Sundabrú myndi rísa allt að 35 metrum yfir haffletinum í Kleppsvík

Starfs­hópi sem falið var að meta hvort fýsi­legra væri að nota jarð­göng og lág­brú til að þvera Klepps­vík í tengslum við Sunda­braut komst að þeirri nið­ur­stöðu að kostir brúar væru meiri. Sundabrú yrði hins vegar ekki neitt sér­lega lág.

Sundabrúin myndi vera í allt að 35 metra hæð yfir haffletinum, nógu há til þess að skip sem væru nærri 30 metrum gætu siglt undir hana og laggst að bryggju innar í Kleppsvík.
Sunda­brúin myndi vera í allt að 35 metra hæð yfir hafflet­inum, nógu há til þess að skip sem væru nærri 30 metrum gætu siglt undir hana og laggst að bryggju innar í Klepps­vík. Mynd: Efla verkfræðistofa/Úr skýrslu starfshópsins

Brú yfir Klepps­vík, sem til­laga er gerð um í nýrri skýrslu starfs­hóps og talin er fýsi­legri kostur en jarð­göng yfir í Gufunes, yrði engin smá­smíði. Þegar orðið „lág­brú,“ er nefnt eru eflaust fáir sem sjá fyrir sér brú af þeirri stærð­argráðu sem teiknuð hefur verið upp og stefnt er að, sem fýsi­leg­asta kosti.[links]

Samkvæmt upp­færðri til­lögu frá Eflu verk­fræði­stofu er gengið út frá því að brúin verði 1.172 metra löng og því lengsta brú á Íslandi. Hún er næstum því 300 metrum lengri en hin aflagða Skeið­ar­ár­brú á Skeið­ar­ár­sandi, til sam­an­burðar. Um helm­ingur brú­ar­innar yrði á landi í Sunda­höfn til móts við Holtaveg en um helm­ingur yfir hafflet­inum.

Brúin, eins og hún er teiknuð upp á til­lög­unni, rís hæst í um 35 metra hæð yfir haf­flöt­inn og áætlað er að næstum því 30 metra há skip geti siglt undir hana, í 100 metra breiðri sigl­inga­rennu.

Í reynd hefur verið fallið alveg frá hug­myndum um „lág­brú“ á þessum stað, en starfs­hópnum var ætlað að skoða mis­mun­andi útfærslur að brú sem lík­legt væri að sátt næð­ist um.

Brúin þarf að vera svona há til þess að athafna­svæðið í Sunda­höfn, sem verður undir fyr­ir­hug­aðri brú, verði ekki fyrir raski. Áfram á að vera hægt að sigla stórum skipum inn að við­legu­kanti sem er innar í Klepps­vík­inni.

Faxa­flóa­hafnir, sem áttu full­trúa í starfs­hópnum, höfðu áður lýst hug­mynd­inni um lág­brú á þessum stað sem „rot­höggi“ fyrir starf­semi Sunda­hafnar.

Tæplega 30 milljarðar í Sundabrú eina og sér

Þessi brú yrði mikið mann­virki, sem end­ur­spegl­ast í kostn­að­ar­töl­unum sem settar eru fram í skýrslu starfs­hóps­ins, en brúin ein og sér er verð­metin á 29,5 millj­arða króna. Áætlað er að full­búnar teng­ingar við Sæbraut kosti 6,8 millj­arða og að teng­ingar í Gufunesi við Borgaveg og Hallsveg kosti 7,5 millj­arða króna.

[adspot]

Heild­ar­kostn­að­ur­inn við þverun Klepps­víkur er því met­inn 43,7 millj­arðar króna og við það bæt­ist kostn­aður við leið­ina á milli Gufuness og Kjal­ar­ness, sem áætl­aður er að verði 25 millj­arðar. Kostn­aður við Sunda­braut með brú­ar­leið­inni er því áætl­aður 69 millj­arðar í heild.

Gengið er út frá því að brúin verði í heild­ina 26 metra breið. Gert er ráð fyrir fjórum akreinum fyrir bíla á brúnni eða tveimur í hvora átt og svo 5,7 metra breiðum göngu- og hjóla­stíg, en það var einmitt talið Sundabrú til tekna umfram Sunda­göng í mati starfs­hóps­ins að þar gætu allir ferða­mátar farið um.

Vert er þó að taka fram að báðir kostir þóttu raun­hæfir, að mati starfs­hóps­ins, en jarð­ganga­leiðin er metin um 14 millj­örðum dýr­ari.

Samskip telur að lengja þurfi Vogabakka áður en nokkuð er gert varðandi Sundabrú

Fram kemur í skýrslu starfs­hóps­ins að til­lagan að Sundabrú sem hér er fjallað um hafi verið kynnt helstu hags­muna­að­ilum við Sunda­höfn. Ekki hafi verið gerðar veru­legar athuga­semdir við útfærsl­unar, nema efn­is­legar athuga­semdir sem komu frá Sam­skipum.

Í skýrslu starfs­hóps­ins má lesa að Samskip telur að nauð­syn­legt sé að lengja Voga­bakka til norð­urs áður en fram­kvæmdir við Sundabrú hefj­ast. Að öðrum kosti telur fyr­ir­tækið að starf­semi þess muni svo gott sem stöðvast á fram­kvæmda­tím­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sundabraut

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár