Vilja ekki að Icelandair Group-samstæðan fái ríkisábyrgð, einungis flugfélagið

Tvær ferða­skrif­stofur hafa sent fjár­laga­nefnd umsögn þar sem þær mæl­ast geg því að Icelandair Group, sem er sam­stæða í marg­hátt­aðri starf­semi, fái rík­is­á­byrgð. Hún verði þess í stað bundin við flug­rekstur félags­ins, sem sé þjóð­hags­lega mik­il­vægur.

Tvær ferða­skrif­stofur, sem selja ferðir til Íslands, hafa sent fjár­laga­nefnd Alþingis umsagnir þar sem for­svars­menn þeirra lýsa yfir áhyggjum af fyr­ir­hug­aðri rík­is­á­byrgð Icelandair Group. Í báðum til­fellum snúa áhyggjur þeirra að því að innan Icelandair Group-sam­stæð­unnar er rekin mun umsvifa­meiri starf­semi en ein­ungis flug­rekstur. Innan hennar eru mörg fyr­ir­tæki sem séu í umtals­verðum og marg­hátt­uðum sam­keppn­is­rekstri í ferða­þjón­ustu inn­an­lands og í flutn­inga­starf­semi hér­lendis og erlendis. Ferða­skrif­stof­urnar tvær, Atlantik og GoNorth, leggj­ast báðar gegn því að Icelandair Group-sam­stæðan fái rík­is­á­byrgð en styðja að flug­fé­lagið Icelandair ehf., eitt dótt­ur­fé­laga sam­stæð­unnar, fái slíka.

Kjarn­inn greindi frá því nýverið að stjórn­völd seg­ist ætla að huga sér­stak­lega að því að rík­­is­á­­byrgð á láni til Icelandair Group sam­­rým­dist reglum um rík­­is­að­­stoð, enda eigi ráð­staf­­anir hins opin­bera ekki að fela í sér ótil­hlýð­i­­lega röskun á sam­keppn­i.

Rík­is­á­byrgðin yrði því tengd með beinum hætti við tap sem er til komið vegna áhrifa kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins á flug­­­rekstur félags­­ins.

[adspot]Með því tengja rík­­is­á­­byrgð­ina við tjón sem far­ald­­ur­inn veldur á flug­­­rekstr­inum á að stuðla gegn ótil­hlýð­i­­legum áhrifum á aðra þætti félags­­ins, en Icelandair Group rekur einnig til dæmis ferða­­skrif­­stof­­ur, á fjórð­ungs­hlut í hót­­el­keðju og rekur vöru­­flutn­inga­­fyr­ir­tæki.

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) sam­þykkti í síð­ustu viku rík­is­á­byrgð á lána­línu rík­is­bank­anna Íslands­banka og Lands­bank­ans til Icelandair Group. Rík­is­á­byrgðin nær yfir 90 pró­sent af lána­lín­unni og er upp á 15 millj­arða króna. Nýti Icelandair lín­una, og fari samt í þrot, mun íslenska ríkið eign­ast vöru­merkið Icelandair, bók­un­ar­kerfi félags­ins og nokkur lend­ing­ar­leyfi þess á lyk­ilá­fanga­stöð­u­m.

Hjálparhönd sem stendur öðrum fyrirtækjum ekki til boða

Í umsögn ann­arrar ferða­skrif­stof­unnar, Atlantik, segir að margir geti sann­mælts um að flug­fé­lagið Icelandair geti upp­fyllt skil­yrði rík­is­styrks og rík­is­á­byrgðar á lána­línu við núver­andi aðstæður. Atlantik myndi styðja slíka ákvörðun stjórn­valda til handa flug­fé­lag­inu Icelandair í ljósi aðstæðna.

Önnur starf­semi sam­stæð­unnar, fyrir utan flug­fé­lagið, geti hins vegar seint verið skil­greind sem þjóð­hags­lega mik­il­væg. „Það væri með öllu óeðli­legt ef þau eiga nú að njóta frek­ari stuðn­ings rík­is­ins umfram fjöl­mörg önnur félög hér á landi í sam­bæri­legum rekstri,“ segir í umsögn­inni.

Þar er til­tekið að fyr­ir­tæki innan Icelandair Group hafi í gegnum árin unnið þétt saman. „flug­fé­lagið Icelandair, ferða­skrif­stofan Iceland Travel og hót­el­sam­stæðan Icelandair Hotels hafa búið til vörur á mark­aði og verð­lagt inn­an­húss með þeim hætti með milli­verð­lagn­ingu að öðrum aðilum er nær ómögu­legt að mæta slíkri sam­keppni. Sama gildir um ferða­skrif­stof­una Vita og Icelandair[...] Hvernig eiga önnur félög að keppa við slíkt fyr­ir­komu­lag hjá fyr­ir­tækja­sam­steypu sem nýtur sér­stakrar fyr­ir­greiðslu rík­is­ins?“

[links]Að mati Atlantik eiga stjórn­völd ekki að þurfa að aðlaga sig að rekstr­ar­líkan Icelandair Group og því sé breyt­inga þörf ef ríkið eigi að tryggja áfram­hald­andi rekstur flug­fé­lags­ins. „Skilja þarf algjör­lega á milli þeirra fyr­ir­tækja innan sam­stæð­unnar sem þiggja rík­is­stuðn­ing og hinna. Það tók ekki langan tíma hjá Icelandair Group nú nýlega að sam­eina rekstur Air Iceland Connect við rekstur Icelandair. Miðað við mark­aðs­stöðu ann­arra félaga innan Icelandair Group ættu þau eftir sem áður að vera nægi­lega öflug saman til þess að mynda ein og sér sjálf­stæða ein­ingu á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði til hliðar við flug­fé­lagið Icelandair.“

Gunnar Rafn Birg­is­son, stjórn­ar­for­maður og eig­andi Atlantik, skrifar umsögn­ina. Þar rifjar hann upp að Atlantik sé fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sem hafi verið starf­andi í 42 ár á sömu kenni­tölu. „Við núver­andi aðstæður höfum við neyðst til þess að segja upp 80% af öllu okkar starfs­fólki og horfum fram á mjög erf­iða tíma og enn erf­ið­ari ef úr verður að beinir sam­keppn­is­að­ilar okkar innan Icelandair Group sem eru ekki í flug­rekstri verði veitt hjálp­ar­hönd í gegnum Icelandair Group, hjálp­ar­hönd sem öðrum fyr­ir­tækjum stendur ekki til boða.“

Gæti skekkt verulega samkeppnisstöðu

Ferða­skrif­stofan GoNorth hefur einnig sent inn umsögn sem er að svip­uðu meiði. Undir hana skrifar Unnur Svav­ars­dóttir, eig­andi og fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

Þar segir að GoNorth taki undir það að flug­fé­lagið Icelandair sé inn­lendri ferða­þjón­ustu gríð­ar­lega mik­il­vægt og það geti skipt sköpum fyrir fram­tíðar end­ur­upp­bygg­ingu ferða­þjón­ust­unnar að flug­fé­lagið starfi áfram. „En innan Icelandair Group eru hins vegar fyr­ir­tæki sem starfa á sam­keppn­is­grund­velli og margir inn­lendir aðilar vel í stakk búnir að sinna þeim þáttum ferða­þjón­ustu, svo sem ferða­skrif­stofu­rekstur sem er í höndum Iceland Travel (innan Icelandair Group) og hótel rekstur sem er í höndum Icelandairhotels (innan Icelandair Group).“

Stjórn­endur og eig­endur GoNorth vilja að Icelandair ehf. verði veitt rík­is­á­byrgð, ekki móð­ur­fé­lag­inu Icelandair Group. „Við teljum að með því að veita móð­ur­fé­lag­inu Icelandair Group rík­is­á­byrgðir, sé verið að styðja við öll félögin innan sam­steypunnar og það getur skekkt veru­lega sam­keppn­is­stöðu og veitt Icelandair tengdum félögum í hinum ýmsu greinum ferða­þjón­ust­unnar for­skot, sem önnur félög búa ekki við. GoNorth styður það heils­hugar að flug­fé­lag­inu Icelandair sé veitt rík­is­á­byrgð, en ekki móð­ur­fé­lag­inu Icelandair Group.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár