Samherji áformar 45 milljarða króna landeldi við Reykjanesvirkjun

Samherji fisk­eldi ætlar sér að fram­leiða allt að 40 þús­und tonn af laxi í land­eld­is­stöð á Reykja­nesi. Fyr­ir­tækið hefur náð samn­ingum við HS Orku um upp­bygg­ing­una, en ylsjór frá Reykja­nes­virkjun verður nýttur við mat­væla­fram­leiðsl­una.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja og Tómas Már Sigurðsson forstjóri HS Orku handsala samstarfið. Hjá þeim standa Jón Kjartan Jónsson framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis og Jón Ásgeirsson framkvæmdastjóri stefnumótunar og auðlindagarðs HS Orku.
Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja og Tómas Már Sig­urðs­son for­stjóri HS Orku hand­sala sam­starfið. Hjá þeim standa Jón Kjartan Jónsson fram­kvæmda­stjóri Samherja fisk­eldis og Jón Ásgeirs­son fram­kvæmda­stjóri stefnu­mót­unar og auð­linda­garðs HS Orku. Mynd: Samherji

Samherji fisk­eldi ehf. hefur gert samn­inga við HS Orku um upp­bygg­ingu lax­eldis á landi í Auð­linda­garð­inum við Reykja­nes­virkjun. Fyr­ir­huguð heild­ar­fjár­fest­ing í verk­efn­inu nemur 45 millj­örðum króna, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef Samherja, en þar segir einnig að stjórn félags­ins hafi þegar ákveðið að leggja 7,5 millj­arða í fyrsta áfanga þess.

Á vef Samherja segir að félagið hafi tryggt sér aðgang að sjó og raf­orku til að fram­leiða allt að 40 þús­und tonn af laxi á landi árlega og samið við land­eig­endur vegna upp­bygg­ing­ar­innar. Kynn­ing­ar­fundur fer fram um verk­efnið í Hljóma­höll­inni í Reykja­nesbæ á morgun.

Upp­bygg­ingin á að verða í þremur áföngum, á næstu 11 árum, sam­kvæmt til­kynn­ingu Samherja, þar sem segir að ráð­gert sé að leita til fleiri fjár­festa þegar kemur að frek­ari stækkun land­eld­is­ins.

„Land­eld­is­á­formin í Auð­linda­garð­inum telj­ast stór í sam­an­burði við önnur land­eld­is­verk­efni sem nú eru í und­ir­bún­ingi á alþjóða­vísu. Fjölmörg störf verða til á fram­kvæmda­tím­anum og á annað hund­rað störf við land­eldið þegar vinnsla á afurðum hefst,“ segir í til­kynn­ingu Samherja.

[adspot]

Samkvæmt áætl­unum Samherja fisk­eldis mun seiða­eldi við fyrsta áfanga hefj­ast í upp­hafi árs 2023 og áframeldi og vinnsla á afurðum á árunum 2024 og 2025. Í fyrsta áfanga á fram­leiðslan að verða 10.000 tonn af laxi og áætluð fjár­fest­ing upp á 17 millj­arða króna. Í öðrum áfanga verður bætt við 10.000 tonnum og í þriðja áfanga 20.000 tonnum.

Ef allt gengur að óskum verður land­eldið í Auð­linda­garð­inum komið í full afköst á árinu 2032, sam­kvæmt til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár