Ófriðurinn heima

Phumzile Mlambo Ngcuka, fram­kvæmda­stýra UN Women, ritar grein í tengslum við frið­ar­daga í Reykja­vík.

„Um allan heim hafa um 243 millj­ónir kvenna og stúlkna á aldr­inum 15-49 ára þurft að þola ofbeldi af hálfu maka, á und­an­förnum tólf mán­uðum.

Ofbeldi gegn konum og stúlkum er útbreitt vanda­mál í hverju ein­asta landi í heim­inum. Það er drifið áfram af kynja­mis­rétti, félags­legum við­miðum sem mis­muna á grund­velli kyns og staðalí­myndum, sem skerða völd og veikja stöðu kvenna og stúlkna.

[links]Kyn­bundið ofbeldi hefur ekki ein­göngu áhrif á lík­am­lega og sál­ræna líðan kvenna, heldur hindrar konur og stúlkur í að njóta grund­vall­ar­rétt­inda og frelsis, líkt og að afla sér mennt­unar og láta til sín taka í félags- og stjórn­málum.

Samhliða alvar­legum efna­hags- og félags­legum áhrifum Covid-19 heims­far­ald­urs­ins og auk­inni félags­legri ein­angrun fólks hefur „skugga­far­aldur“ kyn­bund­ins ofbeldis farið vax­andi um allan heim.

Margar konur og stúlkur eru ein­angr­aðar og bundnar heima með ofbeld­is­mönnum sínum vegna sam­komu­banna og félags­forð­anna. Á sama tíma er fjár­magni beint frá nauð­syn­legri stoð­þjón­ustu á borð við kvenna­at­hvörf og neyð­ar­línur.

Nýjustu úttektir og rann­sóknir benda til þess að þrír mán­uðir af útgöngu­banni þýði að 15 millj­ónir kvenna og stúlkna til við­bótar verði beittar kyn­bundnu ofbeldi.

[adspot]Úttektir rík­is­stjórna og borg­ara­sam­taka sýna að heims­far­ald­ur­inn hefur mest áhrif á konur og stúlkur sem standa frammi fyrir marg­þættri mis­munun, til dæmis á grund­velli kyn­hneigðar, ald­urs, tekna, fötl­unar og kyn­þáttar.

Að koma á og við­halda friði snýst ekki aðeins um að binda enda á ofbeldið sem á sér stað í víg­línu átaka­svæða heldur þurfum við að upp­ræta kyn­bundið ofbeldi sem heldur áfram að eiga sér stað fyrir luktum dyrum. Á meðan karl­menn eru enn ofbeld­is­fullir gagn­vart konum heima við, búum við ekki við frið.

UN Women vinnur að afnámi ofbeldis gegn konum

UN Women hefur leitt þróun á sam­þættri stefnu um kyn­bundið ofbeldi og þar með hraðað áþreif­an­legum við­brögðum við Covid-19 við að koma á „zero tolerance“ stefnu gagn­vart kyn­bundnu ofbeldi.

Fram til þessa hafa 146 lönd skuld­bundið sig til að koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum og stúlkum og gert það að lyk­il­þætti í við­bragðs­á­ætl­unum sínum vegna Covid-19.

Í víð­ara sam­hengi, þá erum við hjá UN Women að vinna með stefnu­mótendum að umbótum á lögum sem mis­muna á ein­hvern á hátt (til dæmis lög sem banna heim­il­is­of­beldi og nauðg­anir í hjóna­bandi). Auk þess sem við vinnum að því að styrkja getu lög­reglu­manna- og kvenna til að rann­saka kyn­bundið ofbeldi og bregð­ast við á þolenda­mið­aðan hátt, á þann hátt að þol­and­anum sé trúað.

Síðast en ekki síst ber að nefna tíma­móta­á­tak UN Women Kynslóð jafn­réttis (e. Generation Equality) sem felur í sér aðgerða­banda­lag um kyn­bundið ofbeldi, undir for­ystu Íslands og þriggja ann­arra aðild­ar­ríkja SÞ, í sam­starfi við Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ina, fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, ungt fólk og borg­ara­sam­tök.

Ísland getur náð raunverulegu jafnrétti

Að útrýma end­an­lega ofbeldi gegn konum og stúlkum er sönnun þess að komið hafi verið á raun­veru­legu jafn­rétti í sam­fé­lagi. Þátt fyrir að vera smá­ríki er Ísland nú þegar leið­andi á svo mörgum sviðum jafn­réttis. Nú þarf að velta úr vegi síð­ustu hindr­un­inni – til að ná raun­veru­legu jafn­rétti.

Höfundur er fram­kvæmda­stýra UN Women.

Greinin er birt í tengslum við frið­ar­daga í Reykja­vík sem Höfði frið­ar­setur Reykja­vík­ur­borgar og Háskóla Íslands stendur að í sam­starfi við UN Women, UNICEF, Félag Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi og utan­rík­is­ráðu­neytið. Umræðan í ár fer alfarið fram á net­inu, með hlað­varpss­eríu og völdum greinum sem birtar verða dag­ana 10. - 16. októ­ber á www.fridarsetur.is. Í ár er sjónum beint að því hvernig Ísland getur gert enn betur þegar kemur að ófriði í íslensku sam­fé­lagi og um leið verið öfl­ugri málsvari á alþjóða­vett­vangi á sviði friðar og mann­rétt­inda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

alþjóðastjórnmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár