Færri opinberir starfsmenn á hverja þúsund íbúa í fyrra en á árinu 2013

Opin­berir starfs­menn eru 27 pró­sent af vinnu­mark­aðnum og launa­kostn­aður rík­is­sjóðs og sveit­ar­fé­laga í fyrra var 473 millj­arðar króna. Sem hlut­fall af heild­ar­út­gjöldum hefur launa­kostn­aður verið nokkuð stöð­ugur síð­ustu ár.

Á meðal þeirra stétta sem teljast til opinberra starfsmanna er þorri heilbrigðisstarfsfólks.
Á meðal þeirra stétta sem telj­ast til opin­berra starfs­manna er þorri heil­brigð­is­starfs­fólks. Mynd: Þorkell Þorkelsson

Árið 2013 voru 113,5 opin­berir starfs­menn á hverja þús­und íbúa í land­inu. Næstu árin lækk­aði fjöld­inn lít­il­lega og fór lægst í 111,7 árið 2018. Í fyrra gerð­ist það hins vegar að í fyrsta sinn í mörg ár að fjöldi opin­berra starfs­manna á hverja þús­und íbúa fór 110, en þá voru þeir 109,5 tals­ins.

Þetta kemur fram á vefnum opin­berum­svif.is sem opn­aður var í síð­ustu viku. Þar er hægt að finna lyk­il­tölur um rekstur hins opin­bera. Gögn síð­unnar eru sótt til Hagstofu Íslands, Skatts­ins og Fjár­sýsl­unnar, sem hefur yfir­um­sjón með bók­haldi og upp­gjöri rík­is­sjóðs.

Á síð­asta ári jókst atvinnu­leysi á Íslandi gríð­ar­lega og náði met­hæðum. Í jan­úar síð­ast­liðnum var heild­ar­at­vinnu­leysi hér­lendis 12,8 pró­sent sem þýddi að alls 26.403 ein­stak­lingar voru án vinnu að öllu leyti eða hluta. Þetta atvinnu­leysi kom fyrst og síð­ast fram á almenna mark­aðnum, og sér­stak­lega í ferða­þjón­ustu. Opin­berir starfs­menn fundu lítið fyrir þreng­ing­unum á atvinnu­mark­aðnum, enda stærstur hluti þeirra starf­andi við ýmis konar þjón­ustu­starf­semi sem hefur ekki verið skorin niður. Það var því við­búið að hlut­fall opin­berra starfs­manna af vinn­andi fólki myndi aukast. Og það gerð­ist.

Um 40 þúsund starfsmenn

Í fyrra voru opin­berir starfs­menn 27 pró­sent af vinnu­mark­aðnum, sem var 1,1 pró­sentu­stigi meira en það var árið áður. Það er þó lægra hlut­fall en var á árunum 2014 (28 pró­sent) og 2015 (27,2 pró­sent), þegar atvinnu­leysi var miklu minna en það mæld­ist á árinu 2020.

Launa­kostn­aður hins opin­bera var 473 millj­arðar króna á síð­asta ári. Þar er um að ræða starfs­fólk bæði rík­is­ins, sem eru um 18 þús­und tals­ins, og það sem starfar hjá sveit­ar­fé­lögum, sem eru um 22 þús­und tals­ins.

[adspot]Í töl­unum sem birtar eru á vefnum opin­berum­svif.is kemur fram að laun þessa hóps af heild­ar­út­gjöldum hins opin­bera er nokkuð stöð­ugur síð­ustu ár, í kringum 32 pró­sent. Í fyrra var það hlut­fall 32,4 pró­sent.

Á tíma­bil­inu sem um ræðir hér að ofan hafa setið þrjár rík­is­stjórnir. Fyrst sat rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks frá 2013 til 2016. Svo sat rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartar fram­tíð í nokkra mán­uði á árinu 2017. Loks er um að ræða sitj­andi rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks sem setið hefur að völdum frá því í lok árs 2017.

Laun opinberra starfsmanna enn mun lægri

Það vekur athygli að hlut­fall launa­kostn­aðar af heild­ar­út­gjöldum hafi hald­ist stöðugt á síð­ustu árum, í ljósi þess að haustið 2016 var gert sam­komu­lag um að sam­ræma opin­bera og almenna líf­eyr­is­kerfið með þeim hætti að opin­berir starfs­menn myndu ekki njóta lengur betri líf­eyr­is­rétt­inda en þeir sem starfa á almennum mark­aði. Í stað­inn áttu þeir að fá betur borgað og meiri launa­hækk­anir næsta ára­tug­inn til að jafna stöðu opin­berra starfs­manna og ann­arra í launa­þróun.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, sem send var til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í sept­em­ber 2016, kom fram að laun opin­berra starfs­manna væru um það bil 16 pró­sent lægri en starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði á þeim tíma. Það var því launa­mun­ur­inn sem þurfti að vinna upp næsta ára­tug­inn umfram almennar launa­hækk­anir.

Það var því launa­mun­ur­inn sem þurfti að vinna upp næsta ára­tug­inn umfram almennar launa­hækk­anir. Innan Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) er full­vinn­andi starfs­fólk á almenna mark­aðnum til að mynda enn með 16,4 pró­sent hærri laun en rík­is­starfs­menn og 32 pró­sent meira en starfs­menn ann­arra sveit­ar­fé­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár