Smári: „Eiginlega galið“ hjá seðlabankastjóra að tjá sig um Sundabraut

Seðla­banka­stjóri sagði á opnum nefnd­ar­fundi á Alþingi í dag að honum fynd­ist „stór­und­ar­legt og ámæl­is­vert“ að Sunda­braut hefði ekki verið byggð. Þing­maður Pírata segir ummæli hans eig­in­lega galin.

Smári McCarthy, þingmaður Pírata.
Smári McCarthy, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Smári McCarthy, þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í efna­hags- og við­skipta­nefnd, spurði Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóra um fjár­fest­ingar rík­is­ins á opnun fundi hjá nefnd­inni í morgun þar sem fjallað var um skýrslu pen­inga­stefnu­nefndr­ar Seðla­banka Íslands til Alþing­is.

Ásgeir svar­aði því meðal ann­ars til að honum þætti „al­veg stór­und­ar­legt og ámæl­is­vert að Sunda­braut hafi ekki verið byggð miðað við þá um­ferð sem er í bæn­um.“ Vandinn við inn­viða­fjár­fest­ingar á borð við Sunda­braut væri tækni­legur en að hægur leikur væri að fjár­magna slíka fram­kvæmd.

[adspot]Smári tjáir sig um málið í stöðu­upp­færslu á Facebook og byrjar þá færslu með því að velta fyrir sér hvort að Ásgeir langi í vinnu hjá Vega­gerð­inni. Hann hafi ekki verið að spyrja seðla­banka­stjóra um sam­göngu­mál, heldur fjár­fest­ingar hjá rík­inu almennt.

Smára fannst mjög sér­stakt að heyra seðla­banka­stjóra tala um Sunda­braut og aðrar vega­fram­kvæmdir í stað þess að svara hag­fræði­legri spurn­ingu sinni um fjár­fest­ingar á vegum rík­is­ins og mik­il­vægi þess að auka fjár­fest­ingar. „Nú vill þannig til að Ásgeir er ekki sér­fræð­ingur í vega­gerð, borg­ar­þróun, umhverf­is­málum, eða álíka. Hann á að heita sér­fræð­ingur í hag­kerf­inu, og þegar hann er boð­aður á fund Efnahags- og við­skipta­nefndar sem slíkur sér­fræð­ingur, og sem Seðla­banka­stjóri, þá væri best ef hann myndi halda sig við þannig umræðu,“ skrifar Smári og bætir við: „Þetta var eig­in­lega galið hjá Ásgeiri. Ég gat bara ekki svarað þessu á meðan á fund­inum stóð vegna tíma­skorts.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár