Gert ráð fyrir styrkjum til einkarekinna fjölmiðla næstu árin í fjármálaáætlun

Þrátt fyrir að frum­varp um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla sé enn til með­ferðar hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd þá er gert ráð fyrir því að styrkirnir verði lög­festir í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar.

Í nýfram­lagðri fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er gert ráð fyrir að fram­lög til fjöl­miðl­unar úr rík­is­sjóði hækki ár frá ári út árið 2025, en standi svo í stað í krónum talið á árinu 2026. Hækkunin á næsta ári er upp á tæp­lega fimm pró­sent, árið eftir verður hún um fjögur pró­sent og svo þrjú pró­sent milli áranna 2024 og 2025. Árið 2026 er gert ráð fyrir að fram­lög úr rík­is­sjóði til fjöl­miðl­unar verði fimm millj­ónum krónum lægri en árið áður á verð­lagi árs­ins 2021. Þegar búið er að taka til­lit til þess að verð­lags­breyt­ingar munu óum­flýj­an­lega verða á tíma­bil­inu liggur fyrir að fram­lög til mála­flokks­ins verða skert á því tíma­bili sem fjár­mála­á­ætlun nær yfir.

Á fjár­lögum árs­ins 2021 var 5.138 millj­ónum króna veitt til fjöl­miðl­unar. Sú upp­hæð skipt­ist þannig að RÚV fær 4.746 millj­ónir króna og 392 millj­ónir króna voru áætl­aðar í styrkja­greiðslur til einka­rek­inna fjöl­miðla. Frumvarp um styrkja­greiðsl­urnar hefur verið lagt fram og er nú til með­ferðar hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd. Heim­ildir Kjarnans herma að vænt­ingar séu til þess að frum­varpið verði afgreitt úr nefnd­inni fljót­lega, og geti þá farið til ann­arrar umræðu í þing­inu.

Áætlunin gerir ráð fyrir styrkjunum

Í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti á mánu­dag, er gert ráð fyrir að fram­lögin verði 5.390 millj­ónir króna á næsta ári, eða tæp­lega fimm pró­sent hærri en í ár. Þau hækka síðan ár frá ári fram til árs­ins 2025, þótt hlut­falls­lega hægi á hækk­un­inni og heilt yfir sé hún fyrst og síð­ast lík­leg til að ná yfir verð­lags­breyt­ingar, og feli þar með ekki í sér raun­hækkun. Árið 2026 verður svo breyt­ing á þegar fram­lögin eru áætlum 5.991 milljón króna, eða fimm millj­ónum króna lægri en árið áður.

[adspot]Tölurnar benda til þess að gert sé ráð fyrir styrkja­kerf­is­greiðslum til einka­rek­inna fjöl­miðla út spá­tím­ann. Sam­kvæmt frum­varp­inu er hægt að sækja um 25 pró­sent end­ur­greiðslu á stuðn­ings­hæfum kostn­aði en stuðn­ingur hvers og eins getur ekki orðið meiri en 25 pró­sent af fjár­veit­ingum til verk­efn­is­ins, sem eru áætl­aðar 400 millj­ónir króna. Það þýðir að ein­stakur styrkur getur aldrei orðið meiri en 100 millj­ónir króna.

Margra ára ferli

Stuðn­ings­greiðslur úr rík­is­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla hafa verið í deigl­unni árum sam­an. Segja má að ferlið hafa haf­ist í lok árs 2016 þegar sett var saman nefnd til að móta til­lögur um styrk­ingu rekstr­ar­um­hverfis einka­rek­inna fjöl­miðla. Drög að frum­varpi um þær voru kynnt af Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, fyrir tveimur árum síðan en komust hins vegar ekki á dag­skrá vor­­­þings þess árs vegna mik­illar and­­­­stöðu við málið hjá hluta þing­­­­flokks Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokks.

[links]Í kjöl­farið voru gerðar breyt­ingar á frum­varp­inu til að koma til móts við þá and­­­stöðu. Í þeim fólst aðal­­­­­lega að stærstu fjöl­miðlar lands­ins myndu fá hærri styrkja­greiðslur en minni fjöl­miðlar myndu skerð­­­ast á mót­i.

Nýtt frum­varp, sem átti að leggj­­­ast fram í sept­­­em­ber 2019, lét þó á sér standa. Lilja mælti á end­­­anum ekki fyrir frum­varpi um að lög­­­­­festa slíkt styrkja­­­kerfi fyrr en í des­em­ber 2019. Frum­varpið var hins vegar svæft í nefnd, aftur að mestu fyrir til­­­stilli þing­­­manna Sjálf­­­stæð­is­­­flokks, og fékk ekki afgreiðslu.

Þess í stað var ákveðið að taka þá fjár­­­muni sem búið var að heita í styrk­ina og breyta þeim í ein­­­skiptis neyð­­­ar­­­styrk vegna COVID-19. Lilju var falið að útfæra greiðslu þeirra í reglu­­­gerð. Það gerði hún í byrjun júlí.

Í reglu­­­gerð­inni var sú breyt­ing gerð á upp­­­runa­­­legri úthlut­un­­­ar­að­­­gerð að sú upp­­­hæð sem stærstu fjöl­miðla­­­fyr­ir­tæki lands­ins gátu sótt í rík­­­is­­­sjóð var tvö­­­­­föld­uð, úr 50 millj­­­ónum króna í 100 millj­­­ónir króna.

Fyrir vikið skert­ust greiðslur sem upp­­­runa­­­lega voru ætl­­­aðar 20 smærri fjöl­miðla­­­fyr­ir­tækjum um 106 millj­­­ónir króna en sama upp­­­hæð flutt­ist til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­­­fyr­ir­tækja lands­ins, Árvak­­­­urs, Sýnar og Torgs.

Það frum­varp sem nú er til umfjöll­unar á þingi er í anda reglu­gerð­ar­inn­ar.

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­­­­­­­fyllir þau skil­yrði sem sett eru fyrir stuðn­­­­­ings­greiðsl­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár