Kristján Þór upplýsti Katrínu um samskipti skrifstofustjóra við Stjórnartíðindi

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra upp­lýsti for­sæt­is­ráð­herra um það í júlí­mán­uði síð­ast­liðnum að í júlí í fyrra hefði þáver­andi skrif­stofu­stjóri ráðu­neytis hans átt sam­skipti við Stjórn­ar­tíð­indi og látið fresta birt­ingu nýrra laga um lax­eldi, sem kom fyr­ir­tækj­unum vel.

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lét Katrínu Jakobsdóttir forsætisráðherra vita af málinu eftir að ráðuneyti hans fékk ábendingu um það.
Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra lét Katrínu Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra vita af mál­inu eftir að ráðu­neyti hans fékk ábend­ingu um það. Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra upp­lýsti Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um það í júlí­mán­uði 2020 að fyrr í þeim sama mán­uði hefði yfir­stjórn ráðu­neytis hans borist ábend­ing um sam­skipti skrif­stofu­stjóra sjáv­ar­út­vegs og fisk­eldis í ráðu­neyt­inu við Stjórn­ar­tíð­indi.

Umrætt mál verður tekið til umræðu í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis á næst­unni, en það stað­festir Jón Þór Ólafsson þing­maður Pírata og for­maður nefnd­ar­innar í sam­tali við Kjarnann.

Stundin hefur verið að fjalla um málið frá ýmsum hliðum frá því í síð­ustu viku. Þá greindi blaðið frá því að umræddur þáver­andi skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyt­inu, Jóhann Guð­munds­son, hefði beðið Stjórn­ar­tíð­indi um að birt­ingu og þar með gild­is­töku nýrra laga um lax­eldi yrði frestað um þrjá daga í júlí árið 2019 – frá 15. júlí til 18. júlí. Greint var frá því að umbeðin frestun hefði snert hags­muni þriggja lax­eld­is­fyr­ir­tækja, sem voru með frest hjá Skipu­lags­stofnun til 17. júlí þess að skila inn gögnum varð­andi lax­eld­is­á­form.

Fyrir utan það að sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra lét for­sæt­is­ráð­herra vita af sam­skipt­unum var for­sæt­is­ráðu­neyt­inu að öðru leyti ekki gert sér­stak­lega kunn­ugt um málið, sam­kvæmt svari þess til Kjarnans um þetta mál, en ráðu­neytið seg­ist jafn­framt ekki hafa upp­lýs­ingar um önnur ein­stök til­vik þar sem seink­unar á birt­ingu laga í Stjórn­ar­tíð­indum hafi verið óskað.

Ráðu­neytið bendir á að „slík beiðni um skamm­vinna seinkun getur í ein­staka til­vikum talist mál­efna­leg eða nauð­syn­leg vegna fram­kvæmdar þeirra laga sem um ræðir, t.a.m. í til­fellum þar sem stilla þarf saman birt­ingu reglu­gerðar og nýrra laga.“

Kjarninn hefur beint annarri spurn­ingu til ráðu­neyt­is­ins, um hvort sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hafi upp­lýst for­sæt­is­ráð­herra um hvort sein­kunin hefði talist mál­efna­leg eða nauð­syn­leg í þessu til­viki, en eins og rakið hefur verið í fréttum Stund­ar­innar af mál­inu lét skrif­stofu­stjór­inn fresta gild­is­töku lag­anna að eigin frum­kvæði og fékk að sögn ráðu­neyt­is­ins engin fyr­ir­mæli frá yfir­boð­urum sínum um slíkt.

Settur í leyfi en ráðuneytið segir ekki af hverju

Hann var settur í ótíma­bundið leyfi þegar atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu varð kunn­ugt um málið í júlí á þessu ári og starfar ekki lengur í ráðu­neyt­inu. Ráðu­neytið vill ekki segja frá því af hverju starfs­mað­ur­inn var sendur í leyfi, sam­kvæmt frétt Stund­ar­innar í gær.

Hann er sagður hafa misst starf sitt í nýlegum skipu­lags­breyt­ingum þar inn­an­húss og ekki út af þessu máli, en eins og Kjarninn sagði frá nýlega hafa þrír nýir skrif­stofu­stjórar verið ráðnir inn í ráðu­neyti Krist­jáns Þórs. Þeirra á meðal Kolbeinn Árnason, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri LÍU og SFS, sem einmitt mun taka við mál­efnum fisk­eldis í ráðu­neyt­inu.

Samkvæmt ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar um málið fól þessi þriggja daga frestun á gild­is­töku lag­anna í sér að lax­eld­is­fyr­ir­tækin Arctic Sea Farm, Arnarlax og Fiskeldi Aust­fjarða gátu skilað inn frum­mats­skýrslu um lax­eld­is­á­form sín til Skipu­lags­stofn­unar á grund­velli eldri laga um lax­eldi og þar með fengið rekstr­ar­leyfi á grund­velli eldri lag­anna en ekki þeirra nýju, sem var fyr­ir­tækj­unum í hag. Ekki fæst séð að það hafi verið vilji Alþingis að eldri lög­gjöf myndi gilda um þessi til­teknu áform fyr­ir­tækj­anna.

Til stendur að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis ræði málið, en Andrés Ingi Jónsson þing­maður utan flokka óskaði eftir því. Jón Þór Ólafsson for­maður nefnd­ar­innar segir við Kjarnann að mögu­lega verði þetta mál, sem vakið hefur upp ýmsar spurn­ingar, á dag­skrá nefnd­ar­innar á fundi á mið­viku­dag­inn í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár