Bjarni Benediktsson sagður hafa verið í samkvæmi sem lögregla leysti upp

Lögregla leysti upp sam­kvæmi í Ásmund­ar­sal í mið­borg Reykja­víkur á ell­efta tím­anum í gær­kvöldi. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra er sagður hafa verið á staðnum ásamt eig­in­konu sinni Þóru M. Bald­vins­dóttur.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins er sagður hafa verið í sam­kvæmi í Ásmund­ar­sal í mið­borg Reykja­víkur í gær­kvöldi, sem lög­regla leysti upp. Bæði Vísir og Frétta­blaðið segja frá þessu.[links]

Bjarni mun hafa verið þar staddur ásamt eig­in­konu sinni, Þóru Margréti Bald­vins­dóttur, en lög­regla sagði frá því í dag­bók sinni í morgun að á milli 40-50 manns hefðu verið í sam­kvæm­inu, þar á meðal „hátt­virtur ráð­herra“ í rík­is­stjórn Íslands.

Allir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar nema Bjarni og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hafa í morgun tjáð fjöl­miðlum að þeir hafi ekki verið á staðnum.

Lögregla sagði frá því að tölu­verð ölvun hefði verið í sam­kvæm­inu og að eng­inn þeirra sem þar voru staddir hefðu verið með grímur fyrir and­lit­i. Lög­reglan var kölluð til vegna sam­kvæm­is­ins klukkan 22:25 á Þor­láks­messu­kvöldi í kjöl­far þess að henni barst til­kynn­ing um sér­staka smit­hættu og brot á reglum um fjölda­sam­komu.

Í dag­bók lög­regl­unnar segir að veit­inga­rekstur sé í umræddum sal sem falli undir svo­kall­aðan flokk II og því ætti sal­ur­inn að hafa verið lok­aður á þeim tíma sem sam­kvæmið var stöðv­að.

„Í ljós kom að á milli 40-50 gestir voru sam­an­komin í saln­um, þar á meðal einn hátt­virtur ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Tölu­verð ölvun var í sam­kvæm­inu og voru flestir gest­anna með áfengi við hönd. Lög­reglu­menn veittu athygli að eng­inn gest­anna var með and­lits­grímur fyrir and­liti. Lög­reglu­menn sögðu að nán­ast hvergi voru fjar­lægð­ar­tak­mörk virt,“ sagði í dag­bók­ar­færslu lög­reglu.

Lögreglu líkt við nasista er hún stöðvaði gleðskapinn

Lög­reglu­menn sáu aðeins þrjá spritt­brúsa í saln­um. Þeir ræddu við ábyrgð­ar­menn skemmt­un­ar­innar á staðnum og kynntu þeim að skýrsla yrði rit­uð. Í kjöl­farið var gestum vísað út.

„Þegar að gestir gengu út voru flestir búnir að setja upp and­lits­grímu. Gest­irnir kvödd­ust margir með faðm­lögum og ein­hverjir með koss­um. Einn gest­anna var ósáttur með afskipti lög­reglu og líkti okkur við nas­ista,“ segir lög­regla í til­kynn­ingu sinni.

Kjarn­inn sendi í morgun fyr­ir­spurn á upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar og óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvaða ráð­herra það hafi verið sem var við­staddur í umræddu sam­kvæmi í gær­kvöldi. Tveir fjöl­miðlar full­yrða nú að það hafi verið Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár