

Á fund­inum kom fram í máli ráð­herra að Sundabrú hefði verið tal­inn verið hag­kvæm­ari kostur en jarð­göng, í skýrslu starfs­hóps­ins, sem nálg­ast má hér.

Starfs­hóp­ur­inn taldi vega þyngst að kostn­aður við brú­ar­leið væri lægri, brú hent­aði betur fyrir alla ferða­máta og almenn­ings­sam­göngur og að brú bætti sam­göngur innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og til og frá borg­inni með því að dreifa umferð, minnka álag á öðrum stofn­vegum og stytta ferða­tíma.

„Nið­ur­stöður um að Sundabrú sé hag­kvæm­ari kostur eru afger­andi og að mínu mati er ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að taka næstu skref og hefja fram­kvæmdir við Sunda­braut. Þetta er ekki spurn­ing hvort af verk­efn­inu verði heldur hvenær. Núna er góður tími að fara í opin­berar fram­kvæmdir. Und­ir­bún­ingur verks­ins, hönnun og verk­legar fram­kvæmdir skapa mik­il­væga atvinnu og auka hag­vöxt í land­inu,“ sagði Sigurður Ingi í kynn­ingu sinni á fund­inum.

Fram kemur í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins að starfs­hóp­ur­inn telji að fram­kvæmdir við Sunda­braut geti haf­ist árið 2025 og lokið 2029-2030.

„Hópurinn telur að und­ir­bún­ingur, rann­sóknir, hönnun, mat á umhverf­is­á­hrifum og vinna við breyt­ingar á skipu­lags­á­ætl­unum taki að lág­marki 4 ár. Þá megi áætla að fram­kvæmda­tími við bygg­ingu Sunda­brúar og aðliggj­andi vega verði um 4-5 ár,“ segir á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Vinna starfshóps dróst á langinn

Sigurður Ingi skip­aði starfs­hóp­inn síð­asta vor og hann hefur verið að störfum síðan. Fyrst átti nið­ur­staðan að liggja fyrir í ágúst, en dreg­ist hefur að ljúka vinn­unni, þar til núna nýlega og seg­ist ráð­herra hafa fengið skýrsl­una í hendur um liðna helgi.

Hópnum var falið að meta hvort fýsi­legra væri að Sunda­braut yrði skipu­lögð sem jarð­göng frá Laug­ar­nesi yfir í Gufunes eða þá að hún færi lág­brú sem þvera myndi hafn­ar­svæði Sunda­hafnar við Klepps­vík.[links]

Vega­gerðin leiddi hóp­inn, en í honum voru líka full­trúar frá Reykja­vík­ur­borg, Samtökum sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Faxa­flóa­höfnum. Þeir tveir mögu­leikar sem hóp­ur­inn var að velja á milli voru þeir tveir sem fýsi­leg­astir þóttu í mati ann­ars starfs­hóps, sem skil­aði af sér skýrslu árið 2019.

Legið hefur fyrir að taka þyrfti ákvörðun um hvernig tengj­ast ætti á milli Sæbrautar og Gufuness áður en hægt yrði að taka ákvörðun um hvernig Sunda­braut myndi liggja alla leið að Vest­ur­lands­vegi í Kolla­firði.

Fleiri líklegir til að keyra um brú

Fyrir hefur legið að ákveðnir gallar eru við báðar leið­irnar sem starfs­hóp­ur­inn var beð­inn um að leggja mat sitt á. Brú, eins og nú er stefnt að, mun að ein­hverju leyti skerða hafn­ar­svæðið við Sunda­höfn þrátt fyrir að hún verði ekki lág og jarð­göng yrðu mjög dýr og fyr­ir­sjá­an­lega ekki jafn mikið nýtt og brú.

[adspot]

Fólk sem er statt í Skeif­unni á bílnum sínum mun enda ólík­lega keyra niður í Laug­ar­nes til þess að fara yfir í Graf­ar­vog eða áleiðis upp í Mos­fellsbæ í jarð­göngum, í stað þess að velja Ártúns­brekk­una. Þó að það væri kannski smá traffík. Þetta höfðu umferð­ar­grein­ingar sýnt fram á – að jarð­göng myndu laða að sér minni umferð en brú.

Sigurður Ingi var búinn að koma því á fram­færi að hann væri hrifn­ari af brú og gladd­ist hann yfir því að sú sann­fær­ing hans hefði komið út úr vinnu starfs­hóps­ins.

Kostirnir endurmetnir frá grunni

Það sem starfs­hópnum var nákvæm­lega falið að gera var að í fyrsta lagi að end­ur­meta hönnun og legu og gera nýtt kostn­að­ar­mat fyrir bæði jarð­göngin og brúna. Leggja átti fram ný frum­drög fyrir báðar fram­kvæmd­irnar og taka mið af upp­bygg­ing­ar­á­formum sem finna mátti í sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Í annan stað átti starfs­hóp­ur­inn að greina þá val­kosti sem yrðu fyrir hendi varð­andi breytt skipu­lag Sunda­hafnar, ef lág­brú yrði fyrir val­inu. Fram kom í skip­un­ar­bréfi að í þeirri vinnu fælist að leggja mat á áhrif á umferð, umhverf­is­þætti, nærum­hverfi, atvinnu­starf­semi og þró­un­ar­mögu­leika Sunda­hafnar.

Einnig var hópnum falið að skoða hvort hægt væri að koma fram með nýja hönnun á brú sem sátt næð­ist um og það er það sem var ofan á.

Sundabraut er ekki hluti samgöngusáttmálans

Oft er rætt um Sunda­braut­ina í sam­hengi við sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og stundum virð­ist sá mis­skiln­ingur vera uppi í umræðu um málið að fram­kvæmd Sunda­braut­ar­innar sjálfrar sé hluti af fram­kvæmda­á­ætlun sátt­mál­ans, sem gerður var á milli sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rík­is­ins.

Svo er hins vegar ekki, heldur er Sunda­braut eitt þeirra sam­göngu­verk­efna sem opnað hefur verið á að fari í einka­fram­kvæmd. Í sam­göngusátt­mál­anum er þó kveðið á um að við end­an­lega útfærslu fram­kvæmda verði „sér­stak­lega hugað að greiðri teng­ingu aðliggj­andi stofn­brauta svo sem Sunda­brautar inn á stofn­brautir höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.“

Hvað þetta þýðir nákvæm­lega er ansi loðið og hefur verið túlkað með mis­mun­andi hætti af stjórn­mála­mönnum sem hafa ólíka sýn á fram­tíð sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

En nú þarf ekki að skrifa fleiri skýrslur, sam­kvæmt Sigurði Inga, Sundabrú yfir Klepps­vík er það sem stefnt verður að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sundabraut

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár