Taugaeitur eða of lágur blóðsykur?

Rúss­neska and­ófs­mann­inum Alexei Navalní er enn haldið sof­andi á spít­ala í Berlín, eftir að hann veikt­ist skyndi­lega í inn­an­lands­flugi síð­asta fimmtu­dag. Þýskir læknar telja allt benda til eitr­unar, en rúss­neskir rekja veik­indin til blóð­syk­ur­falls.

Alexei Navalní var fluttur af sjúkrahúsi í Síberíu á laugardaginn og flogið til Berlínar þar sem honum er haldið sofandi.
Alexei Navalní var fluttur af sjúkra­húsi í Síberíu á laug­ar­dag­inn og flogið til Berlínar þar sem honum er haldið sof­andi. Mynd: EPA

Þýskir læknar gáfu það út í gær að svo virt­ist sem eitrað hefði verið fyrir Alexei Navalní, rúss­neska and­ófs­mann­inum sem dvelur nú á Charité-spít­al­anum í Berlín eftir að þýsk yfir­völd fengu leyfi til þess að flytja hann þangað frá spít­ala í Síberíu á laug­ar­dag. Þar hafði hann dvalið eftir að hafa veikst skyndi­lega af ókunnum orsökum í inn­an­lands­flugi fyrir helgi.

Samkvæmt lækn­unum í Berlín er ástand Navalnís alvar­legt og er honum haldið sof­andi. Ekki er talið að hann sé í lífs­hættu, en óljóst þykir nákvæm­lega hvaða lang­tíma­á­hrif hin ætl­aða eitrun gæti haft á hann.

Lækn­arnir í Berlín segj­ast þó hafa kom­ist að því að um ein­hvers­konar kólínkljúf hafi verið að ræða, sem hafi hamlandi áhrif á virkni tauga­kerf­is­ins. Lyf sem inni­halda slík efni eru meðal ann­ars notuð í með­ferð við öldr­un­ar­sjúk­dómum, en en slík efni má einnig að finna í tauga­eitri.

Þau eru til dæmis í Novichok-tauga­eitr­inu sem bresk yfir­völd fundu í lík­ömum Skripal-feðgin­anna sem urðu fyrir eitrun í Salisbury árið 2018.

Rússnesk heil­brigð­is­yf­ir­völd sendu frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem nið­ur­stöðum þýsku lækn­anna var and­mælt og að ein­kenni Navalní hefðu ekki komið heim og saman við ein­kenni eit­ur­efna­eitr­unar.

Í opin­berri yfir­lýs­ingu spít­al­ans í Síberíu, þar sem Navalní dvaldi fram á laug­ar­dag, sagði að lækn­arnir þar hefðu kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að veik­indi hans stöf­uðu af því að blóð­sykur hans hefði fallið skyndi­lega.

Þó var honum gefið atrópín, mótefni við tauga­eitri, þegar hann kom fyrst inn á spít­al­ann, hið sama og honum er nú gefið í Berlín, sam­kvæmt umfjöllun New York Times.

Andlit andófsins

Alexei Navalní, sem er hefur í rúman ára­tug verið and­lit and­ófs­ins gegn Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta þar inn­an­lands. Hann er mennt­aður lög­fræð­ingur og hefur verið ötull gagn­rýn­andi spill­ingar í efstu lögum rúss­neska stjórn­kerf­is­ins frá því að hann byrj­aði að blogga um vafa­sama starfs­hætti rík­is­tengdra stór­fyr­ir­tækja í land­inu árið 2008.

Hann hefur sagt að flokkur for­set­ans, Sameinað Rússland, sé „flokkur þrjóta og þjófa“ og hefur nokkrum sinnum verið hand­tek­inn fyrir þátt­töku í mót­mælum gegn rík­is­stjórn Pútíns.

Hann bauð sig fram til borg­ar­stjóra í Moskvu árið 2013 og fékk þá 27 pró­sent atkvæða gegn fram­bjóð­anda úr flokki Pútíns, sem þótti dágott þegar horft var til þess að fram­boð hans fékk enga umfjöllun í rúss­neskum rík­is­fjöl­miðlum.

Navalní reyndi síðan að bjóða sig fram til for­seta gegn Pútín árið 2018, en fékk ekki, þar sem hann hefur verið dæmdur tví­vegis fyrir fjár­drátt. Þeir dómar hafa verið sagðir fyrir upp­lognar sakir og Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að réttur Navalnís til sann­gjarnra rétt­ar­halda hafi ekki verið virtur.

Ásökunum vísað á bug

Þýsk stjórn­völd fengu leyfi til þess að flytja Navalní til Berlínar á laug­ar­dag, en það reynd­ist tor­sótt að fá hann fluttan og hafa kenn­ingar verið uppi um að rúss­nesk yfir­völd hafi viljað láta tíma líða til að reyna að tryggja að leifar af eit­ur­efni myndu ekki finn­ast í lík­ama hans.

Angela Merkel kansl­ari Þýska­lands hefur kallað eftir því að Rússar láti fara fram rann­sókn á því af hverju Navalní veikt­ist og bresk yfir­völd hafa kallað eftir því sama og að sú rann­sókn verði algjör­lega gagnsæ.

Dímítrí Peskov, tals­maður rúss­neskra yfir­valda, vísar því alfarið á bug að Pútín hafi haft nokkuð að gera með meinta eitrun gegn Navalní. Hann sagði í dag, sam­kvæmt BBC, að allt slíkt væri ósatt og að ásök­unum um slíkt væri ekki hægt að taka alvar­lega.

Hann setti enn fremur spurn­inga­merki við það hvort þýsku lækn­arnir hafi metið ástand Navalnís með réttum hætti og telur þá vera of fljóta að gefa út að allt bendi til eitr­unar, þar sem ekki sé búið að greina nákvæm­lega hvaða efni það sé sem hafi fund­ist í lík­ama Navalnís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

alþjóðastjórnmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár