Tilgangur minnisblaðsins „að ýja að því að það séu öryrkjarnir sem frekastir eru á fleti“

Öryrkja­banda­lag Íslands segir fjár­mála­ráð­herra fara með vill­andi tölur í minn­is­blaði sínu.

Öryrkja­banda­lag Íslands (ÖBÍ) segir að eftir lestur minn­is­blaðs Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra standi eftir sú „til­finn­ing að til­gangur minn­is­blaðs­ins sé fyrst og fremst til að ýja að því að það séu öryrkjarnir sem frek­astir eru á fleti“. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ÖBÍ.

Kjarninn greindi frá því í dag að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefði lagt fram minn­is­blað á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær um fram­lög til almanna­trygg­inga. Sam­kvæmt því minn­is­blaði rennur sífellt auk­inn hluti verð­mæta­sköp­unar hag­kerf­is­ins til til­færslu­kerfa og fjár­fram­laga rík­is­sjóðs. Sér­stak­lega var fjallað um fram­lög til almanna­trygg­inga, að frá­töldum atvinnu­leys­is­bót­u­m, og sagt að þau hefðu nær tvö­fald­ast frá árinu 2013 miðað við verð­lag hvers árs.

Í stöðu­upp­færslu sem Bjarni birti á Face­book í dag sagði hann það vera mikið áhyggju­efni að frá árinu 2013 hefði þeim sem eru á örorku­bótum eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri fjölgað um 4.300 manns.

Segja framsetninguna villandi

[links]Samkvæmt ÖBÍ er fram­setn­ingin sem ráð­herra velur vill­andi. „Og gleymum ekki kosn­inga­lof­orð­inu sem ráð­herra gaf eldri borg­urum fyrir nokkrum árum stærsti hluti aukn­ingar útgjalda til almanna­trygg­inga farið í að efna það. Öryrkjar hafa ekki fengið neitt.

Fjár­mála­ráð­herra vill líka sýna fram á hve gríð­ar­leg fjölgun örorku­líf­eyr­is­þega hefur orðið og birtir máli sínu til stuðn­ings línu­rit.

Þar má sjá hlut­fall örorku­líf­eyr­is­þega, örorku­styrk­þega og end­ur­hæf­inga­líf­eyr­is­þega sem hlut­fall af fólki á vinnu­færum aldri. Ein­hverra hluta vegna tekur ráð­herra þó sér­stak­lega út úr jöfn­unni inn­flytj­endur, eða erlent vinnu­afl, eins og þessi hópur skipti engu máli í verð­mæta­sköpun lands­ins,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Óskiljanlegt að taka út þennan hóp

Þá kemur fram hjá ÖBÍ að það að taka þennan hóp út sé „eig­in­lega óskilj­an­legt“. Innflutt vinnu­afl sé hluti af öllum öðrum þjóð­hags­stærðum, skatt­greiðslum og land­fram­leiðslu.

„Ráðherra er einnig ofar­lega í huga fjölgun öryrkja á tíma­bil­inu sem hann velur sér. 4.300 ein­stak­lingar, eða jafn margir og búi í Vest­manna­eyjum. Setjum þessa tölu í sam­hengi. Á sama tíma hefur íbúum lands­ins fjölgað um 45.250. Það er aðeins rúm­lega íbúa­tala Kópavogs og Sel­tjarn­ar­ness.

Hvað skyldi 4.300 manns vera hátt hlut­fall af þess­ari fjölgun? Jú 9,5 pró­sent, en tafla ráð­herra sýnir einmitt að fjöldi öryrkja sem hlut­fall af mann­fjölda er 9,2 pró­sent og hefur verið und­an­farin ár. Munurinn 0,3 pró­sentu­stig, en hér höfum við í huga dugnað starfs­manna TR árið 2016 er þeir unnu niður upp­safn­aðar umsóknir. Það skiptir nefni­lega máli hvernig hlut­irnir eru bornir fram.

Enda ef skoðað er hlut­fallið, sem ráð­herra vill meina að sé að ríða rík­is­sjóði að fullu, með öllum sem leggja til lands­fram­leiðsl­unnar, sést að það breyt­ist nær ekk­ert. Í raun hefur hlut­fall örorku­líf­eyr­is­þega af fólki á vinnu­aldri, lækkað eða staðið í stað und­an­farin ár. Það er nú öll hörm­ungin,“ segir í til­kynn­ing­unni.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár