Þarf 500 fleiri íbúðir en áður var talið

Byggja þarf enn fleiri íbúðir hér á landi en áður var talið til að slá á óupp­fylltri íbúða­þörf þar sem fólks­fjölgun var umfram spár í fyrra, sam­kvæmt upp­færðri spá Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar.

Óupp­fyllt íbúða­þörf hér á landi nemur 4.450 íbúðum, miðað við upp­færða íbúða­þarfa­grein­ingu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS). Byggja þarf 500 fleiri íbúðir en áður var talið til að slá á þörf­ina, þar sem íbúum fjölg­aði meira en búist var við í fyrra.

Í grein­ing­unni, sem byggir á mann­fjölda­spá Hagstofu, segir að hér þurfi að byggja 27 þús­und nýjar íbúðir fram til árs­ins 2030 til vinna á óupp­fylltri íbúða­þörf og halda í við fólks­fjölgun, en það jafn­gildir tæp­lega þrjú þús­und íbúðum á hverju ári.

Sú lang­tíma­spá helst óbreytt, þrátt fyrir að núver­andi íbúða­þörf hafi auk­ist, þar sem fleiri íbúðir komu á markað í fyrra en gert var ráð fyrir og sömu­leiðis sé útlit fyrir að fleiri íbúðir komi á næstu tveimur árum en upp­haf­lega var talið. Það muni því takast að vinna meira á óupp­fylltu íbúða­þörf­inni í ár og á næsta ári en fyrri spá gerði ráð fyrir.

Karlotta Hall­dórs­dóttir, hag­fræð­ingur í hag­deild HMS, segir að umræðan um lóða­skort hafi risið reglu­lega og er sögð standa í vegi fyrir íbúða­upp­bygg­ingu. Hún bætir við að upp­færða grein­ing stofn­un­ar­innar ætti að vera sveit­ar­fé­lögum hvatn­ing til að vera með til­búnar lóðir til úthlut­unar.

Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri, sagði á vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi í síð­ustu viku að mikil hækkun fast­eigna­verðs sem hefur átt sér stað væri að ein­hverju leyti und­ir­byggð á skipu­lags­málum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Samkvæmt honum væri ákvörðun Reykja­vík­ur­borgar að hafa ekki brotið nýtt land fyrir nýjar íbúða­byggðir á síð­ari árum þar stór þáttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár