Sótt að Schengen

Árið 2020 hefur tekið á Schengen-sam­starfið. Landamæra­lok­anir vegna far­ald­urs­ins, flótta­manna­mál og hryðju­verka­árásir hafa vakið upp spurn­ingar um hvaða stefna skuli mörkuð og lík­legt er að sam­starfið taki ein­hverjum breyt­ingum.

Schengen-samstarfið hefur átt undir högg að sækja vegna veirufaraldursins. Víða hefur innri landamærum svæðisins verið lokað. Þessi mynd er frá pólska landamærabænum Cieszyn í sumar, þar sem landamæralokun Tékka var mótmælt.
Schengen-sam­starfið hefur átt undir högg að sækja vegna veiru­far­ald­urs­ins. Víða hefur innri landa­mærum svæð­is­ins verið lokað. Þessi mynd er frá pólska landamæra­bænum Cieszyn í sumar, þar sem landamæra­lokun Tékka var mót­mælt. Mynd: EPA

Schengen er sam­starf 26 Evr­ópu­ríkja um afnám vega­bréfa­eft­ir­lits á innri landa­mærum ríkj­anna. Til­gang­ur­inn er að auð­velda hindr­un­ar­lausa för fólks milli ríkja álf­unnar. Grund­völlur þess að þetta sé mögu­legt er aukið sam­starf yfir­valda hvað varðar lög­- og landamæra­gæslu og öfl­ugra eft­ir­lit við ytri landa­mæri aðild­ar­ríkj­anna. Schengen-sam­starfið hefur gengið nokkuð snurðu­laust, á meðan ekki reyndi meira á það, en auk­inn flótta­manna­straumur til Evrópu frá Norður-Afríku og Mið-Aust­ur­löndum, auk hryðju­verka­árása og COVID-19, veldur nú auknum erf­ið­leikum í sam­starf­inu.

Flóttamannastraumur og COVID-19 ógnar Schengen

Samfara aðlögun að sam­eig­in­legum reglum Schengen hafa ríkin ávallt haldið áfram til­tek­inni stjórn á landa­mærum sínum þó ekki væri kraf­ist fram­vís­unar vega­bréfs og landa­mærin væru í raun opin. Flótta­manna­vand­inn og hryðju­verka­árás­irnar 2015 hafa reynt mikið á sam­starfið og sýnt fram á van­kanta þess­arar aðferðar, hvort sem um var að ræða mis­tök ríkj­anna hvað varðar landamæra­eft­ir­lit, erf­ið­leika við að sam­ræma mót­töku hæl­is­leit­enda eða brotala­mir í sam­starfi lög­reglu. Þegar straumur flótta­fólks frá Sýrlandi jókst varð til keðju­verkun sem leiddi til lok­unar landamæra víðs vegar innan Schengen-svæð­is­ins, enda hafa ríkin hvert um sig þar tíma­bundið tals­vert svig­rúm.

Eftir nokk­urt hlé hafa svo hryðju­verka­menn látið til sín taka í Evrópu, nú síð­ast í Frakk­landi og hefur Emanuel Macron Frakk­lands­for­seti kallað eftir end­ur­skoðun á Schengen-sam­starf­inu. Hann hafði fyrr á árinu hvatt for­ystu­fólk Evr­ópu­sam­bands­ins til að inn­leiða eft­ir­lit á innri landa­mærum tíma­bundið. Hefur hann varað við að verði ekki brugð­ist við með mark­vissum hætti gæti það þýtt aukna hættu á enda­lokum sam­starfs­ins.

COVID-19 hefur svo enn frekar reynt á þol­rifin, en þegar far­ald­ur­inn fór að herja á Evrópu gripu mörg ríki til þess ráðs að loka landa­mærum sínum nema vegna bráð­nauð­syn­legra erinda. Svart­sýn­ustu spár gerðu m.a. ráð fyrir því að þetta gæti riðið sam­starf­inu að fullu og markað enda­lok þess. Þegar rykið sest er hins vegar ólík­legt að það verði reyndin. Þó er lík­legt að far­ald­ur­inn muni hafa ein­hver langvar­andi áhrif á sam­starfið og það taki breyt­ingum, byggt á reynsl­unni af ann­ars vegar COVID-19 og hins vegar flótta­manna­vand­anum.

Hvað er í húfi?

Schengen gegnir mik­il­vægu hlut­verki fyrir Evr­ópu­sam­run­ann í heild sinni. Sér í lagi innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem fjór­frelsið er grund­vall­ar­at­riði, einkum hvað varðar frjálsa för vöru og fólks. Efna­hags­legur kostn­aður af lokun innri landamæra er met­inn tölu­vert hærri en afleið­ingar af óheftum straumi fólks og þeim ókostum sem honum fylgja – þar á meðal auknum straumi flótta­manna um álf­una.

Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sóknar Evr­ópu­þings­ins frá árinu 2016 á áhrifum sem afnám Schengen hefði gæti beinn kostn­aður aðild­ar­ríkj­anna numið allt að 18 millj­örðum evra árlega. Þar er áætlað að kerf­is­bundið landamæra­eft­ir­lit myndi kosta þá sem fara um landa­mæri Evrópu á milli 10 til 15 millj­arða evra. Lauslega áætl­aði gæti árlegur kostn­aður því numið um 25­–30 millj­örðum evra, sem er lít­ill hluti heild­ar­hag­kerfis Evr­ópu­ríkja en gríð­ar­legar fjár­hæðir engu að síður.

Upptaka innri landamæra myndi einnig leiða til trufl­unar á dag­legum ferðum fjölda fólks í atvinnu­skyni og hindra við­skipta­ferða­lög yfir landa­mæri. Slíkt myndi hafa nei­kvæð áhrif á líf millj­óna manna og hefta atvinnu­starf­semi. Árið 2018 fóru yfir 1,9 millj­ónir Evr­ópu­búa yfir landa­mæri til vinnu. Fjöldi rík­is­borg­ara innan ESB sem fer til vinnu í öðru Schengen-landi jafn­gildir í raun nærri einu pró­senti allra atvinnu­bærra manna álf­unnar.

Möguleg áhrif COVID-19 á Schengen

Þjóð­ern­is­hyggja og and­staða við hnatt­væð­ingu og fólks­flutn­inga hefur farið vax­andi í Evrópu á und­an­förnum árum og m.a. ýtt undir kröfur um upp­töku innra landamæra­eft­ir­lits. Nú þegar far­ald­ur­inn geisar hefur þessi mál­flutn­ingur að ein­hverju leyti fengið byr í seglin og viss hætta á að fjari undan sam­starf­inu. Þó má full­yrða að algert hrun Schengen og aft­ur­hvarf til lok­unar landamæra sé frekar ólík­leg nið­ur­staða, en í nýlegri skýrslu eru nefndir nokkrir mögu­leikar á aðlögun sam­starfs­ins sem gætu komið til kasta sam­starfs­ríkj­anna á næst­unni.

Einn val­kost­ur­inn gæti verið í þá átt að Schengen eins og það lítur út í dag yrði skipt niður í nokkur minni svæði. Þar gætu t.d. Norð­ur­löndin verið eitt svæði og Ben­eluxlöndin ásamt Frakk­landi og Þýska­landi annað, svo dæmi séu tekin.

Annar mögu­leiki, sem einnig gæti farið saman við svæða­skipt Schengen, væri að ein­hver ríki myndu yfir­gefa sam­bandið, annað hvort af sjálf­viljug eða til­neydd vegna þrýst­ings ann­arra ríkja. Má þar nefna að Danir hafa frá upp­hafi slegið varnagla við Schengen og sömdu, ásamt Bretum og Írum, sér­stak­lega um að und­an­skilja utan­ríkis- og dóms­mál gagn­vart ESB. Danir hafa þó sjálf­vilj­ugir inn­leitt reglur Schengen hingað til en ský­laus krafa um opin landa­mæri gæti haft þau áhrif að þeir hyrfu frá þeirri stefnu og yfir­gæfu sam­bandið. Þátttaka þeirra er jú liður í við­haldi nor­ræna vega­bréfa­sam­bands­ins, sem aftur var ein af rök­semd­unum fyrir því að Schengen-sam­starfið var opnað til EFTA-ríkj­anna.

Nú þegar hillir undir bólu­efni gegn COVID-19 gætu mál þró­ast á þann veg að fram­kvæmda­stjórn ESB þyrfti áfram að sjá í gegnum fingur sér varð­andi beit­ingu und­an­þágu­heim­ilda Schengen-sam­starfs­ins, sem yfir­leitt er ætlað að vera tíma­bundnar og ítar­lega rök­studdar. Þannig gætu löndin haldið áfram að fram­lengja landamæra­eft­ir­lit, með vísan til almenns ástands vegna sótt­varna o.þ.h. án ítar­legri rök­stuðn­ings sem kallað væri eftir við eðli­legri aðstæður.

Slíkar aðstæður þar sem „tíma­bundið“ landamæra­eft­ir­lit drægist á lang­inn myndu leiða til kostn­aðar vegna við­halds landamæra­stöðva, bið­tíma við landa­mæri og hafa hamlandi áhrif almennt. Hann væri engu að síður lít­ill í sam­an­burði við þann kostnað sem alhliða end­ur­upp­taka landamæra hefði í för með sér.

Við­var­andi óvissu­á­stand mun óhjá­kvæmi­lega kalla á ein­hver póli­tísk átök milli aðild­ar­ríkja þar sem löndin hafa mis­mikla þörf fyrir aukið landamæra­eft­ir­lit, og verða þá lönd á ytri landa­mærum Schengen-svæð­is­ins í eld­lín­unni. Sem dæmi má nefna að þegar flótta­manna­bylgjan var sem mest árið 2017 var sér­tækum aðgerðum beitt á þýskum flug­völlum gegn grískum flug­fé­lögum, sem leiddi til auk­innar spennu í sam­skiptum milli Þýska­lands og Grikk­lands. Þau ríki sem mest yrðu fyrir barð­inu á því óhag­ræði sem lok­an­irnar yllu tækju því vart þegj­andi og myndu setja mikla pressu á Fram­kvæmda­stjórn ESB um úrbætur.

Minna áþreif­an­legt tjón, sem hefði engu að síður alvar­legar afleið­ingar til lengri tíma litið, gæti komið fram í veru­legri hnignun ýmis­konar starf­semi og virkni sam­skipta fyr­ir­tækja og borg­ara þvert á landa­mæri, og þar með Evr­ópu­sam­run­ans almennt. Þó Schengen héldi í grund­vall­ar­at­riðum gæti þetta skaðað innri mark­að­inn og leitt til minna trausts á evr­unni. Slíkt er erfitt að meta til fjár, en sýnir hversu við­kvæmt og mik­il­vægt Schengen-sam­starfið er fyrir Evr­ópu­sam­starfið í heild, burt­séð frá beinu fjár­hags­legu tjóni eða óþæg­indum.

Ísland og Schengen

Ísland er aðili að Schengen-sam­starf­inu, með landa­mæri sem skil­greind eru sem ytri landa­mæri svæð­is­ins vegna teng­inga alþjóða­flug­vall­ar­ins í Keflavík, þrátt fyrir að vera eyja og eiga engin sam­eig­in­leg landa­mæri að Evrópu.

Fullyrða má að kost­irnir við Schengen vegi mun þyngra en ókost­irnir þó gjarnan heyr­ist raddir um hið gagn­stæða. Því er þá haldið fram að vegna opinna landamæra flæði hér inn alls konar óæski­legt fólk sem m.a. séu hluti af blóm­strandi glæp­a­starf­semi. Schengen er hins vegar ekki vanda­málið hvað þetta varðar. Meintir afbrota­menn geta dvalist hér eins og aðrir EES-borg­arar og ferð­ast hindr­un­ar­laust á meðan þeir eru ekki eft­ir­lýstir, og eru ekki með fyr­ir­ætl­anir sínar skráðar í vega­bréfin sín.[links]

Vega­bréfa­eft­ir­lit myndi því engu breyta um þetta, en hins vegar tryggir Schengen aðgang lög­gæslu, bæði á landa­mærum og inn­an­lands, að eins góðum upp­lýs­ingum og mögu­legt er um við­kom­andi meinta afbrota­menn. Hvernig lög­reglan er svo í stakk búin til að halda uppi eft­ir­liti með afbrotum og glæp­a­starf­semi er það sem skiptir máli. Hugs­an­lega er vand­inn frekar sá að íslensk stjórn­völd nýti ekki eins og kostur er þessi hlunn­indi Schengen-sam­starfs­ins, ekki vegna þess að vilj­ann skorti, heldur er ástæðan frekar hið hefð­bundna: mann­ekla og fjár­skortur.

Ástandið vegna COVID-19 er for­dæma­laust eins og oft hefur heyrst. En jafn­vel þó íslensk stjórn­völd líti svo á að Ísland hafi ákveðna sér­stöðu vegna legu sinnar verður ávallt krafa um að hér sé við­haldið þeim við­bún­aði sem til er ætl­ast á ytri landa­mær­unum.

Evr­ópu­sam­bandið setti t.a.m. þrýst­ing á öll Schengen-ríkin að ytri landa­mær­unum yrði lokað fyrir ónauð­syn­legum ferðum þegar COVID-19 far­ald­ur­inn braust út fyrr á árinu. Vegna þessa komu upp vanga­veltur um hvort Ísland ætti að fara á svig við þær línur sem lagðar voru í sam­starf­inu, m.a. vegna eðli­legs og við­bú­ins þrýst­ings frá hags­muna­að­ilum inn­an­lands. Íslensk stjórn­völd hafa þó að mestu gengið í takt við Schengen og eru ekki lík­leg til að koll­varpa sam­starf­inu vegna slíkra mála, þó vissu­lega sé ákveðið svig­rúm eins og nefnt hefur verið hér að framan.

[adspot]

Stóru spurn­ing­arnar fyrir Ísland, eftir sem áður, eru hvort kost­irnir við þátt­töku í Schengen-sam­starf­inu vegi þyngra en hugs­an­legir gallar, hvort mögu­leikar til upp­lýs­inga­öfl­unar og lög­gæslu­sam­starfs og -sam­ræm­ingar séu nýttar sem best og hvort með­höndlun á umsóknum um dvalar- og atvinnu­leyfi borg­ara frá svo­nefndum „þriðju ríkjum“, þ.e. ríkja utan EES og Schengen-sam­starfs­ins, séu of íþyngj­andi.

Þar gæti mann­eklan og fjár­skort­ur­inn einmitt ýtt „kerf­inu“ til að bregð­ast við slíku skv. ströng­ustu skil­yrðum, en ekki í sam­ræmi við þann sveigj­an­leika sem sam­starfið þó býður upp á. Það er þó hugs­an­lega til­efni til sér­stakrar umfjöll­unar.

Schengen mun lifa

COVID-19 ástandið hefur í mörgum til­fellum gert flókin mál enn flókn­ari, þar koma til efna­hags­legir hags­munir, mál­efni flótta­manna og hæl­is­leit­enda, þar sem mann­úð­ar­sjón­ar­mið fá nú meira vægi en áður. Því gæti verið vara­samt að draga of sterkar álykt­anir um áhrif alls þessa á Schengen-sam­starfið á meðan far­ald­ur­inn gengur yfir.

Schengen er gríð­ar­lega flókið í fram­kvæmd og hefur mætt sífellt erf­ið­ari áskor­unum und­an­farin ár. Ætla má að COVID-19 geti gengið nærri sam­starf­inu en um leið varpað ljósi á kosti þess. Viður­eignin við far­ald­ur­inn hefur kennt að sam­starf er af hinu góða. Þó upp komi vanda­mál og tíma­bundnar lok­anir landamæra ein­stakra ríkja er lík­legt að hinir aug­ljósu kostir opinna innri landamæra Evrópu muni hvetja fólk til dáða við að leysa þau mál á far­sælan máta.

Meira um Schengen:

Frétta­skýr­ing í Kjarn­anum: Hvers vegna er Ísland aðili að Schengen?

Greinar Björns Bjarna­sonar um Schengen-sam­starfið og aðild Íslands

Skýrsla dóms­mála­ráð­herra um Schengen-sam­starfið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

schengen

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár