Ísland hefur verið leiðandi í kynjajafnrétti á alþjóðavísu og setið efst á kynjajafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) ellefu ár í röð. Samkvæmt KidsRights index eru réttindi barna hvergi betur tryggð en hér á landi, en mælikvarðinn tekur mið af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þessi staða hefur styrkt rödd Íslands og gert okkur kleift að hafa áhrif á alþjóðavettvangi í mikilvægum málaflokkum á sviði jafnréttis og mannréttinda. Það sést meðal annars á framgöngu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna þar sem Ísland fór fyrir sameiginlegum yfirlýsingum um mannréttindabrot í Sádí Arabíu og Filippseyjum. Haft var eftir John Fisher, framkvæmdastjóra Genfarskrifstofu Mannréttindavaktarinnar (Human Rights Watch), að Ísland sannaði það að smáríki geta verið leiðtogar á heimsvísu.
Til þess að geta sinnt þessu hlutverki þarf Ísland áfram að standa vörð um mannréttindi, um réttindi kvenna og barna á alþjóðavísu og hér heima fyrir. COVID-19 faraldurinn hefur nú þegar haft miklar afleiðingar í för með sér, bæði fyrir einstaklinga sem og samfélagið í heild sinni. Ástandið undanfarna mánuði hefur svipt hulunni af ofbeldi sem konur og börn búa enn við í íslensku samfélagi, þrátt fyrir hlutfallslega góða stöðu þessara hópa í samanburði við önnur lönd.
[adspot]Fimm þúsund tilkynningar bárust um ofbeldi gagnvart börnum á Íslandi í fyrra og samkvæmt rannsókninni Líðan þjóðar í COVID hafa um 8% kvenna og 6% karla orðið fyrir ofbeldi á heimilum sínum frá því í vor þegar rannsóknin hófst. Það þýðir að fyrir eitt til tvö börn í hverjum bekk í grunnskóla er ekkert skjól að finna inni á heimilinu, þar ríkir ekki friður. Það er því mikilvægt að við stuðlum að umræðu um ofbeldi í nærumhverfi á Íslandi og ræðum opinskátt um að ekki allir einstaklingar búa við frið hér á landi.
Á árlegum friðardögum í Reykjavík, sem fram fara á netinu í ár í formi hlaðvarpsþáttaraðar undir yfirskriftinni: Er friðurinn úti?, verður fjallað sérstaklega um hugtakið frið og hvernig það tengist okkur sem einstaklingum og samfélagi. Við veltum því fyrir okkur hvort friður einkennist einungis af því að ekki ríki stríð eða hvort friður ríki þá aðeins ef allir einstaklingar samfélagsins lifa í friði án ofbeldis og mismununar. Einn viðmælandi hlaðvarpsþáttanna bendir á að ófriður í nærumhverfinu, sérstaklega umhverfi barna, muni alltaf leiða til ófriðar í framtíðinni. Það er því mikilvægt að börn eigi sér málsvara og búi við öryggi og frið, bæði inni á eigin heimilum en einnig úti í samfélaginu. Ein stærsta ógnin sem steðjar að öryggi komandi kynslóða eru loftslagsbreytingar. Sífellt fleiri fræðimenn benda á loftslagsbreytingar sem eina af orsökum óstöðugleika í heiminum. Ban Ki-Moon, fyrrum aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hefur sagt að ógnir vegna loftslagsbreytinga séu að minnsta kosti jafnmiklar og ógnir vegna stríðsátaka. Þá spáir Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna því að áður en árið 2050 gengur í garð verði um 250 milljón manns á flótta undan afleiðingum loftslagsbreytinga. Tengsl loftslagsbreytinga og ófriðar eru því einnig tekin fyrir í hlaðvarpsþáttunum og mikilvægt hlutverk ungs fólks í að stuðla að breytingum, eða eins og einn viðmælandinn benti á: “Trúum á vísindin og hlustum á unga fólkið”.
Umræða Friðardaga í Reykjavík verður í hámarki dagana 12. - 16. október en hún fer fram hér á Kjarnanum og á vefsíðu Höfða friðarseturs, www.fridarsetur.is. Fylgstu með og taktu þátt í umræðunni um það hvernig Ísland getur gert betur þegar kemur að ofbeldi og mismunun í íslensku samfélagi og um leið verið enn öflugri málsvari friðar á alþjóðavettvangi.
F.h. Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands:
Auður Birna Stefánsdóttir, Pia Hansson og Auður Örlygsdóttir.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir