Annar stór skjálfti á Reykjanesi

Skjálfti sem mæld­ist 4,6 stig varð rétt fyrir 6 í morgun á Reykja­nesi, á svip­uðum slóðum og stóri skjálft­inn í gær­kvöldi sem reynd­ist 5 stig. Grjót­hrun varð í nágrenni upp­tak­anna.

Fjöldi skjálfta hefur orðið á Reykjanesi síðustu klukkustundir.
Fjöldi skjálfta hefur orðið á Reykja­nesi síð­ustu klukku­stundir. Mynd: Skjáskot Veðurstofa Íslands

Jarð­skjálfta­hrina er nú á Reykja­nesi og mæld­ist stór skjálfti, 4,6 stig, nú klukkan 5.46 í morgun. Klukkan 23.36 í gær varð skjálfti sem mæld­ist 5 stig. Fjöldi smærri skjálfta hefur fylgt og hafa um tutt­ugu þeirra, sam­kvæmt óyf­ir­förnum frum­nið­ur­stöðum, verið 3 stig eða stærri frá mið­nætti. Upp­lýs­ingar hafa borist veð­ur­stof­unni um grjót­hrun í Fest­ar­fjalli sem er um sex kíló­metrum suð­vestur af upp­tökum skjálft­ans.

Stóri skjálft­inn í gær varð um þrjá kíló­metra norður af Fagra­dals­fjalli á Reykja­nesi. Samkvæmt óyf­ir­förnum mæl­ingum úr sjálf­virkum mælum var hann 4,4 en að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra reynd­ist hann 5 að stærð.

Sá skjálfti fannst víða, meðal ann­ars á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á Stokks­eyri, í Vest­manna­eyjum og í Borg­ar­nesi.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá veð­ur­stof­unni urðu fleiri en 700 skjálftar við Fagra­dals­fjall í gær og við­búið að þeir verði fleiri.

Ekki er hægt að úti­loka fleiri stóra skjálfta á svæð­inu í þess­ari hrinu, segir í til­kynn­ingu almanna­varna.

Í jan­úar hófst land­ris við fellið Þorbjörn skammt frá Grinda­vík sam­hliða jarð­skjálfta­hr­inu. Um tíma stöðv­að­ist land­risið en um miðjan júní hafði land þar risið um 12 sentí­metra.

Jörð hefur skolfið víðar á Íslandi und­an­farið. Á Norð­ur­landi hefur jarð­skjálfta­hrina einnig verið í gangi.

Vísbendingar um að Grímsvötn búi sig undir eldgos

Vís­inda­ráð almanna­varna hitt­ist á fundi 10. júní vegna jarð­hrær­inga á Reykja­nesskaga og nýlegra mæl­inga í Grím­svötnum. Á fund­inum kom fram að um miðjan maí hófst þensla að nýju vestan við Þorbjörn sem benti til þess að þriðja kvikuinnskotið á þessu svæði frá ára­mótum væri að eiga sér stað. Inn­skotið virð­ist hafa byrjað að mynd­ast um miðjan maí en jarð­skjálfta­virkni jókst nokkru síðar eða þann 30. maí. Í þeirri hrinu var stærsti skjálft­inn 3,5 stig.

Á fund­inum var einnig rætt um stöð­una í Grím­svötnum, en Jarð­vís­inda­stofnun og Veð­ur­stofa Íslands voru þar við mæl­ingar í byrjun júní. Á virkni­tíma­bilum eins og verið hefur frá 1996, er algengt að 5-10 ár séu milli gosa í Grím­svötnum. Síðast gaus þar 2011 og var það nokkuð stórt og kröft­ugt gos. Á þeim tíma sem lið­inn er frá gos­inu benda mæl­ingar til þess að kvika hafi safn­ast fyrir og þrýst­ingur í kviku­hólfi auk­ist. Í byrjun júní mældu starfs­menn Veð­ur­stof­unnar brenni­steins­dí­oxíð, SO2, í suð­vest­ur­horni Grím­s­vatna, nærri þeim stað þar sem gaus 2004 og 2011. „Þetta er í fyrsta sinn sem SO2 mælist í svo miklu magni í eld­stöð á Íslandi án þess að eld­gos sé í gangi og er vís­bend­ing um grunn­stæða kviku“, var haft eftir Melissu Anne Preffer, sér­fræð­ingi á Veð­ur­stofu Íslands, í til­kynn­ingu. Sagði hún að til við­bótar við aukið magn SO2, færi svæðið þar sem jarð­hiti á yfir­borði mælist stækk­andi.

Mögulegt að eldgos brjótist út í lok jökulhlaups

Í til­kynn­ingu vís­inda­ráðs­ins kom fram að aðstæður í Grím­svötnum væru þannig að vatns­borð standi fremur hátt auk þess sem kviku­þrýst­ingur væri hár í kviku­hólf­inu undir öskj­unni. „Því verður að gera ráð fyrir þeim mögu­leika að eld­gos brjót­ist út í lok jök­ul­hlaups, sem gæti orðið á næstu vikum eða mán­uðum. Alls ekki er víst að svona fari, jök­ul­hlaup á næst­unni þarf ekki að leiða til eld­goss.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðhræringar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár