Vilja endurvekja sjálfstæðisbaráttuna

„Eins og fyrri kyn­slóðum tókst að umbreyta íslensku sam­fé­lagi með sjálf­stæð­is­bar­áttu almenn­ings þá mun okkur takast það einnig. Þeim tókst það og okkur mun líka takast það.“ Sós­í­alista­flokk­ur­inn sendi frá sér til­kynn­ingu í til­efni af 17. júní.

Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins.
Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur sent frá sér til­boð til kjós­enda í til­efni af 17. júní sem snýst um að end­ur­heimta fisk­veiði­lög­sög­una úr höndum útgerðar­að­als­ins, að nýta auð­lindir lands og sjávar til að byggja hér upp rétt­lát­ara sam­fé­lag, að efla verka­lýðs­hreyf­ing­una og kveikja enn frek­ari hags­muna­bar­áttu almenn­ings, að lýð­ræð­i­svæða atvinnu­lífið, að styrkja alla lýð­ræð­is­upp­bygg­ingu sveit­ar­fé­laga, rík­is­valds og opin­berra stofn­ana, að vinna gegn elítu­stjórn­málum með slembivöldu stjórn­laga­ráði og frek­ari þróun lýð­ræðis og setja skýr sam­fé­lags­leg mark­mið um alla upp­bygg­ingu inn­viða og grunn­kerfa sam­fé­lags­ins.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá flokknum í dag.

Í til­boð­inu kemur fram að Ísland standi nú á tíma­mótum við lok tíma­bils sem kennt hefur verið við nýfrjáls­hyggj­una. „Á þeim tíma voru sam­fé­lags­stoðir veiktar og nokkuð af þeim árangri sem náðst hafði með skipu­lagðri verka­lýðs­bar­áttu á síð­ustu öld gekk til baka. Innviðir sam­fé­lags­ins og helstu grunn­kerfi eru nú veik og valda­ó­jafn­vægi hefur vaxið. Fram undan eru tækni­breyt­ingar sem að óbreyttu auka enn við auð og völd hinna fáu, en munu skilja hin fátæk­ari og valda­laus­ari eftir. Og eins og hinn fjár­mála­væddi kap­ít­al­ismi hefur brotið niður sam­fé­lögin hefur hann líka gengið svo á nátt­úru­gæði að fram­tíð mann­kyns og líf­rík­is­ins er í hættu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Fram kemur hjá sós­í­alistum að til­boð þeirra til kjós­enda á þessum tíma­mótum sé að mæta þessum ógnum með sam­taka­mætti almenn­ings, með það að mark­miði að byrð­unum verði dreift jafnt en ávinn­ingnum einnig.

„Nýliðin saga sýnir okkur hvers almenn­ingur er megn­ugur ef honum auðn­ast að byggja upp sam­stöðu innan skipu­lagðrar bar­áttu. Afar okkar og ömmur, langa­far og langömmur, hófu bar­áttu alls­lausrar alþýðu, rétt­inda- og eign­ar­lauss fólks sem átti ekk­ert annað en von­ina um betra sam­fé­lag. Þessu fólki tókst að umbreyta stöðu sinni í sam­fé­lag­inu, bæta lífs­kjör sín og rétt­indi, og hafa afger­andi áhrif á mótun sam­fé­lags­ins kom­andi kyn­slóðum til heilla.

Við erum þær kyn­slóðir. Eins og fyrri kyn­slóðum tókst að umbreyta íslensku sam­fé­lagi með sjálf­stæð­is­bar­áttu almenn­ings þá mun okkur takast það einnig. Þeim tókst það og okkur mun líka takast það. Og það er skuld okkar við fólkið sem háði bar­átt­una á síð­ustu og þar síð­ustu öld, að skilja svo við sam­fé­lagið að staða alþýðu manna sé miklum mun betri þegar við skilum sam­fé­lag­inu af okkur en þegar okkur var treyst fyrir því,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár