Útflutningsverðmæti eldisfisks sjöfaldast

Magn slátraðs eld­is­fisks hefur næstum fjór­fald­ast hér á landi á síð­ustu 10 árum og nam rúmum 19 þús­und tonnum árið 2018. Þá hefur útflutn­ings­verð­mæti eld­is­fisks nær sjö­fald­ast á sama tíma­bili og nam 13,1 millj­arði króna í fyrra.

Mikill vöxtur hefur verið í fisk­eldi á Íslandi und­an­farin ár og heild­ar­fram­leiðslu­magn hefur nær fjór­fald­ast á síð­ustu tíu árum. Þá hefur heild­ar­út­flutn­ings­verð­mæti eld­is­fisks nær sjö­fald­ast á sama tíma­bili, úr tæpum tveim millj­örðum króna árið 2008 í 13,7 millj­arða króna árið 2017. Alls námu tekjur fyr­ir­tækja í fisk­eldi rúmum 19 millj­örðum árið 2017. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Framleiðslan fjórfaldast

Magn slátraðs eld­is­fisks hefur næstum fjór­fald­ast hér á landi á síð­ustu 10 árum og nam rúmum 19 þús­und tonnum árið 2018. Uppi­staðan í fisk­eld­inu voru lax og bleikja, en árið 2018 voru fram­leidd 13,5 þús­und tonn af eld­is­laxi og tæp 5 þús­und tonn af bleikju.

Mest aukn­ing hefur orðið í lax­eldi á síð­ustu árum sem fer úr 292 tonnum árið 2008 í tæp 13,5 þús­und tonn árið 2018. Bleikju­eldi hefur verið stöðugra yfir tíma­bilið en tæpum 5 þús­und tonnum var slátrað á síð­asta ári sam­an­borið við 3,1 þús­und tonn árið 2008. Eldi á regn­boga­sil­ungi jókst mikið á tíma­bil­inu og náði hámarki árið 2017 þegar 4,6 þús­und tonnum var slátrað en árið 2018 nam fram­leiðslan ein­ungis 295 tonnum.

Bleikja er alin í ferskvatni, en mikið er um að eldi laxa­seiða og regn­boga­sil­ungs­seiða sé í ferskvatni áður en fisk­arnir eru settir í sjó­kvíar.[adspot]

Ísland í fjórða sæti í framleiðslu eldislax

Á vef Hag­stof­unnar segir að mikil fjár­fest­ing hafi verið í grein­inni á síð­ustu árum en þrátt fyrir það sé eig­in­fjár­hlut­fall sterkt, eða um 51 pró­sent árið 2017. Fjöldi laun­þega hjá fisk­eld­is­fyr­ir­tækjum hefur auk­ist mikið á síð­ustu árum og voru um 435 manns árið 2017. Tekjur fyr­ir­tækja í fisk­eldi námu 19,3 millj­örðum árið 2017 og hafa ríf­lega tvö­fald­ast frá árinu 2015.

Samkvæmt Eurostat, Hagstofu Evr­ópu­sam­bands­ins, var Ísland í fjórða sæti yfir Evr­ópu­lönd sem fram­leiða eld­is­lax árið 2016 og hér var fram­leitt mest magn af bleikju. Samhliða auk­inni fram­leiðslu hefur útflutn­ings­verð­mæti fisk­eld­is­af­urða auk­ist mikið og nam 13,1 millj­arði árið 2018. Útflutn­ingur á laxi árið 2017 var aðal­lega til Banda­ríkj­anna, Bret­lands, Dan­merkur, Hollands og Þýska­lands. Bleikja hefur aðal­lega verið flutt út til Banda­ríkj­anna, Japan, Póllands og Þýska­lands.

Skiptar skoðanir um frumvarp ráðherra um fiskeldi

[links]Fiskeldi hefur verið mikið í umræð­unni hér á landi á und­an­förnum mán­uðum og þá sér­stak­lega umhverfá­hrif af opnum sjó­kvíum. Mikil ólga skap­að­ist um málið þegar úrskurð­ar­nefnd auð­linda- og umhverf­is­mál felldi úr gildi ákvörðun Mat­væla­stofn­unar frá 22. des­em­ber 2017 um að veita Fjarð­ar­lax ehf. rekstr­ar­leyfi fyrir 10.700 tonna árs­fram­leiðslu á laxi í opnum sjó­kvíum í Pat­reks­firði og Tálkna­firði í sept­em­ber í fyrra.

Krist­ján Þór Júl­í­us­son­, ­sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra ,lagði fram frum­varp um breyt­ingu á ýmsum laga­á­kvæðum sem tengj­ast fisk­eldi á Alþingi í lok febr­úar á þessu ári. Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að frum­varpið byggi á sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar og var við und­ir­bún­ing þess byggt að veru­legu leyti á skýrslu starfs­hóps um stefnu­mótun í fisk­eldi sem skil­aði til­lögum sínum með skýrslu hinn 21. ágúst 2017.

Frum­varps­drögin voru birt á sam­ráðs­gátt­inni í des­em­ber síð­ast­liðnum og alls bár­ust 31 umsögn um frum­varp­ið. Í umsögn­unum má finna skiptar skoð­anir um frum­varpið en Lands­sam­band veiði­fé­laga hafa meðal ann­ars gert alvar­legar athuga­semdir við frum­varpið og segir það grafi undan áhættu­mati um erfða­blöndun. Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Icelandic Wild­li­fe Fund hafa einnig gagn­rýnt frum­varpið og segja það stríðs­yfir­lýs­ingu á hendur þeim sem vilji vernda líf­ríki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár