Ríkisábyrgð Icelandair verður beintengd við tap vegna flugreksturs

Stjórn­völd segja að hugað hafi verið sér­stak­lega að því að rík­is­á­byrgð á láni til Icelandair Group, sem á fjölda dótt­ur­fé­laga, sam­rým­ist reglum um rík­is­að­stoð, enda eigi ráð­staf­anir hins opin­bera ekki að fela í sér ótil­hlýði­lega röskun á sam­keppni.

Icelandair Group- samstæðan samanstendur af nokkrum fyrirtækjum.
Icelandair Group- sam­stæðan sam­anstendur af nokkrum fyr­ir­tækjum. Mynd: Icelandair

Stjórn­völd segja að hugað hafi verið sér­stak­lega að því að rík­is­á­byrgð á láni til Icelandair Group sam­rým­ist reglum um rík­is­að­stoð, enda eigi ráð­staf­anir hins opin­bera ekki að fela í sér ótil­hlýði­lega röskun á sam­keppni.

Rík­is­á­byrgð á 90 pró­sent af lána­línu til Icelandair Group upp á allt að 120 millj­ónir dala, sem er um 16,5 millj­arðar króna á núver­andi gengi, verður tengd með beinum hætti við tap sem er til komið vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á flug­rekstur félags­ins. 

Með því tengja rík­is­á­byrgð­ina við tjón sem far­ald­ur­inn veldur á flug­rekstr­inum er stuðlað gegn ótil­hlýði­legum áhrifum á aðra þætti félags­ins, en Icelandair Group rekur einnig til dæmis ferða­skrif­stofur, á fjórð­ungs­hlut í hót­el­keðju og rekur vöru­flutn­inga­fyr­ir­tæki.

Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

[adspot]Þeir sem munu veita umrædda lána­línu eru helstu við­skipta­bankar Icelandair, Lands­bank­inn og Íslands­banki. Hvor um sig mun lána helm­ing upp­hæð­ar­innar.

Spurningar um áhrif á samkeppni

Þann 18. ágúst var birt frétta­til­kynn­ing frá ráðu­neyt­inu um rík­is­á­byrgð á lána­línu til Icelandair Group. Litlar upp­lýs­ingar voru um eðli ábyrgð­ar­innar í frétta­til­kynn­ing­unni en fyrir liggur að hún þarf að sam­þykkj­ast af Alþingi áður en hún tekur gildi.

[links]Icelandair Group sam­anstendur af sjö fyr­ir­tækjum, og flest hver mark­aðs­ráð­andi á sínu sviði innan ferða­þjón­ust­unnar. Auk flug­fé­lags­ins Icelandair til­heyra sam­stæð­unni ferða­skrif­stof­urnar Vita og Iceland Travel, inn­an­lands­flug­fé­lagið Air Iceland Connect, Loft­leiðir Icelandic og Icelandair Cargo. Þá á Icelandair Group 25 pró­sent í hótel-keðj­unni Icelandair Hotels.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið um hvort að búið væri að leggja mat á hvort það stand­ist íslensk og evr­ópsk sam­keppn­is­lög, sem Ísland hefur skuld­bundið sig til að fylgja á grund­velli EES-samn­ings­ins, að ríkið sé að veita rík­is­á­byrgð á láni til sam­stæðu í fjöl­breyttum sam­keppn­is­rekstri.

Ákvörðun liggur fyrir fljótlega

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að hugað hafi verið sér­stak­lega að því að hin fyr­ir­hug­aða rík­is­á­byrgð sam­rým­ist reglum um rík­is­að­stoð, sem meðal ann­ars gera kröfu um að ráð­staf­anir hins opin­bera feli ekki í sér ótil­hlýði­lega röskun á sam­keppni. „Ábyrgðin sem ætl­unin er að rík­is­sjóður veiti verður tengd með beinum hætti við tap sem er til komið vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á flug­rekstur félags­ins. Gert er ráð fyrir að sam­bæri­leg við­mið verði lögð til grund­vallar útreikn­ingi á tapi í flug­rekstri og gert var í tengslum við rík­is­á­byrgð sem Svíþjóð og Danmörk veittu SAS nýlega (sjá ákvörðun og frétta­til­kynn­ingu). Með því tengja rík­is­á­byrgð­ina við tjón sem far­ald­ur­inn veldur á flug­rekstr­inum er stuðlað gegn ótil­hlýði­legum áhrifum á aðra þætti félags­ins.“

Í svar­inu segir enn fremur að aðferð­ar­fræð­inni sem um ræðir verði frekar lýst í ákvörðun Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) vegna hinnar fyr­ir­hug­uðu rík­is­á­byrgðar, sem gert er ráð fyrir að liggi fyrir fljót­lega. Ákvörðun ESA verður birt á vef stofn­un­ar­innar eftir að trún­að­ar­upp­lýs­ingar hafa verið afmáðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár