Segir skipulagsmál á höfuðborgarsvæðinu hafa hækkað fasteignaverð

Seðla­banka­stjóri segir þétt­ingu byggðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vera meðal ástæðna þess að fast­eigna­verð hafi hækkað tölu­vert á síð­ustu miss­erum.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Ákvörðun Reykja­vík­ur­borgar og hinna sveit­ar­fé­laga höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um að byggja ekki íbúða­hverfi á nýju landi er stór þáttur í nýlegri hækkun fast­eigna­verðs. Þetta sagði Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri á vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi bank­ans í gær.

Mikið var rætt um hraða hækkun fast­eigna­verðs á fund­inum, en líkt og Kjarninn greindi frá á þriðju­dag­inn hefur verð á fast­eignum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um tæp 14 pró­sent á milli apr­íl­mán­aða 2020 og 2021. Þetta er mesta 12 mán­aða hækkun fast­eigna­verðs sem mæld hefur verið á svæð­inu síðan árið 2017.

Engin húsnæðibóla enn

Samkvæmt nýjasta hefti Pen­inga­mála Seðla­bank­ans hefur hús­næð­is­verð þó hækkað minna en búist var við, ef miðað er við sögu­legt sam­band þess við ráð­stöf­un­ar­tekjur og raun­vexti. Skuld­setn­ing heim­il­anna væri ekki óhóf­leg og því væri ekki um bólu­myndun að ræða enn sem komið er.

Á vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi sagði Ásgeir að nýleg hækkun hús­næð­is­verðs væri að hluta til drifin áfram af vaxta­lækk­unum sem bank­inn þurfti að ráð­ast í til að bregð­ast við efna­hags­á­fall­inu sem fylgdi heims­far­aldr­inum í fyrra, líkt og önnur lönd. Því gæti hún mögu­lega verið byggð á tíma­bundnum þáttum.

Hins vegar sagði hann að aðrir þættir hefðu einnig jákvæð áhrif á fast­eigna­verð. „Mikil hækkun fast­eigna­verðs sem hefur átt sér stað er að ein­hverju leyti und­ir­byggð á skorti á fram­boði og skipu­lags­málum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það er alveg klárt,“ sagði Ásgeir.

„Sú ákvörðun að Reykja­vík hafi ekki brotið nýtt land fyrir nýjar íbúða­byggðir á síð­ari árum, það er stór þáttur,“ bætti hann við. „Eins með hin sveit­ar­fé­lögin, það er ekki verið mikið af nýju landi brotið fyrir hús­næði, það hefur mikil áhrif.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár