Katrín gerir ekki kröfu um að Bjarni segi af sér

For­sæt­is­ráð­herra segir að brot fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á sótt­varna­reglum sem rík­is­stjórnin gerir kröfu um að aðrir fari eftir hafi skaðað traustið milli flokka þeirra. Hún gerir ekki kröfu um afsögn og rík­is­stjórn­ar­sam­starfið mun halda áfram.

Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir.
Bjarni Bene­dikts­son og Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra gerir ekki kröfu um að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segi af sér eftir að hann varð upp­vís af því að brjóta sótt­varna­reglur á Þor­láks­messu.

Þetta kemur fram á Vísi. Þar segir Katrín að hún hafi rætt við Bjarna í gær og tjáð honum óánægju sína með málið. „Svona atvik skaðar traustið á milli flokk­anna og gerir sam­starfið erf­ið­ara. Sér­stak­lega vegna þessa að við stöndum í stór­ræðum þessa dag­ana, hins vegar er sam­staðan innan stjórn­ar­innar verið góð og ég tel okkur hafa náð miklum árangri í því sem við erum að vinna að. Við munum halda því ótrauð áfram.“

Á vef RÚV kemur fram í við­tali við Katrínu að Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi einnig átt sam­tal við Bjarna vegna máls­ins. „Ég held að öllum sé ljóst okkar hugur í þessu máli. Svo verðum við bara að sjá til,“ segir Katrín.

Allt of margir, enginn með grímu og gestur líkti lögreglu við nasista

Greint var frá því í dag­bók lög­regl­unnar í gær­morgun að ónefndur ráð­herra í rík­­is­­stjórn Íslands hefði verið á meðal 40 til 50 gesta sem voru í sam­­kvæmi í sal í útleigu í mið­­borg Reykja­víkur á Þor­láks­messu. Upp­lýst hefur verið að sá salur var lista­safnið í Ásmund­ar­sal. Tölu­verð ölvun var í sam­­kvæm­inu og eng­inn þeirra sem þar voru staddir voru með grímur fyrir and­lit­i.

[adspot]Lögeglan var kölluð til vegna sam­­kvæm­is­ins klukkan 22:25 á Þor­láks­­messu­­kvöldi í kjöl­far þess að henni barst til­­kynn­ing um sér­­staka smit­hættu og brot á reglum um fjölda­­sam­komu. Vísir hefur greint frá því að hún hafi ekki komið á stað­inn fyrr en um 22:50.

Í dag­­bók lög­­regl­unnar segir að veit­inga­­rekstur sé í umræddum sal sem falli undir svo­­kall­aðan flokk II og því ætti sal­­ur­inn að hafa verið lok­aður á þeim tíma sem sam­­kvæmið var stöðv­­að. „Í ljós kom að á milli 40-50 gestir voru sam­an­komin í saln­um, þar á meðal einn hátt­virtur ráð­herra í rík­­is­­stjórn Íslands. Tölu­verð ölvun var í sam­­kvæm­inu og voru flestir gest­anna með áfengi við hönd. Lög­­­reglu­­menn veittu athygli að eng­inn gest­anna var með and­lits­grímur fyrir and­liti. Lög­­­reglu­­menn sögðu að nán­­ast hvergi voru fjar­lægð­­ar­tak­­mörk virt.“

Lög­reglu­menn sáu aðeins þrjá spritt­brúsa í saln­­um. Þeir ræddu við ábyrgð­­ar­­menn skemmt­un­­ar­innar á staðnum og kynnt þeim að skýrsla yrði rit­uð. Í kjöl­farið var gestum vísað út. „Þegar að gestir gengu út voru flestir búnir að setja upp and­lits­grímu. Gest­irnir kvödd­ust margir með faðm­lögum og ein­hverjir með koss­­um. Einn gest­anna var ósáttur með afskipti lög­­­reglu og líkti okkur við nas­ista.“

Bjarni baðst afsökunar

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, greindi frá því í stöðu­upp­færslu á Facebook á ell­efta tím­anum á aðfanga­dag að hann væri sá ráð­herra sem var við­staddur sam­kvæmið.

[links]Þar sagði hann meðal ann­ars: „Ég hafði verið í hús­inu í um fimmtán mín­útur og á þeim tíma fjölg­aði gest­un­um. Rétt við­brögð hefðu verið að yfir­gefa lista­safnið strax þegar ég átt­aði mig á að fjöld­inn rúm­að­ist ekki innan tak­mark­ana. Það gerði ég ekki og ég biðst inni­lega afsök­unar á þeim mis­tök­um.“

Stöðu­upp­færslan í heild sinni var eft­ir­far­andi: „Á heim­leið úr mið­borg­inni í gær­kvöldi fengum við Þóra sím­tal frá vina­hjón­um, sem voru stödd á lista­safn­inu í Ásmund­ar­sal og vildu gjarnan að við litum inn til þeirra og köst­uðum á þau jóla­kveðju. Þegar við komum inn og upp í sal­inn í gær­kvöldi hefði mér átt að verða ljóst að þar voru fleiri en reglur gera ráð fyr­ir.

Eins og lesa má í fréttum kom lög­reglan og leysti sam­kom­una upp. Og rétti­lega. Þarna hafði of margt fólk safn­ast sam­an.

Ég hafði verið í hús­inu í um fimmtán mín­útur og á þeim tíma fjölg­aði gest­un­um. Rétt við­brögð hefðu verið að yfir­gefa lista­safnið strax þegar ég átt­aði mig á að fjöld­inn rúm­að­ist ekki innan tak­mark­ana. Það gerði ég ekki og ég biðst inni­lega afsök­unar á þeim mis­tök­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár