Nýliði í tebolla

Tauga­eitur af gerð­inni novichok fæst ekki keypt úti í búð. Það er ein­ungis talið í höndum rúss­neskra yfir­valda, sem nú eru krafin svara við áleitnum spurn­ingum, eftir að leifar eit­urs­ins fund­ust í lík­ama and­ófs­manns­ins Alexei Navalnís.

Alexei Navalní liggur enn þungt haldinn á spítala í Berlín.
Alexei Navalní liggur enn þungt hald­inn á spít­ala í Berlín. Mynd: EPA

Það var á fimmtu­dag fyrir sléttum tveimur vikum sem fréttir bár­ust frá Síberíu þess efnis að and­ófs­mað­ur­inn Alexei Navalní hefði skyndi­lega veikst um borð í inn­an­lands­flugi, eftir að hafa fengið sér tebolla á flug­vell­inum í Tomsk. Nú hefur komið í ljós að Navalní var byrlað tauga­eitri af gerð­inni novichok, en Angela Merkel Þýska­landskansl­ari var brúna­þung er hún bar þau tíð­indi fram síð­degis í gær.[links]

Nið­ur­stöður þýskra, sem hafa ann­ast Navalní frá því að leyfi fékkst til þess að fljúga honum til Berlínar frá Síberíu þar síð­ustu helgi, eru sagðar afdrátt­ar­lausar. Og þegar nið­ur­staðan er sú að eitur af novichok-gerð hafi verið notað bein­ast böndin beint að æðstu stöðum í rúss­neska stjórn­kerf­inu, að Vladimír Pútín for­seta sjálfum og leyni­þjón­ustu­stofn­unum rúss­neska rík­is­ins. Merkel segir Rússa þurfa að svara erf­iðum spurn­ingum.

Tauga­eitrið var þróað á rann­sókn­ar­stofum Sov­ét­ríkj­anna sál­ugu og eru skammtar af þessu ban­eitr­aða efni ein­ungis taldir á for­ræði rúss­neskra yfir­valda. Novichok fæst ekki keypt út í búð og var sér­stak­lega bætt við sem ban­nefni í sátt­mála Efna­vopna­stofn­un­ar­innar OPCW í fyrra. Vest­rænar leyni­þjón­ustur telja að Rússar hafi verið að fram­leiða smáa skammta af eitr­inu und­an­farin ár og að Pútín fylgist grannt með.

[adspot]

Síðast var novichok, sem kalla má nýliða á íslenskri tungu, í heims­frétt­unum árið 2018. Þá eitr­uðu tveir rúss­neskir leyni­þjón­ustu­menn fyrir gagnnjósn­ar­anum Sergei Skripal og dóttur hans Júlíu í breska bænum Salisbury. Eitrinu var smurt á hurð heim­ilis þeirra. Þau jöfn­uðu sig, en kona að nafni Dawn Sturgess var ekki jafn heppin. Hún lést eftir að hafa kom­ist í snert­ingu við eitrið fjórum mán­uðum síðar og talið er að hún hafi óvart kom­ist í tæri við þann skammt sem rúss­nesku menn­irnir skildu eftir sig.

Vildi Moskva að allir vissu?

Eitt af því sem vekur upp spurn­ingar í máli Navalnís er, eins og blaða­maður breska blaðs­ins Guardian veltir upp í umfjöllun sinni, af hverju Navalní var leyft að fara með sjúkra­flugi til Berlínar eftir að veik­indi hans gerðu vart við sig. Rússnesk yfir­völd hljóta þá þegar að hafa vitað að þýskir sér­fræð­ingar myndu verða leifa tauga­eit­urs­ins varir í lík­ama Navalnís eftir ítar­lega rann­sóknir. Þá kemur upp spurn­ingin, vildu rúss­nesk yfir­völd ef til vill að böndin myndu ber­ast að þeim eins og þau gera nú?

„Mjög alvar­legar spurn­ingar hafa nú vaknað, sem ein­ungis rúss­neska rík­is­stjórnin getur og verður að svara. Örlög Alexei Navalní hafa vakið heims­at­hygli. Heim­ur­inn mun bíða svara,“ sagði Merkel í gær. Hún for­dæmdi árás­ina á and­ófs­mann­inn, en gekk ekki svo langt að lýsa ábyrgð á hendur rúss­neskum stjórn­völdum.

Það gæti staðið á svörum úr þeirri átt­inni. Dmitrí Peskov, tals­maður rúss­nesku stjórn­ar­innar, lýsti því yfir síð­degis í gær að Rússum hefði ekki borist nein ný sönn­un­ar­gögn um ástæð­urnar fyrir veik­indum Navalnís, sem liggur enn þungt hald­inn á spít­ala í Berlín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

alþjóðastjórnmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár