Bjarni segir kökumyndband Öryrkjabandalagsins vera misheppnað

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir það rangt að öryrkjar fái sífellt minni sneið af efna­hag­skök­unni sem íslenskt sam­fé­lag baki. ÖBÍ segir rík­is­stjórn­ina hafa ákveðið að auka fátækt sinna skjól­stæð­inga.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram minn­is­blað á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær um fram­lög til almanna­trygg­inga. Samkvæmt því minn­is­blaði rennur sífellt auk­inn hluti verð­mæta­sköp­unar hag­kerf­is­ins til til­færslu­kerfa og fjár­fram­laga rík­is­sjóðs. Sér­stak­lega var fjallað um fram­lög til almanna­trygg­inga, að frá­töldum atvinnu­leys­is­bótum, og sagt að þau hafi nær tvö­fald­ast frá árinu 2013 miðað við verð­lag hvers árs.

Slík fram­lög nemi nú 642 þús­und krónum á hvern lands­mann aldr­inum 18-67 ára. Það hafi verið 356 þús­und krónur á hvern lands­mann árið 2013. Sam­an­lagt fari því um fjórð­ungur allra skatt­tekna og trygg­inga­gjalda til almanna­trygg­inga.

Kaka og kaka

Í stöðu­upp­færslu sem Bjarni birtir á Facebook í dag segir hann að það sé mikið áhyggju­efni að á sama tíma­bili hafi þeim sem eru á örorku­bótum eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri fjölgað um 4.300 manns. „Það eru u.þ.b. jafn margir og búa í Vest­manna­eyjum. Okkur er að mis­takast að ná utan um þennan vanda og verðum að bregð­ast við.“

[adspot]Öryrkja­banda­lag Íslands (ÖBÍ) hefur und­an­farnar vikur staðið fyrir her­ferð, meðal ann­ars með sjón­varps­aug­lýs­ingum.

Þar hefur verið bent á að bilið á milli örorku­líf­eyris og lág­marks­launa hafi lækkað stöðugt frá árinu 2007. „Í valda­tíð núver­andi rík­is­stjórnar hefur ekk­ert verið gert til að bregð­ast við þess­ari kjaragliðnun, heldur þvert á móti hefur bilið breikkað enn meira, þrátt fyrir að rík­is­stjórnin seg­ist vinna í anda heims­mark­miða Sam­ein­uðu þjóð­anna, hvar efst á blaði er að útrýma fátækt. Nú þegar Bjarni hefur lagt fram sitt síð­asta fjár­laga­frum­varp á kjör­tíma­bil­inu er enga breyt­ingu að sjá,“ skrif­aði ÖBI í stöðu­upp­færslu sem birt var á Facebook 11. októ­ber. Með fylgdi aug­lýs­ing sem síðan hefur verið afar sýni­leg víða, meðal ann­ars í sjón­varpi.

Þar er verið að baka köku og er það vísun í frægt kosn­inga­bar­áttu­mynd­band sem Bjarni Bene­dikts­son gerði fyrir kosn­ing­arnar 2016.

Segir rangt að öryrkjar fái sífellt minni sneið

Bjarni segir í stöðu­upp­færslu sinni í dag að hann heyri ákall ÖBÍ um að hækka bætur enn frekar. „Myndband þeirra er hins vegar mis­heppnað, þótt kakan sé fal­leg eft­ir­mynd af þeirri sem ég gerði. Það dugar ekki til, því það er rangt að öryrkjar fái sífellt minni sneið. Kakan hefur stækkað og almanna­trygg­ingar hafa fengið stærri sneið af stækk­andi köku. Um það vitna stað­reyndir. Og við tókum 4 millj­arða til hliðar til að styrkja þessi kerfi enn frekar á þessu kjör­tíma­bili. Enn er óráð­stafað um fjórð­ungi þeirrar fjár­hæðar en um að að ræða var­an­lega 4 millj­arða hækkun á þessum lið almanna­trygg­inga.“

Bjarni segir að helsta áhyggju­efni sé að ríkið muni ekki geta stutt nægi­lega við þá sem eru í mestri þörf ef sífellt hærra hlut­fall lands­manna sé á örorku eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri. „Eftir því sem þessi staða versnar dregur úr getu okkar til að standa mynd­ar­lega við bakið á þeim sem aldrei fengu tæki­færi í líf­inu eða urðu fyrir áföllum og þurfa á stuðn­ingi að halda.“

Sífellt stærri hópur býr við sárafátækt

Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sem Bjarni kynnti 1. októ­ber síð­ast­lið­inn, var lagt til að líf­eyrir sem greiddur er úr almanna­trygg­inga­kerf­inu myndi hækka um 3,6 pró­sent um næstu ára­mót.

Sam­kvæmt útreikn­ingum Öryrkja­banda­lags Íslands mun sú hækkun skila því að fram­færslu­við­mið almanna­trygg­inga verði 265.044 krónur fyrir skatt, sem, að teknu til­liti til þeirra skatt­kerf­is­breyt­inga sem koma til fram­kvæmda um ára­mót­in. Það muni skila rétt tæpum 233 þús­und krónum í vasa þeirra sem lifa af örorku­líf­eyr­i.

Að­al­fundur ÖBI sam­þykkti fyrr í októ­ber ályktun þar sem sagði að í þrjú ár hefði rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, Bjarna Bene­dikts­sonar og Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar ákveðið að auka fátækt fatl­aðs og lang­veiks fólks í stað þess að bæta kjör þeirra. „Sí­stækk­andi hópur öryrkja býr við sára­fá­tækt. Það veldur aðal­fundi Öryrkja­banda­lags Íslands miklum von­brigðum að um ára­mótin 2020-2021 verði mun­ur­inn á örorku­líf­eyri og lág­marks­launum orð­inn kr. 86.000.“

Ekkert gert til að bregðast við kjaragliðnun

Í álykt­un­inni sagði að frá árinu 2007 hefði bil á milli örorku­líf­eyris og lág­marks­launa stöðugt breikk­að. „Í valda­tíð núver­andi rík­is­stjórnar hefur ekk­ert verið gert til að bregð­ast við þess­ari kjaragliðnun, heldur þvert á móti hefur bilið breikkað enn meira, þrátt fyrir að rík­is­stjórnin seg­ist vinna í anda heims­mark­miða Sam­ein­uðu þjóð­anna, hvar efst á blaði er að útrýma fátækt. Nú þegar Bjarni hefur lagt fram sitt síð­asta fjár­laga­frum­varp á kjör­tíma­bil­inu er enga breyt­ingu að sjá.“

Aðal­fund­ur­inn krafð­ist því þess að „rík­is­stjórnin end­ur­skoði afstöðu sína gagn­vart lífs­kjörum fatl­aðs og lang­veiks fólks og bæti kjör okkar án taf­ar. Skömm rík­is­stjórn­ar­innar er að halda okkur í fátækt og skýla sér á bak­við COVID og slæmt efna­hags­á­stand."

Vilji innan stjórnarandstöðu að bregðast við

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hefur lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varp næsta árs sem felur í sér að líf­eyrir almanna­trygg­inga og atvinnu­leys­is­bætur hækki í sam­ræmi við hækk­anir á lífs­kjara­samn­ingi.

[links]Sam­kvæmt því sem fram kemur í til­lög­unni, og byggt er á áætlun miðað við fyr­ir­liggj­andi gögn, myndu greiðslur vegna öryrkja­líf­eyris og atvinnu­leys­is­bóta aukast um 10,5 millj­arða króna sam­tals á næsta ári verði til­lagan sam­þykkt.

Í aðgerð­ar­á­ætlun sem Sam­fylk­ingin kynnti fyrr í þessum mán­uði var meðal ann­ars lagt til að hækka elli­líf­eyri og örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri í sam­ræmi við launa­þróun til við­bótar við hækkun frí­tekju­marks vegna atvinnu­tekna. Auk þess vill flokk­ur­inn að end­ur­skoðun almanna­trygg­inga lúti sömu lög­málum og þróun þing­fara­kaups, og haldi þar með í raun­veru­lega launa­þróun í land­inu í stað áætl­unar um hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár