Nefndarstörf um sjávarútvegsmál skýrist fyrir enda mánaðarins

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði á þingi í dag að hún væri þeirrar skoð­unar að fleiri en færri í íslensku þjóð­fé­lagi vilji sjá meira rétt­læti og aukna sann­girni í sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði frá því í fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag að hún stefni á að leggja fram tíma­setta verk­á­ætlun vegna fyr­ir­hug­aðs nefnd­ar­starfs sem varðar sjáv­ar­út­vegs­mál fyrir lok þessa mán­aðar. Hún seg­ist þeirrar skoð­unar að fleiri en færri í þjóð­fé­lag­inu vilji sjá „meira rétt­læti“ en það upp­lifi varð­andi sjáv­ar­út­vegs­kerfið í dag.

Þetta kom fram í svörum Svan­dísar við fyr­ir­spurn Halldórs Auðar Svans­sonar, sem í dag tók sæti á þingi fyrir Pírata í fyrsta skipti sem vara­þing­maður. Halldór Auðar spurði út í það hvenær stæði til að skipa þá nefnd um sjáv­ar­út­vegs­mál sem fjallað er um í stjórn­ar­sátt­mála og hvernig störfum þess­arar nefndar yrði háttað.

Hann lýsti á sama tíma yfir áhyggjum af því að þarna væri verið að „útvista póli­tískum ákvörð­unum í nefnd sem fengi mjög óljós og opin fyr­ir­mæli“ sökum þess að stjórn­ar­flokk­arnir væru mjög ósam­mála um mála­flokk­inn.

[adspot]

Sem áður segir sagð­ist Svandís horfa til þess að leggja fram tíma­setta verk­á­ætlun fyrir nefnd­ina áður en febr­ú­ar­mán­uður er á enda, en hún sagð­ist einnig þeirrar skoð­unar að þessi nefnd ætti ekki að fá eitt tröll­aukið verk­efni í fangið, heldur væri um að ræða fleiri en eitt verk­efni í hennar huga sem þó teng­ist órofa böndum, þar sem það þurfi að hafa yfir­sýn yfir það hvernig fyrir sjáv­ar­út­veg­inum væri komið.

„Ég tel að það sé ekki ráð að fara í ein­hverja tröllaukna nefnda­skipan sem fær allan tím­ann í heim­inum til að setja fram ein­hverja stór­brotna lausn á þessu verk­efni. Ég held það sé miklu frekar þannig að þetta séu fleiri verk­efni, þau séu af mis­mun­andi stærð­argráðu,“ sagði Svandís.

Sem áður segir sagð­ist Svandís horfa til þess að leggja fram tíma­setta verk­á­ætlun fyrir nefnd­ina áður en febr­ú­ar­mán­uður er á enda, en hún sagð­ist einnig þeirrar skoð­unar að þessi nefnd ætti ekki að fá eitt tröll­aukið verk­efni í fangið, heldur væri um að ræða fleiri en eitt verk­efni í hennar huga sem þó teng­ist órofa böndum, þar sem það þurfi að hafa yfir­sýn yfir það hvernig fyrir sjáv­ar­út­veg­inum væri komið.

„Ég tel að það sé ekki ráð að fara í ein­hverja tröllaukna nefnda­skipan sem fær allan tím­ann í heim­inum til að setja fram ein­hverja stór­brotna lausn á þessu verk­efni. Ég held það sé miklu frekar þannig að þetta séu fleiri verk­efni, þau séu af mis­mun­andi stærð­argráðu,“ sagði Svandís.[box]

„Sátt hverra?“

Er Halldór Auðar steig í ræðu­stól öðru sinni sagð­ist hann áfram hafa efa­semdir um að þessi nefnd væri ekki að fara leysa þau póli­tísku við­fangs­efni sem fyrir liggja og að það hefði hann merkt á máli ráð­herra.

„Senni­lega er hún að fara að vinna í ein­hvern tíma og koma með ein­hvers­konar kort­lagn­ingu, sviðs­mynda­grein­ingu sem nýta má til upp­lýs­inga­gjafar og bak­grunns­vinnu, en svo taka við stærri spurn­ingar sem eru póli­tískar í eðli sínu og er tek­ist á um. Hugtakið sátt, hvað þýðir það? Sátt hverra? Það verður ekki hjá því kom­ist að ein­hvers­konar afstaða sé tekin,“ sagði Halldór Auðar.

Svandís játti því að það væri „stórt sagt“ þegar talað væri „um sátt í svona stórum mála­flokki og ekki síst þegar um er að ræða við­var­andi ágrein­ing í sam­fé­lag­inu, sem hún nefndi að væri „vel dreg­inn upp í þátt­unum um Ver­búð­ina,“ sem Halldór Auðar hafði áður gert að umtals­efni.

„Ég er samt algjör­lega sann­færð um það það eru fleiri en færri í þessu sam­fé­lagi sem vilji meira rétt­læti og vilja meiri sann­girni en fólk upp­lifir í kerf­inu eins og það er. Sumt af því er hægt að leysa með því að auka gagn­sæi og tryggja að þau við­mið sem sann­ar­lega eru fyrir hendi í lögum í dag séu virt,“ sagði mat­væla­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár