Aðhaldsaðgerðir á Landspítala „sársaukafullar og leiðinlegar“

„Aðhalds­að­gerðir upp á þrjá millj­arða króna rífa hressi­lega í og eru bæði sárs­auka­fullar og leið­in­legar,“ segir Stefán Hrafn Hagalín, deild­ar­stjóri sam­skipta­deildar Land­spít­ala við Stundina, sem segir að þrátt fyrir það sé óánægja hluta starfs­fólks kvenna­deildar ekki lýsandi fyrir and­ann á deild­inni.

Aðhaldsaðgerðir á Landspítala „sársaukafullar og leiðinlegar“
Erfiðar aðhalds­að­gerðir Aðhalds­að­gerðir á Land­spít­ala, sem skila eiga þriggja millj­arða króna sparn­aði á næsta ári, eru sárs­auka­fullar og leið­in­legar, segir deild­ar­stjóri. Mynd: Kristinn Magnússon

Starfs­fólki kvenna­deildar Land­spít­ala finnst erfitt að sitja undir fréttum af því að starfsandi þar sé í molum, líkt og greint var frá í Frétta­blað­inu síð­ast­lið­inn föstu­dag. Ástæða þess var sögð sú að í ljósi mik­ils aðhalds í rekstri spít­al­ans hafi verið dregið úr fríð­indum sem starfs­fólk sem gengið hefur vaktir um hátíðir hafa notið, eða þau felld niður. Vakti þetta mikla óánægju hjá hluta starfs­fólks en því mun þó fara fjarri að starfsandi þar sé í molum, líkt og full­yrt var. Spít­al­inn vinnur eftir hag­ræð­ing­ar­á­ætlun sem ætlað er að ná fram sparn­aði upp á þrjá millj­arða á næsta ári. Til þess þarf að velta við öllum steinum og ráð­ast í ótal litla hluti, til að verja starf­sem­ina, að því er deild­ar­stjóri sam­skipta­deildar spít­al­ans segir. 

„Það er bara alls ekki rétt, að starfsand­inn sé í molum á deildum Land­spít­ala“

Grannt fylgst meðStefán Hrafn segir að náið sé fylgst með þróun starfsanda á Land­spít­ala

„Það er bara alls ekki rétt, að starfsand­inn sé í molum á deildum Land­spít­ala vegna nauð­syn­legra aðhalds­að­gerða. Við fylgj­umst grannt með þróun mála í þeim efnum með könn­unum og fleiri aðgerðum og ekk­ert bendir til þess. Starfsand­inn á spít­al­anum er þvert á móti á upp­leið víð­ast hvar. Hins vegar er það rétt að aðhalds­að­gerðir upp á þrjá millj­arða króna rífa hressi­lega í og eru bæði sárs­auka­fullar og leið­in­legar,“ segir Stefán Hrafn Hagalín, deild­ar­stjóri sam­skipta­deildar Land­spít­ala við Stundina.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar mun óánægjan sem greint var frá í frétt Frétta­blaðs­ins hafa birst meðal ljós­mæðra á einni deild kvenna­deild­ar­innar en kvenna­deild skipt­ist í fjórar sér­deildir. Í frétt­inni kemur fram að stjórn­endur deild­ar­innar hafi ákveðið að fella niður fríð­indi, sem tíðkast hefur að veita starfs­fólki sem gengur í vaktir um stór­há­tíðir. Var þar um að ræða að ekki yrðu pant­aðar pít­sur fyrir starfs­fólk á Þor­láks­messu, ekki yrðu keyptar jóla­gjafir handa starfs­fólki sem yrði á vakt á aðfanga­dags­kvöld, að ekki yrði keypt gos fyrir starfs­fólk fyrir jól og að dregið yrði úr sæl­gæt­is­kaupum.

Skorið niður á öllum deildum

Stefán segir að hann geti ekki stað­fest að óánægja sé meiri á einni deild heldur en annarri en við­ur­kennir fús­lega að auð­vitað sé ein­hver hluti starfs­fólks spít­al­ans óánægður með sparn­að­ar­að­gerð­irnar og það hvernig þær bitni á starf­semi spít­al­ans í lengd og bráð. Starfsand­inn  á kvenna­deildum sé góður og að flest starfs­fólk þar hafi sýnt aðgerð­unum mik­inn skiln­ing. Sömu sögu sé að segja af öðrum deildum spít­al­ans. Stefán Hrafn segir einnig að rangt sé að starfs­fólk fái ekki jóla­gjafir, þvert á móti fái allt starfs­fólk Land­spít­ala sömu jóla­gjöf­ina sem þetta árið sá gjafa­kort að upp­hæð 8.500 krónur.

Um 200 deildir eru á Land­spít­ala og á þeim öllum hefur í gegnum árin verið eitt og annað gert fyrir fólk sem hefur þurft að ganga vaktir yfir stór­há­tíðir. Stefán segir stöð­una nú hins vegar vera þá að deild­ar­stjórar sjái enga aðra leið aðra en að klípa af það sem hægt sé að klípa af, eigi þeim að takast að reka deild­irnar, og að sá sparn­aður eigi sér stað á öllum deildum spít­al­ans.

Spara á þrjá milljarða króna

Fram­kvæmda­stjórn spít­al­ans sam­þykkti á fundi 3. sept­em­ber síð­ast­lið­inn aðgerð­ar­lista með 41 aðgerð sem miðar að því að lækka útgjöld spít­al­ans um einn millj­arð króna á yfir­stand­andi ári. Á næsta ári er stefnt að því að sparn­að­ar­að­gerðir skili tæp­lega þriggja millj­arða króna sparn­aði.

Um tveir þriðju aðgerð­anna snú­ast um launa­lið­inn enda eru laun um 70 pró­sent af kostn­aði við rekstur spít­al­ans. Á næsta ári er stefnt að því að ná fram sparn­aði sem nemur rúmum 2,4 millj­örðum króna með hag­ræð­ingu í starfs­manna­málum. Gerð er hag­ræð­ing­ar­krafa til allra stoð­skrif­stofa og deilda spít­al­ans. Þá verður einnig gerð sér­stök hag­ræð­ing­ar­krafa á launa­lið spít­al­ans í heild. Beita á almennu aðhaldi í ráðn­ingum á spít­al­anum og unnið verður eftir mönn­un­ar­mark­miðum á hverri deild fyrir sig. „Hag­ræð­ing­ar­krafan á hverja deild er umtals­verð þótt hún dreif­ist að sjálf­sögðu á mjög mis­mun­andi hátt eftir starf­semi deilda, starfs­manna­fjölda og þar fram eftir göt­unum,“ segir Stefán Hrafn.

„Hag­ræð­ing­ar­krafan á hverja deild er umtals­verð“

Sparn­að­ar­að­gerð­irnar hófust þegar í haust á því að fækkað var í yfir­stjórn spít­al­ans og laun stjórn­ar­manna og for­stjóra voru lækkuð. Þá verður bæði dregið úr fastri yfir­vinnu, sem og að beitt verður aðhaldi þegar kemur að breyti­legri yfir­vinnu. Þá verður vakta­á­lags­auki hjúkr­un­ar­fræð­inga og ljós­mæðra felldur niður.

Fyrir árið 2020 er síðan stefnt að því að hag­ræð­ing í rekstr­ar­liðum á Land­spít­ala skili heild­ar­sparn­aði sem nemur 531 milljón króna. Sá sparn­aðar á að nást fram með ýmsum leiðum, meðal ann­ars með notkun ódýr­ari lyfja og mark­viss­ari lyfja­gjöf og með aðhaldi í inn­kaupum á sér­greindum lækn­inga­vörum. Þá á að fresta við­halds­fram­kvæmdum, draga úr kostn­aði við akstur og draga úr aðkeyptum veit­ingum og kostn­aði við fundi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár