Kröfum gegn starfsmannaleigunni Menn í vinnu og Eldum rétt vísað frá dómi

Kröfum fjög­urra erlendra starfs­manna gagn­vart starfs­manna­leig­unni Menn í vinnu og not­enda­fyr­ir­tæk­inu Eldum rétt um van­greidd laun og miska­bætur var vísað frá í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Stjórn­endur starfs­manna­leig­unnar fá greiddan máls­kostnað.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur vísað frá kröfum fjög­urra erlendra starfs­manna á hendur starfs­manna­leig­unni Menn í vinnu (MIV ehf.) og Eldum rétt, en dómur þessa efnis var kveð­inn upp fyrr í dag. Þessum fjórum fyrr­ver­andi starfs­mönnum Manna í vinnu er auk þess gert að greiða þremur fyrr­ver­andi stjórn­endum og hlut­höfum starfs­manna­leig­unnar, sem farin er í þrot, milljón krónur hverju í máls­kostnað.

Nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur er á þá leið að þar sem gjald­þrota­skiptum á búi starfs­manna­leig­unnar hafi lokið 11. sept­em­ber 2020 verði engum frek­ari kröfum komið fram gagn­vart félag­inu eftir það tíma­mark, að minnsta kosti ekki á meðan þess sé ekki kraf­ist að skiptin verði end­ur­upp­tekin.

Fram kemur í dómnum að stefn­endur hafi ekki upp­lýst um afstöðu skipta­stjóra til krafna þeirra í búið, þrátt fyrir að skorað hafi verið á þá um að gera það. Einnig kemur fram í nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms að fram­burður stefn­enda varð­andi greiðslur til þeirra hafi verið ótrú­verð­ugur og í and­stöðu við gögn sem stefn­endur hefðu sjálfir lagt fram í mál­inu. Þá hafi frá­dráttur af launum starfs­mann­anna verið í sam­ræmi við ráðn­ing­ar­samn­inga þeirra.

Eldum rétt var stefnt í mál­inu sem not­enda­fyr­ir­tæki starfs­manna­leig­unnar, en þetta var í fyrsta sinn sem látið hefur verið reyna á nýlegt ákvæði um keðju­á­byrgð í lögum um starfs­manna­leigur fyrir dómi. Þar sem kröfum starfs­mann­anna fjög­urra á hendur starfs­manna­leig­unni var vísað frá dómi er mál­inu einnig vísað frá gagn­vart Eldum rétt.[links]

Málið hefur verið til með­ferðar í dóms­kerf­inu frá því haustið 2019 og oft verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum, en stétt­ar­fé­lagið Efling fékk lög­manns­stof­una Rétt til þess að gæta hags­muna félags­manna sinna í málum sem varð­aði starfs­manna­leig­una. Fyr­ir­tækið Eldum rétt, sem selur til­búna mat­ar­skammta sem fólk getur eldað heima hjá sér, hefur lengi sagt að fyr­ir­tækið sé dregið inn í þetta dóms­mál að ósekju.

Kröfðust milljóna í miskabætur

Kröfur starfs­mann­anna fjög­urra voru vegna meints ólög­mæts frá­dráttar launa og van­virð­andi fram­komu í þeirra garð af hálfu starfs­manna­leig­unnar og stjórn­enda hennar, snemma árs 2019. Hver og einn starfs­maður krafð­ist 1,5 millj­óna króna í miska­bætur frá stefndu í sam­ein­ingu, auk þeirra fjár­muna sem þeir töldu að hefðu verið dregnir af sér með ólög­mætum hætti.

[adspot]

Sem áður segir var kröfum á hendur starfs­manna­leig­unni og þar af leið­andi Eldum rétt vísað frá sökum þess að búið er að gera upp þrotabú Manna í vinnu.

Stjórn­endur og eig­endur Manna í vinnu, þau Halla Rut Bjarna­dóttir, Unnur Sig­urð­ar­dóttir og Friðrik Örn Jörg­ens­son voru sýknuð af kröf­unum sem beindust per­sónu­lega gegn þeim, að sögn dóms­ins þar sem eng­inn annar en starfs­manna­leigan sjálf, sem er farin í þrot, geti borið laga­lega ábyrgð á meintum ólög­mætum frá­drætti launa­greiðslna.

Ekki óskað eftir úttekt né lögreglurannsókn þrátt fyrir alvarlega ásakanir um slæman aðbúnað

Starfs­menn­irnir fjórir dvöldu í hús­næði að Dalvegi 24 í Kópavogi eftir að þeir komu til lands­ins og sögðu aðstæður þar ómann­úð­legar. Í stefnu máls­ins kom fram að 6-8 manns hefðu gist saman í her­bergi.

Ragnar Ólafsson starfs­maður Eflingar kom fyrir dóm og sagð­ist hafa heim­sótt húsið í febr­úar 2019. Þá hefðu verið þar að minnsta kosti 15 ein­stak­lingar í 5 her­bergjum. Húsnæðið hafi ekki verið boð­legt fyrir svo marga. Fram kom í fréttum á þessum tíma og á ný fyrir dómi að sér­stakt mansal­steymi félags­mála­ráðu­neyt­is­ins hefði verið virkjað vegna þessa máls.

Dómari í mál­inu segir að þrátt fyrir að mjög alvar­legar ásak­anir hafi verið settar fram um ástand hús­næð­is­ins, hafi hvorki verið óskað eftir úttekt á hús­næði sam­kvæmt húsa­leigu­lögum eða lög­reglu­rann­sókn, „sem fullt til­efni hefði þó verið til miðað við þessar ásak­anir.“

Þar að auki hefði engin til­raun verið gerð til þess að leggja fram nafna­lista yfir aðra þá starfs­menn eða leigj­endur sem bjuggu í hús­næð­inu, hvað þá gögn um það hvort þeir hefðu greitt leigu fyrir afnotin eða hvað mikið.

Dómari í mál­inu segir að auki að fram­burður stefn­enda sjálfra hafi verið „afar reik­ull“ um það hve mörg her­bergi hafi verið í rým­inu og og hve margir hafi búið í þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár