Ráðherra í ólöglegu samkvæmi í gærkvöldi þar sem sóttvarnareglur voru brotnar

Lög­reglan stöðv­aði ólög­legt sam­kvæmi í gær­kvöldi vegna brots á reglum um fjölda­sam­komu og sér­stakrar smit­hættu. Einn gesta líkti lög­reglu við nas­ista. Á meðal gesta var ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands.

Ráðherra í ríkisstjórn Íslands var viðstaddur ólöglegt samkvæmi í gær. Lögregla hefur ekki tilgreint um hvaða ráðherra er að ræða.
Ráðherra í rík­is­stjórn Íslands var við­staddur ólög­legt sam­kvæmi í gær. Lögregla hefur ekki til­greint um hvaða ráð­herra er að ræða.

Ónefndur ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands var á meðal 40 til 50 gesta sem voru í sam­kvæmi í sal í útleigu í mið­borg Reykja­víkur í gær­kvöldi. Töluverð ölvun var í sam­kvæm­inu og eng­inn þeirra sem þar voru staddir voru með grímur fyrir and­liti.

Frá þessu er greint í dag­bók lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en hún var kölluð til vegna sam­kvæm­is­ins klukkan 22:25 á Þor­láks­messu­kvöldi í kjöl­far þess að henni barst til­kynn­ing um sér­staka smit­hættu og brot á reglum um fjölda­sam­komu.

Í dag­bók lög­regl­unnar segir að veit­inga­rekstur sé í umræddum sal sem falli undir svo­kall­aðan flokk II og því ætti sal­ur­inn að hafa verið lok­aður á þeim tíma sem sam­kvæmið var stöðvað. „Í ljós kom að á milli 40-50 gestir voru sam­an­komin í salnum, þar á meðal einn hátt­virtur ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Töluverð ölvun var í sam­kvæm­inu og voru flestir gest­anna með áfengi við hönd. Lög­reglu­menn veittu athygli að eng­inn gest­anna var með and­lits­grímur fyrir and­liti. Lög­reglu­menn sögðu að nán­ast hvergi voru fjar­lægð­ar­tak­mörk virt.“

[adspot]Lög­reglu­menn sáu aðeins þrjá spritt­brúsa í salnum. Þeir ræddu við ábyrgð­ar­menn skemmt­un­ar­innar á staðnum og kynnt þeim að skýrsla yrði rituð. Í kjöl­farið var gestum vísað út. „Þegar að gestir gengu út voru flestir búnir að setja upp and­lits­grímu. Gest­irnir kvödd­ust margir með faðm­lögum og ein­hverjir með kossum. Einn gest­anna var ósáttur með afskipti lög­reglu og líkti okkur við nas­ista“.

Kjarninn hefur sent fyr­ir­spurn á upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar og óskað eftir upp­lýs­ingum um hvaða ráð­herra það hafi verið sem var við­staddur í umræddu sam­kvæmi í gær­kvöldi.

Á vef RÚV segir að Kristján Þór Júl­í­us­son hafi verið á Akureyri í gær­kvöldi og Sigurður Ingi Jóhanns­son heima hjá sér í sveit­inni í Hruna­manna­hreppi. „Ásmundur Einar Daðason sagð­ist hafa verið í Pictionary með dætrum sínum. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son sagð­ist vera uppi í sveit og ekki þekkja til máls­ins. Lilja Dögg Alfreðs­dóttir sagði í sam­tali við frétta­stofu að hún hefði ekki verið í umræddum gleð­skap.“

Á vef Vísis segir Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir að hún hafi ekki hafa verið í sam­kvæm­inu. „Hún hafi rölt um mið­bæ­inn í gær­kvöldi, náð sér í mat og verið komin heim snemma í gær­kvöldi. Þá seg­ist Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir hafa verið hjá for­eldrum sínum á Akranesi í gær­kvöldi. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son kveðst þá vera í Skaft­ár­tungum. Hann hafi verið þar síðan í fyrra­kvöld.“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var heldur ekki í umræddu sam­kvæmi.

Ráðherra áður gert mistök

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ráð­herra verður upp­vís að því að taka þátt í athæfi þar sem sótt­varna­reglur sem almenn­ingur er beð­inn um að virða voru ekki virtar. Um miðjan ágúst birt­ist mynd á sam­fé­lags­miðlum af Þordísi Kolbrúnu, sem er ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og vara­for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og vin­konum hennar þar sem þær stóðu saman í einum hnapp.

Myndin sætti mik­illi gagn­rýni í ljósi tveggja metra regl­unnar svoköll­uðu sem var ekki við­höfð við þær mynda­tök­­ur.

Rík­is­stjórn­in, sem Þór­dís Kol­brún situr í, hafði nokkrum vikum áður hert reglur vegna þess að önnur bylgja kór­ónu­veirusmita var að gera vart við sig. Á blaða­manna­fundi í lok júlí sagði Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra: „„Þar sem fólk kemur saman og í allri starf­­semi verði tveggja metra reglan við­höfð á milli ein­stak­l­inga. Það er að segja að hún verði ekki lengur val­­kvæð heldur skyld­u­bund­in. Þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjar­lægð milli ótengdra ein­stak­l­inga þá er kraf­ist not­k­unar and­lits­grímu sem hylur nef og munn.“

[links]Rúmri viku eftir að hertar aðgerðir tóku gildi skrif­aði Þór­­dís grein í Morg­un­­blaðið með fyr­ir­­sögn­inni: „Þetta veltur á okk­­ur“. Þar fjall­aði hún um þann upp­­takt í smitum sem hafði verið frá lokum júlí­mán­að­­ar. Í grein­inni sagði: „Auð­vitað von­um við öll að þetta bak­slag end­­­ur­taki sig ekki og kúrf­an fletj­ist út. Í því skipt­ir mestu að við, hvert og eitt okk­­­ar, gæt­um að sótt­­­vörn­um í dag­­­legu líf­i.“

Föstu­dag­inn 15. ágúst ákváðu stjórn­völd að herða veru­­lega tak­­mark­­anir á landa­­mærum Íslands, sem í reynd lok­uðu land­inu að mestu fyrir komu ferða­­manna. Við það tæki­færi skrif­aði Þór­dís Kol­brún í stöðu­upp­færslu á Face­book að áfram væru „per­­són­u­bundnar sótt­­varnir langöflug­asta tækið til að berja þessa veiru niður og hert­­ari aðgerðir á landa­­mærum koma aldrei í stað­inn fyrir það. Við búum í góðu sam­­fé­lagi. Sterku sam­­fé­lagi. Og við erum heppin með það teymi sem ráð­­leggur okkur í gegnum þann þátt þessa risa stóra verk­efn­­is.“

Vin­konu­hitt­ing­ur­inn sem röð mynda voru teknar af átti sér svo stað dag­inn eft­ir, laug­ar­dag­inn 16. ágúst.

Þórdis við­ur­kenndi að hún hefði gert mis­tök og baðst afsök­unar. Í við­tali við Morg­un­blaðið í byrjun októ­ber sagði hún um mynda­tök­una: „Hún var takt­laus og mis­tök, svona eftir á að hyggja. Mynd­málið var þannig og tíma­setn­ingin rétt eftir að til­kynnt var um afdrifa­ríkar ákvarð­anir um komur til lands­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár