Bjarni var í samkvæminu: „Ég biðst innilega afsökunar“

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er sá ráð­herra sem var í sam­kvæm­inu sem lög­reglan leysti upp í gær vegna brota á sótt­varna­reglum. Bjarni segir að rétt við­brögð hefðu verið að yfir­gefa sam­kvæmið.Það gerði hann ekki.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er sá ráð­herra sem var við­staddur sam­kvæmi sem lög­reglan leysti upp í gær­kvöldi vegna brota á sótt­varna­reglum. Í stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem Bjarni gengst við þessu segir hann meðal ann­ars: „Ég hafði verið í hús­inu í um fimmtán mín­útur og á þeim tíma fjölg­aði gest­unum. Rétt við­brögð hefðu verið að yfir­gefa lista­safnið strax þegar ég átt­aði mig á að fjöld­inn rúm­að­ist ekki innan tak­mark­ana. Það gerði ég ekki og ég biðst inni­lega afsök­unar á þeim mis­tökum.“

[links]Stöðu­upp­færslan í heild sinni er eft­ir­far­andi: „Á heim­leið úr mið­borg­inni í gær­kvöldi fengum við Þóra sím­tal frá vina­hjónum, sem voru stödd á lista­safn­inu í Ásmund­ar­sal og vildu gjarnan að við litum inn til þeirra og köst­uðum á þau jóla­kveðju. Þegar við komum inn og upp í sal­inn í gær­kvöldi hefði mér átt að verða ljóst að þar voru fleiri en reglur gera ráð fyrir.

Eins og lesa má í fréttum kom lög­reglan og leysti sam­kom­una upp. Og rétti­lega. Þarna hafði of margt fólk safn­ast saman.

Ég hafði verið í hús­inu í um fimmtán mín­útur og á þeim tíma fjölg­aði gest­unum. Rétt við­brögð hefðu verið að yfir­gefa lista­safnið strax þegar ég átt­aði mig á að fjöld­inn rúm­að­ist ekki innan tak­mark­ana. Það gerði ég ekki og ég biðst inni­lega afsök­unar á þeim mis­tökum.“

Töluverð ölvun og 40-50 manns sem virtu ekki reglur

Greint var frá því í dag­bók lög­regl­unnar í morgun að ónefndur ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands hefði verið á meðal 40 til 50 gesta sem voru í sam­kvæmi í sal í útleigu í mið­borg Reykja­víkur í gær­kvöldi. Upplýst hefur verið að sá salur var lista­safnið í Ásmund­ar­sal. Tölu­verð ölvun var í sam­kvæm­inu og eng­inn þeirra sem þar voru staddir voru með grímur fyrir and­lit­i.

[adspot]Lögeglan var kölluð til vegna sam­kvæm­is­ins klukkan 22:25 á Þor­láks­messu­kvöldi í kjöl­far þess að henni barst til­kynn­ing um sér­staka smit­hættu og brot á reglum um fjölda­sam­komu.

Í dag­bók lög­regl­unnar segir að veit­inga­rekstur sé í umræddum sal sem falli undir svo­kall­aðan flokk II og því ætti sal­ur­inn að hafa verið lok­aður á þeim tíma sem sam­kvæmið var stöðv­að. „Í ljós kom að á milli 40-50 gestir voru sam­an­komin í saln­um, þar á meðal einn hátt­virtur ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Tölu­verð ölvun var í sam­kvæm­inu og voru flestir gest­anna með áfengi við hönd. Lög­reglu­menn veittu athygli að eng­inn gest­anna var með and­lits­grímur fyrir and­liti. Lög­reglu­menn sögðu að nán­ast hvergi voru fjar­lægð­ar­tak­mörk virt.“

Lög­reglu­menn sáu aðeins þrjá spritt­brúsa í saln­um. Þeir ræddu við ábyrgð­ar­menn skemmt­un­ar­innar á staðnum og kynnt þeim að skýrsla yrði rit­uð. Í kjöl­farið var gestum vísað út. „Þegar að gestir gengu út voru flestir búnir að setja upp and­lits­grímu. Gest­irnir kvödd­ust margir með faðm­lögum og ein­hverjir með koss­um. Einn gest­anna var ósáttur með afskipti lög­reglu og líkti okkur við nas­ista.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár