Ekki meiri hækkun síðan árið 2017

Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 13,7 pró­sent í apríl á árs­grund­velli, miðað við vísi­tölu Þjóð­skrár. Vísi­talan hefur ekki hækkað jafn­mikið milli ára síðan í des­em­ber 2017.

Fasteignaverð hækkar meira með hverjum mánuðinum sem líður, þar sem eftirspurn er mikil og minna er um nýbyggingar.
Fast­eigna­verð hækkar meira með hverjum mán­uð­inum sem líður, þar sem eft­ir­spurn er mikil og minna er um nýbygg­ingar. Mynd: Anton Brink

Vísitala Þjóð­skrár yfir fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 2,6 pró­sent milli mán­aða og 13,7 pró­sent milli ára í apríl síð­ast­liðnum. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum af heima­síðu Þjóð­skrár.

Samkvæmt frétt frá stofn­un­inni sem birt­ist í gær hafði hún van­metið hækkun vísi­töl­unnar í mars vegna villu í gögn­unum. Hækkunin í mars reynd­ist vera rúm­lega tvö­falt meiri en áður var talið, eða um 3,3 pró­sent milli mán­aða og 8,9 pró­sent milli ára. [adspot]

Tólf mán­aða hækkun vísi­töl­unnar var hins vegar enn meiri í apríl og nam þá 13,7 pró­sentum, líkt og sjá má á mynd hér að neðan. Þetta er mesta hækkun sem mælst hefur síðan í des­em­ber árið 2017, þegar mik­ill þrýst­ingur var á íbúða­mark­aðnum á svæð­inu.

Áframhaldandi hækkun væntanleg

Í nýrri þjóð­hags­spá Íslands­banka, sem birt­ist fyrr í dag, er gert ráð fyrir því að íbúða­verð hækki um 10,5 pró­sent í ár, milli árs­með­al­tal, en að það hægi svo veru­lega á hækk­un­ar­takt­inum næstu ár.

Samkvæmt bank­anum skapar skörp hækkun íbúða­verðs síð­ustu mán­uði þrýst­ing á verð­bólgu. Útlit sé fyrir áfram­hald­andi spennu á fast­eigna­mark­aði á meðan vextir eru í sögu­legu lág­marki, kaup­máttur mik­ill og láns­fjár gott, sem eykur eft­ir­spurn. Enn fremur er útlit fyrir að fram­boðið auk­ist ekki í takti við eft­ir­spurn­ina, en búist er við sam­drætti í íbúða­fjár­fest­ingu næstu tvö árin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár