Schengen – Hvers vegna er Ísland aðili?

Schengen er sam­starf 26 Evr­ópu­ríkja um afnám eft­ir­lits með fólki á innri landa­mærum ríkj­anna. Jafn­framt kveður samn­ing­ur­inn á um sam­starf lög­reglu- og tolla­yf­ir­valda – og hert eft­ir­lit á ytri landa­mærum ríkj­anna sem standa að sam­komu­lag­inu.

Um leið og þátt­taka Íslands í Schengen tryggir íslenskum borg­urum hindr­un­ar­lausa för um nán­ast öll ríki EES opn­ast landa­mærin til Evrópu. Það getur skapað ákveðin vanda­mál þar sem fólk sem telja má óæski­legt á greið­ari leið til lands­ins. Á móti kemur að eft­ir­lit á ytri landa­mærum svæð­is­ins er hert til muna, m.a. með auknum og greið­ari aðgangi að upp­lýs­ingum um meinta brota­menn.

Hér verður látið hjá líða að ræða hvort og hvernig samn­ing­ur­inn vegur að full­veld­inu enda er það flókið mál með margar hliðar sem lítið hefur borið á í umræð­unni. Mest áber­andi er umræðan að Ísland ætti að hætta, eða að minnsta kosti draga úr þátt­töku í Schengen sem kalli ein­ungis á flæði óæski­legs fólks til lands­ins, afbrota­manna með til­heyr­andi auk­inni glæp­a­starf­semi – en er það svo?

Hvernig virkar Schengen og hvers vegna fór Ísland inn í samstarfið?


Ljóst er að aðstæður á meg­in­landi Evrópu, með þeim sam­runa sem þar hefur orðið, kalla á frjálsar ferðir fólks milli ríkja. Hugs­an­lega er erfitt fyrir eyþjóð­ina Íslend­inga að setja sig í þessi spor en hag­ræðið sem hlýst af Schengen-sam­starf­inu er umtals­vert. Auðvelt er að gera sér í hug­ar­lund hversu þungt það væri í vöfum ef sinna þyrfti eft­ir­liti á landa­mærum milli ríkja um ger­valla Evrópu.

Þetta krefst auk­ins sam­starfs lög­reglu meðal ríkj­anna. Stór þáttur í því er rekstur á mið­lægum gagna­banka – SIS grunni – sem til dæmis hefur að geyma upp­lýs­ingar um eft­ir­lýsta ein­stak­linga sem óskað er eftir hand­töku á vegna gruns um afbrot, eða til að afplána fang­els­is­refs­ingu. Kerfið geymir einnig upp­lýs­ingar um týnda ein­stak­linga, þá sem stefna á fyrir dóm svo og þá sem ekki eiga aðgang vísan að Schengen-svæð­inu. Einnig eru þar upp­lýs­ingar um stolna muni eins og bif­reiðar, skot­vopn og skil­ríki.

[caption id="attachment_36066" align="alignnone" width="1024"] Stór þáttur í Schengen-sam­starf­inu er rekstur á mið­lægum gagna­banka – SIS grunni – sem til dæmis hefur að geyma upp­lýs­ingar um eft­ir­lýsta ein­stak­linga sem óskað er eftir hand­töku á vegna gruns um afbrot, eða til að afplána fang­els­is­refs­ingu.[/caption]

Aðild að Schengen stó­r­eykur jafn­framt mögu­leika á milli­ríkja­sam­vinnu gegn auk­inni alþjóð­legri glæp­a­starf­semi. Geta lög­reglu­yf­ir­völd þannig fengið heim­ild, sem þó er háð ströngum skil­yrðum, til að elta og hand­taka meinta brota­menn yfir landa­mæri.

En hvað þá með Ísland? Við erum hér á eyju þar sem nán­ast allir fara um einn og sama flug­völl­inn, hvers vegna fóru Íslend­ingar inn í Schengen? Ástæðan var að miklu leyti varð­veisla hins nor­ræna vega­bréfa­sam­bands sem hefur verið við lýði í ára­tugi og er tal­inn einn þýð­ing­ar­mesti ávinn­ingur nor­ræns sam­starfs. Þar sem Danir, Finnar og Svíar voru þátt­tak­endur í Schengen í gegnum ESB og Norðmenn voru á leið inn, þótti ekki stætt á öðru en Íslend­ingar fylgdu þeim að málum.

Hefðu Íslend­ingar ekki verið með þyrftu íslenskir rík­is­borg­arar að fara í gegnum vega­bréfa­eft­ir­lit á landa­mærum Schengen-ríkj­anna, þ.á.m. Norð­ur­land­anna, með til­heyr­andi fyr­ir­höfn og bið­röðum á flug­völlum. Þetta kann að vera létt­vægt í augum ein­hverra en er mik­il­væg­ara en virð­ast má í fyrstu.

Er Schengen ávísun á frjálst flæði afbrotamanna og aukna glæpastarfsemi?


Óheft koma afbrota­manna með auk­inni skipu­lagðri glæp­a­starf­semi hér á landi er eitt af því sem hefur verið nefnt sem ástæða fyrir úrsögn úr Schengen. Þessi skoðun virð­ist ekki vera á rökum reist því sam­kvæmt skýrslu inn­an­rík­is­ráð­herra til Alþingis frá árinu 2012 er ekki hægt að sjá að sam­hengi sé á milli veru Íslands í Schengen og aukn­ingar á skipu­lagðri glæp­a­starf­semi.

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra þekkir vel til Schengen-sam­starfs­ins og gagn­rýnir ummæli um að ekki sé unnt að hafa eft­ir­lit með – og gera bak­grunns­rann­sóknir á þeim sem koma til lands­ins. Björn bendir á þá mik­il­vægu stað­reynd að um 98% allra sem koma til Íslands fari um Kefla­vík­ur­flug­völl og lög­regla hafi aðgang að öllum far­þega­skrám, sem hægt sé að bera saman við Schengen-gagna­grunn­inn.

[caption id="attachment_36067" align="alignnone" width="1400"] 98% allra sem koma til Íslands fara um Kefla­vík­ur­flug­völl og lög­regla hefur aðgang að öllum far­þega­skrám, sem hægt sé að bera saman við Schengen-gagna­grunn­inn.[/caption]

En hvað felst raun­veru­lega í landamæra­eft­ir­liti? Þar segir vega­bréf, landamæra­verði í raun ekki neitt nema hægt sé að fletta ein­stak­lingi upp í gagna­grunni til að bera saman upplýsingar—eins og þeim sem Schengen býr yfir.

Upptaka landamæra­eft­ir­lits og úrsögn úr Schengen myndi þýða að lög­reglan nyti ekki lengur aðgangs að þessu öfl­uga upp­lýs­inga­kerfi og þyrfti að styðj­ast ein­göngu við tak­mark­aðan gagna­banka Interpol. Þá myndi reyna enn frekar á greiðan aðgang að upp­lýs­ingum um þá ein­stak­linga sem telja mætti grun­sam­lega sem yrði þess í stað mun tor­veld­ari.

Núver­andi kerfi gefur mögu­leika á að bregð­ast við og gera við­eig­andi ráð­staf­anir áður en far­þegar sem taldir eru grun­sam­legir koma til lands­ins. Yfir­völdum er jafn­framt heim­ilt að loka landa­mærum og taka upp tíma­bundið eft­ir­lit þegar alls­herj­ar­reglu eða þjóðar­ör­yggi er talið vera ógnað, að hámarki 30 dögum. Íslensk stjórn­völd hafa tví­vegis beitt þess­ari heim­ild í skamman tíma og vörð­uðu bæði til­vik komu með­lima Hells Angels hingað til lands.

Ólíkum hlutum ruglað saman – vandamálin hverfa ekki


Mik­il­vægt er að árétta að Schengen-sam­starfið tekur ein­ungis til frjálsra ferða yfir landa­mæri innan aðild­ar­ríkja sam­starfs­ins. Úrsögn úr Schengen myndi engu breyta um fjölda útlend­inga í land­inu því rétt­indi fólks innan ESB/EES til búsetu og dvalar hald­ast óbreytt vegna ákvæða fjór­frels­is­ins svo­kall­aða.

Jafn­framt ber að hafa í huga að ekki er sjálf­gefið að afbrota­menn finn­ist við landamæra­eft­ir­lit, því fólk ber slíkt ekki utan á sér né heldur er það skráð í vega­bréf þess. Auk þess er afbrota­mönnum ekki bannað að ferð­ast á meðan þeir eru ekki eft­irlýstir – og ekki voru mörg til­vik þar sem afbrota­menn voru stöðv­aðir við kom­una til Íslands, áður en Schengen kom til.

Að sama skapi virð­ist gæta mis­skiln­ings þegar ruglað er saman vega­bréfa­skoðun og toll­eft­ir­liti því ekk­ert í Schengen-samn­ingnum hindrar íslensk yfir­völd að sinna toll­gæslu eins og þurfa þykir, hvað sem Schengen-aðild líður.

Þegar Schengen-aðild er gagn­rýnd á fólk einnig til að rugla saman mis­mun­andi hlutum. Fundið er að veru fólks hér sem kemur frá ESB/EES svæð­inu til að setj­ast hér að—en þar geta auð­vitað slæðst með afbrota­menn. Þessir ein­stak­lingar eiga allir búsetu­rétt hér burt séð frá Schengen-aðild, hinir meintu afbrota­menn einnig á meðan þeir eru ekki eft­ir­lýstir. Í sömu andrá eru nefndir hæl­is­leit­endur sem hér koma og vilja raun­veru­lega setj­ast hér að – en einnig þeir sem ætla sér ekki að setj­ast hér að heldur nota Ísland sem við­komu­stað til að kom­ast vestur um haf.

Þetta er baga­legt því þegar vanda­mál koma upp, t.a.m. hung­ur­verk­föll, til­raunir til að kom­ast ólög­lega úr landi með skipum eða önnur afbrot, er skuld­inni stundum skellt á Schengen-aðild­ina. Á það hefur hins vegar verið bent að þessi vanda­mál hverfa ekki þó Ísland hætti aðild að Schengen. Málið snýst ein­fald­lega um hvernig íslensk yfir­völd vilja tryggja öryggi innan landamæra sinna og hvaða ráðum þau beita til þess. Sú gæsla yrði ekki auð­veld­ari stæði Ísland utan Schengen, að öllum lík­indum erf­ið­ari.

Einnig hefur Schengen-sam­starfið verið gagn­rýnt vegna þess kostn­aðar sem íslenska ríkið hefur þurft að leggja út í. Þó ekki hafi farið fram útreikn­ingar á því hver sá kostn­aður er nákvæm­lega er ljóst hann hyrfi ekki við úrsögn úr sam­starf­inu, heldur myndi fær­ast til, því taka þyrfti upp ann­ars konar starf­semi við landamæra­eft­ir­lit, mögu­lega kostn­að­ar­sam­ari.

Ljóst er að hin opnu landa­mæri vegna Schengen-sam­starfs­ins hafa ein­hverja galla. Hins vegar er einnig ljóst að eðli landamæra­eft­ir­lits hefur breyst og hefð­bundið vega­bréfa­eft­ir­lit kemur ekki í veg fyrir að skipu­lögð glæp­a­starf­semi auk­ist, eins og í Bret­landi sem stendur fyrir utan Schengen. Að fram­an­sögðu virð­ist nið­ur­staðan því vera afger­andi, að kostir Schengen-aðildar séu fleiri og vegi þyngra en gall­arnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár