Skjálftahrinan á Reykjanesi ótengd skjálftum á Tjörnesbrotabeltinu

Innan við sól­ar­hring eftir að skjálfti af stærð­inni 4,7 varð á Tjör­nes­brota­belt­inu fór jörð að skjálfa á Reykja­nesi. Skjálft­arnir ekki fyr­ir­boði um eld­gos þrátt fyrir að Grím­svötn séu komin á tíma að sögn jarð­vís­inda­manns.

Fjöldi skjálfta hefur orðið á Reykjanesskaga síðustu klukkustundir.
Fjöldi skjálfta hefur orðið á Reykja­nesskaga síð­ustu klukku­stundir. Mynd: Skjáskot af vef Veðurstofu Íslands

Skjálfta­hrinan sem gengið hefur yfir Reykja­nesskag­ann er ekki bein­tengd skjálfta­hrin­unni í Tjör­nes­brota­belt­inu að und­an­förnu. Þetta segir Bryndís Brands­dóttir, vís­inda­maður við Jarð­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands, í sam­tali við Kjarnann.

Skjálfti af stærð­inni fimm varð skömmu fyrir mið­nætti í gær­kvöldi skammt frá Fagra­dals­fjalli. Síðan þá hafa margir minni skjálftar orðið á svæð­inu, þar af tveir stærri en fjögur stig. Þegar fyrsti stóri skjálft­inn varð á Reykja­nesi var ekki sól­ar­hringur lið­inn frá því að skjálfti af stærð 4,4 mæld­ist um tíu kíló­metra norð-norð­vestur af Gjögurtá.

Skjálftarnir ekki fyrirboði eldgoss

Bryndís segir þessa skjálfta sitt hvoru megin á land­inu ekki tengj­ast. „Þetta teng­ist nú ekki, það er alla­vega mjög lang­sótt. Þetta eru nú ekki það stórir skjálftar þó þeir séu rúm­lega fjögur stig að stærð. Þú getur séð á því hvernig þeir finn­ast, hvaða áhrif þeir hafa. Þeir hafa nú ekki mikil áhrif suður í land, þetta sem er að ger­ast fyrir norðan. En það eru þarna mis­gengi á báðum stöðum sem eru að hreyfast.“

Spurð að því hvort jarð­hrær­ing­arnar gefi til kynna að von sé á gosi segir Bryndís svo ekki vera. „En Grím­svötn eru komin á tíma, mæl­ingar á land­risi á svæð­inu sýna að þau hafa tútnað út og eru komin í sömu hæð og þau voru þegar það gaus síð­ast 2011,“ segir hún.


Óvíst með framhaldið

Á þessu stigi máls­ins er erfitt að segja til um fram­haldið að mati Bryn­dísar. „Það er í raun­inni ómögu­legt að segja. Það er búin að vera þrá­lát virkni þarna á Reykja­nesi og auð­vitað teng­ist þetta eitt­hvað land­risi við Þorbjörn. Og það er eng­inn til­bú­inn til að segja neitt um það hvernig það mun halda áfram, við verðum bara að fylgj­ast með og veð­ur­stofan er með mæla á svæð­inu. Þau þurfa sinn tíma til að fara yfir þetta og fá nákvæm­ari stað­fest­ingar.

Þú verður eig­in­lega að hringja í mig eftir ár ef þú vilt fá nákvæm­ari upp­lýs­ingar,“ segir Bryndís kímin að lokum.

Í jan­úar hófst land­ris við fellið Þorbjörn skammt frá Grinda­vík sam­hliða jarð­skjálfta­hr­inu. Um tíma stöðv­að­ist land­risið en um miðjan júní hafði land þar risið um 12 sentí­metra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðhræringar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár