Slæmt að ráðherrar fari ekki eftir sóttvarnareglum og kröfur um afsögn Bjarna

Stjórn­mála­menn og þeir sem hafa með sótt­varna­að­gerðir að gera hafa tjáð sig um veru Bjarna Bene­dikts­sonar í gleð­skap sem var leystur upp af lög­reglu sem braut í bága við sótt­varna­reglur.

Greint var frá því í dag­bók lög­regl­unnar í morgun að ónefndur ráð­herra í rík­­is­­stjórn Íslands hefði verið á meðal 40 til 50 gesta sem voru í sam­­kvæmi í sal í útleigu í mið­­borg Reykja­víkur í gær­­kvöldi. Upp­lýst hefur verið að sá salur var lista­safnið í Ásmund­ar­sal. Tölu­verð ölvun var í sam­­kvæm­inu og eng­inn þeirra sem þar voru staddir voru með grímur fyrir and­lit­i. 

Lög­reglan leysti upp sam­kvæmið vegna þess að það braut í bága við sótt­varna­reglur og greindi frá því í morgun að á meðal gesta hefði verið ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, setti svo stöðu­upp­færslu á Facebook klukkan 10:39 í morgun þar sem hann stað­festi að hann hefði verið umræddur ráð­herra. Þar sagði meðal ann­ars: „Ég hafði verið í hús­inu í um fimmtán mín­útur og á þeim tíma fjölg­aði gest­un­um. Rétt við­brögð hefðu verið að yfir­gefa lista­safnið strax þegar ég átt­aði mig á að fjöld­inn rúm­að­ist ekki innan tak­mark­ana. Það gerði ég ekki og ég biðst inni­lega afsök­unar á þeim mis­tök­um.“

Viðbrögð við athæfi Bjarna hafa flest verið á einn veg, það hefur verið for­dæmt en þó af mis­mik­illi hörku. Hér eru þau helstu:

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á RÚV:

„Það er bara mjög slæmt þegar for­ystu­menn þjóð­ar­innar fara ekki eftir þessum reglum[...]Ef það er rétt sem þar kemur fram þá er þetta klár­lega brot á sótt­varn­ar­reglum og mér finnst það miður að þetta hafi gerst.“

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra á Vísi:

„Við vitum það að sótt­vara­ráð­staf­anir eru til þess að fara eftir þeim. Það er mjög mik­il­vægt að við gerum það öll, og alveg jafn mik­il­vægt að við gerum það í dag eins og aðra daga sem við höfum verið að glíma við Covid.“

Rögn­valdur Ólafs­son, að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjónn hjá al­manna­vörnum á vef Fréttablaðsins:

„Þetta eru fyrst og fremst bara von­brigði eins og í hvert sinn sem við fáum svona fréttir[...]Fólk veit alveg hvað það er sem við erum að reyna að gera og af hverju. En ég er bara mjög von­svik­inn og leiður.“

[adspot]Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, á RÚV:

„Mín skoðun er sú að hann hlýtur að íhuga það alvar­lega að segja af sér. Ef hann er ekki að gera það þá hljóta sam­starfs­flokk­arnir tveir að pressa á hann vegna þess að ég trúi varla að hann hafi stuðn­ing allra ann­arra ráð­herra eða meiri­hluta Alþingis.“

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, á mbl.is:

„Þetta er ófor­svar­an­leg hegðun sem ráð­herra í rík­is­stjórn get­ur ekki reynt að af­saka með jafnaumk­un­ar­verðum hætti og hann ger­ir í þess­um pistli sínum[...]Þetta er ein­kenn­andi fyr­ir rík­is­stjórn sem seg­ir eitt og ger­ir annað.“

Aðspurð sagði hún uppá­kom­una vera „af­sagn­ar­sök“.

Þórhildur Sunna í stöðuuppfærslu á Facebook:

„Bjarni sagði ekk­ert í gær um þetta “óhapp” sitt. Hann lét ekki ná í sig í dag til þess að við­ur­kenna þessi “mis­tök” sín. Eitthvað finnst mér holur hljómur í þessu alveg óvart narra­tívi hjá honum. Og mikið finn­logi ein­log­ist mér sorg­legt að heyra ekki múkk frá sam­ráð­herrum hans. Sem láta þessa aumu afsök­un­ar­beiðni vera einu skila­boð rík­is­stjórn­ar­innar til þjóð­ar­innar á aðfanga­dag.

[links]Ætli þau séu ekki bara að læra af þessu? Ætli við fáum að heyra ein­hverja við­líka snilld og um dag­inn þegar BB varð upp­vís að því að vera ekki í sama sam­fé­lagi og við hin? Eitthvað eins og þetta:

„Ég hef ekki verið og er ekki hlynnt þeirri afstöðu að smætta kerf­is­lægan vanda í ein­stök sið­ferði­leg álita­mál sem eru afleið­ing auk­innar ein­stak­lings­hyggju og ein­stak­ling­svæð­ingar stjórn­mál­anna.““

Jón Magnús Jóhannesson, deildarlæknir á Landsspítalanum sem hefur meðal annars skrifað um COVID-19 inn á vísindavef Háskóla Íslands, á Facebook:

„Ég vil vera afdrátt­ar­laus, skýr og ótví­ræður hérna.

1. Þessi sam­koma var fárán­legt, skammar­legt brot á sótt­varna­reglum.

2. Þessi sam­koma gæti fræði­lega hleypt af stað ofur­dreifi­við­burði COVID-19 hér­lendis. Það gæti hrein­lega leitt til dauðs­falla. Ég er ekki að ýkja hérna.

3. Skort­ur­inn á sótt­vörnum í þess­ari sam­komu, sem var nú þegar að brjóta sam­komu­tak­mark­anir, lýsir fárán­legum dóm­greind­ar­bresti og virð­ing­ar­leysi gagn­vart alþjóð.

4. Þeir sem skipu­lögðu þessa sam­komu ættu ein­fald­lega að skamm­ast sín.

5. Téður ráð­herra ætti að segja af sér - taf­ar­laust. Fyrir þátt­tak­endur þessa teitis er þetta skömm en fyrir ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands er þetta algjör for­sendu­brestur. Það er erfitt að lýsa því nákvæm­lega hversu mikið dóm­greindar- og virð­ing­ar­leysi er hér á ferð­inni.

6. Ég vil biðla til allra sem hafa skoðun á þessu máli að deila henni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár