Ragnar Þór endurkjörinn formaður VR

Formaður VR var end­ur­kjör­inn í for­manns­kjöri sem lauk í dag. Þátttaka í for­manns­kjöri hefur aldrei verið jafn mikil og nú.

Ragnar Þór hefur verið formaður VR frá árinu 2017.
Ragnar Þór hefur verið for­maður VR frá árinu 2017. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son var end­ur­kjör­inn for­maður VR í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu til for­manns og stjórnar hjá VR sem lauk í dag. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hlaut Ragnar Þór hlaut 63 pró­sent atkvæða. Ragnar Þór hefur gegnt emb­ætti for­manns síðan árið 2017.

Eini mót­fram­bjóð­andi Ragnars Þórs var Helga Guðrún Jón­as­dóttir en hún er fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Fjarða­byggðar og hefur einnig starfað sem sam­skipta­stjóri Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga. Þá var hún for­maður Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna og hefur sömu­leiðis tekið sæti sem vara­þing­maður flokks­ins. Helga Guðrún hefur áður boðið sig fram til for­manns VR en hún laut í lægra haldi fyrir Stefáni Einari Stef­áns­syni í kosn­ingu árið 2011. [adspot]

Um helstu áherslur Ragnars segir meðal ann­ars á vef um fram­boð hans: „Að víkka út kjara­bar­áttu VR enn frekar og halda áfram bar­átt­unni fyrir öllu því sem styrkir stöðu okkar og eykur lífs­gæði. Vald­efl­ing félags­manna og auk­inn kraftur í starfs­mennta­mál er svarið við fjórðu iðn­bylt­ing­unni með atvinnu­lýð­ræði og meiri áhrifum launa­fólks á vinnu­staðnum og að sjóð­fé­lagar kjósi stjórnir líf­eyr­is­sjóða og tak­marka aðkomu atvinnu­rek­enda að öllu leyti.“

Atkvæða­greiðsla hófst á mánu­dags­morgun, 8. mars, og stóð til hádegis í dag. Á kjör­skrá voru alls 35.920 félags­menn. Atkvæð­is­rétt höfðu allir full­gildir félagar í VR. Þar að auki hafa félagar eldri en 67 ára, sem hætt hafa atvinnu­þátt­töku vegna ald­urs, atkvæð­is­rétt hafi þeir greitt félags­gjald á 67. ald­ursári og höfðu greitt félags­gjöld í að minnsta kosti 50 mán­uði af 60 á síð­ustu fimm árunum áður en þeir urðu 67 ára. Fram hefur komið í frétt Vísis að aldrei hafi þátt­taka verið jafn mikil en um 28 pró­sent félags­manna tók þátt í atkvæða­greiðsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár