ESA samþykkir ríkisábyrgð fyrir Icelandair – Gæti þurft að skila hluta af stuðningnum

Eft­ir­lits­stofnun EFTA hefur gefið grænt ljós á rík­is­á­byrgð á lána­línu til Icelandair. Á næsta ári á Ísland að gera úttekt á tjóni félags­ins vegna COVID-19 og ef rík­is­stuðn­ing­ur­inn reyn­ist hærri en tjónið á félagið að skila mis­mun­inum.

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hefur sam­þykkt rík­is­á­byrgð á lána­línu rík­is­bank­anna Íslands­banka og Lands­bank­ans til Icelandair Group. Rík­is­á­byrgðin nær yfir 90 pró­sent af lána­lín­unni og er upp á 15 millj­arða króna. Nýti Icelandair lín­una, og fari samt í þrot, mun íslenska ríkið eign­ast vöru­merkið Icelandair, bók­un­ar­kerfi félags­ins og nokkur lend­ing­ar­leyfi þess á lyk­ilá­fanga­stöðum.

Í frétta­til­kynn­ingu frá ESA segir að ákvörðun stofn­un­ar­innar að sam­þykkja ábyrgð­ina byggi á grein samn­ings­ins um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) sem gerir EFTA-ríkjum eins og Íslandi kleift að bæta fyrir tjón sem ákveðin fyr­ir­tæki og atvinnu­greinar verða beint fyrir vegna óvenju­legra atvika, líkt og COVID-19 far­ald­ur­inn sé. „Þetta felur meðal ann­ars í sér ráð­staf­anir til að veita fjár­hags­legan stuðn­ing til fyr­ir­tækja í atvinnu­greinum sem hafa orðið illa úti af þessum sökum, eins og í sam­göngu-, ferða­þjón­ustu- og öðrum þjón­ustu­geirum.“

[adspot]Þar segir enn fremur að á næsta ári muni Ísland gera úttekt á því hvert raun­veru­legt tjón Icelandair reynd­ist sökum COVID-19. Reynist veittur stuðn­ingur hærri en sem nemur tjón­inu verður mis­mun­inum skilað til baka til rík­is­ins.

Bente Angell-Hansen, for­seti ESA, segir það mik­il­vægt fyrir efna­hag Íslands og ferða­frelsi borg­ar­anna að flug­sam­göngur geti haldið áfram til og frá Íslandi. „Við vinnum náið með íslenskum stjórn­völdum og fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins til að finna góðar leiðir til að heim­ila stuðn­ing við fyr­ir­tæki á þessum erf­iðu tímum.“

[links]Kjarninn greindi frá því á þriðju­dag að stjórn­völd ætl­uðu að huga sér­stak­lega að því að rík­is­á­byrgð á láni til Icelandair Group sam­rým­ist reglum um rík­is­að­stoð, enda eigi ráð­staf­anir hins opin­bera ekki að fela í sér ótil­hlýði­lega röskun á sam­keppn­i.

Rík­is­á­byrgðin yrði því tengd með beinum hætti við tap sem er til komið vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á flug­rekstur félags­ins.

Með því tengja rík­is­á­byrgð­ina við tjón sem far­ald­ur­inn veldur á flug­rekstr­inum á að stuðla gegn ótil­hlýði­legum áhrifum á aðra þætti félags­ins, en Icelandair Group rekur einnig til dæmis ferða­skrif­stof­ur, á fjórð­ungs­hlut í hót­el­keðju og rekur vöru­flutn­inga­fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár