Hraðbraut yfir sundin er „byggð á einhverri fortíðarþrá“

Varað er við því að draga upp „gömul og ryk­fallin“ plön til að skapa atvinnu vegna COVID. Sunda­braut sem hrað­braut er slíkt plan, segir borg­ar­full­trúi Pírata. Oddviti sjálf­stæð­is­manna segir það gleym­ast að Reykja­vík sé borgin við sundin sem þarfn­ist brúa.

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir og Eyþór Arnalds ræddu Sundabraut í Silfrinu á RÚV í morgun.
Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir og Eyþór Arnalds ræddu Sunda­braut í Silfrinu á RÚV í morgun.

Sunda­braut er hags­muna­mál allra lands­manna, sagði Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn í Silfrinu á RÚV í morgun þar sem farið var yfir ýmsa þætti borg­ar­mál­anna. Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs og full­trúi Pírata í borg­ar­stjórn, sagði Sunda­braut ekki slæman val­kost en þó aðeins ef hún yrði ekki hrað­braut sem myndi rýra loft­gæði og kljúfa hverfi.

Sunda­braut er nú enn einu sinni komin inn í umræð­una. Leiðin sem hefur verið á teikni­borð­inu í marga ára­tugi. Markmið Sunda­brautar hefur m.a. verið það að tengja hverfi borg­ar­innar betur saman en einnig að létta á umferð á öðrum stofn­brautum.

En frá því að Sunda­braut var fyrst nefnd til sög­unnar hefur ýmis­legt breyst í straumum og stefnum skipu­lags­mála og áhersla síð­ustu ára hjá Reykja­vík­ur­borg hefur legið í því að bæta almenn­ings­sam­göngur og aðgengi hjólandi og gang­andi veg­far­enda. Nú er nefnd að störfum sem á að skoða fýsi­leika tveggja val­kosta við Sunda­braut: Að hafa hana í brú eða jarð­göngum.

Sig­ur­borg sagði við skoðun á Sunda­braut yrði að taka með í reikn­ing­inn hvaða áhrif hún myndi hafa á borg­ar­búa. „Ef við ætlum að byggja Sunda­braut sem hrað­braut þá mun hún kosta okkur mörg mis­læg gatna­mót og hún mun skera Graf­ar­vog­inn og Voga­byggð og byggð­ina þar í kring mjög mikið. Og hún mun hafa mjög nei­kvæð áhrif á loft­gæði, nei­kvæð áhrif á umferð og hún mun skapa aukna [bíla]umferð.“

[links]Í Evrópu hefur að sögn Sig­ur­borgar ítrekað verið bent á að rík­is­stjórnir „megi ekki draga upp gömul og ryk­fallin plön og skella þeim fram eftir COVID til að skapa atvinnu ef að þessi sömu plön vinna gegn lofts­lags­málum. Og það er einmitt það sem Sunda­brautin mun gera ef hún verður hrað­braut.“

Hún sagði Sunda­braut í sjálfu sér ekki slæman val­mögu­leika en hún yrði þá að vera hugsuð fyrir alla sam­göngu­máta. Þá myndi hún ekki hafa jafn nei­kvæð áhrif á borg­ar­búa og ef hún yrði gerð að hrað­braut fyrir bíla.

Þurfum tengingar og brýr

„Það gleym­ist stundum að við erum borgin við sundin,“ sagði Eyþór. „Við erum með tak­mark­aðar teng­ingar. Við, eins og Stokk­hólmur og San Francisco, erum þannig að við þurfum brýr. Við þurfum teng­ingar og brautir sem tengja svæðin saman. Sunda­brautin tengir ekki bara Reykja­vík heldur höf­uð­borg­ina við Vest­ur­land og Norð­ur­land. Þetta er hags­muna­mál alls lands­ins og órjúf­an­legur hluti sam­göngusátt­mál­ans. Sunda­braut er ekki bara ein­hver hug­mynd inni í sátt­mál­anum, hún er hluti sátt­mál­ans. Borgin þarf að klára þessi skipu­lags­mál.“

Sagði hann því skjóta skökku við að verið væri að byggja hverfi þar sem bíl­laus lífs­stíll yrði í hávegum hafður „þvert á vegstæði Sunda­brautar“ á sama tíma og borg­ar­stjóri hafi boðað að Sunda­brautin ætti ekki að vera við hlið­ina á íbúa­byggð. „Það er ákveðin van­virð­ing við verk­efnið.“

Sagðist hann sam­mála seðla­banka­stjóra um að klára hefði átt Sunda­braut fyrir löngu. „Ef við skipu­leggjum ekki fram­tíð­ina þá verður hún klúður. Og við erum búin að sjá of mörg klúður.“ Fleiri stofnæðar í borg­inni væru nauð­syn­legar.

Peningar til fyrir skynsamleg verkefni

Sig­ur­borg sagði það ekki þannig að með upp­bygg­ingu nýrra hverfa væri verið að koma í veg fyrir að Sunda­braut verði mögu­leg. Í Gufunesi væri að hefj­ast upp­bygg­ing íbúða­byggðar sem vissu­lega væri nálægt því vegstæði sem nefnt hafi verið fyrir Sunda­braut í fjóra ára­tugi. Upp­bygg­ing Voga­byggðar, „þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur barist fyrir því að Sunda­braut ætti að liggja,“ er svo þegar hafin. „Ég held að íbúar Reykja­víkur vilji frekar fá íbúðir fyrir almennan markað og fyrir fjöl­breyttan hóp fólks heldur en hrað­braut á þennan stað.“

Sagði hún það „galna rök­semda­færslu“ halda því fram að ekki væru til 100 millj­arðar fyrir nýjan flug­völl og þess vegna yrði að byggja upp í Keldna­landi og Örfirisey og leggja Sunda­braut, fram­kvæmd upp á 70 millj­arða. „Þá ertu ekki að taka ákvörðun sem er best fyrir íbú­ana, ekki að taka ákvörðun sem er best fyrir lofts­lagið og þetta er furðu­leg ákvörðun sem er byggð á ein­hverri for­tíð­ar­þrá.“

Eyþór benti á að það væri borgin sjálf sem hefði sam­þykkt að flug­völl­ur­inn yrði áfram í Vatns­mýri þar til annar kostur kæmi fram. „Sunda­braut er huguð sem sjálf­bær fram­kvæmd þar sem þeir borga sem nota. Það liggur ekki fyrir að inn­an­lands­flugið geti borgað 100 millj­arða fram­kvæmd, þvert á móti þá er núna verið að tala um neyð­ar­ráð­staf­anir til að halda því uppi. Þannig að það eru ekki til pen­ingar til að flytja flug­völl­inn.“

Sig­ur­borg sagð­ist ekki vilja trúa því að ekki væru til pen­ingar til að byggja borg fyrir fólk en að það væru til fjar­munir til að breyta borg­inni „í umferð­ar­eyju“.

„Peningar eru til í þau verk­efni sem menn telja skyn­sam­leg,“ svar­aði Eyþór þá. „Ef borg­ar­línan væri góður kostur í fram­kvæmd þá tel ég að það væri best að þið mynduð bjóða verk­efnið út og að líf­eyr­is­sjóðir og aðrir gætu tekið að sér fram­kvæmd­ina. Sunda­braut er talin vera kostur sem gengur upp fjár­hags­lega.“

Þetta við­horf Eyþórs fannst Sig­ur­borgu sýna að hann hefði ekki grund­vall­ar­skiln­ing á því hvernig almenn­ings­sam­göngur virka. „Hið opin­bera þarf alltaf að styðja við almenn­ings­sam­göngur og þær hafa miklu betri áhrif á sam­fé­lagið í heild sinni, þær hafa alltaf það jákvæð áhrif að það borgar sig fyrir opin­bera aðila að styðja við almenn­ings­sam­göngur.“

Benti hún svo á að fram­kvæmdir við borg­ar­línu væru þegar komnar af stað að vissu leyti, við nýja með­ferð­ar­kjarna Land­spít­al­ans og í Valla­hverfi í Hafn­ar­firði. Þær færu svo af stað af þunga á næsta og þarnæsta ári. „Þannig að þetta er bara handan við hornið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár