Stjörnuegg vill fjölga fuglum í allt að 95 þúsund að Vallá

Fyr­ir­tækið Stjörnu­egg hf. áformar breyt­ingar á eld­is­húsum sínum að Vallá á Kjal­ar­nesi sem yrðu til þess að hægt væri að koma þar fyrir 95 þús­und fuglum í stað 50 þús­und nú. Slíkum fjölda fylgja um 3.500 tonn af hænsna­skít á ári.

Eldishús með Aviary Pro 10 varpkerfi frá Hellmann sambærilegt kerfum sem verða í notkun að Vallá.
Eldishús með Aviary Pro 10 varp­kerfi frá Hellmann sam­bæri­legt kerfum sem verða í notkun að Vallá. Mynd: Úr tillögu að matsáætlun

Fyr­ir­tækið Stjörnu­egg hf. áformar að inn­rétta núver­andi eld­is­hús fyr­ir­tæk­is­ins að Vallá á Kjal­ar­nesi með nýjum bún­aði. Um er að ræða palla­skiptan varp­búnað fyrir varp­hænur sem verður til þess að hægt er að auka fram­leiðslu­getu hús­anna úr 50 þús­und fuglum í 95 þús­und. Að með­al­tali yrðu um 75.000 verp­andi hænur á búinu eftir breyt­ing­arnar og 10.000 yngri fuglar. Þetta kemur fram í til­lögu að mats­á­ætlun sem er nú í kynn­ing­ar­ferli hjá Skipu­lags­stofnun.

Fram­kvæmdin er mats­skyld sam­kvæmt lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum þar sem um er að ræða svo­kallað þaul­eldi ali­fugla með að minnsta kosti 85.000 stæði fyrir kjúklinga eða 60.000 fyrir hænur.

Í skýrsl­unni er gerð grein fyrir fyr­ir­hug­aðri fram­kvæmd, þeim val­kostum sem til greina koma, umhverf­is­þáttum sem taldir eru geta orðið fyrir áhrifum og hvernig fram­kvæmda­að­ili hyggst standa að mati á umhverf­is­á­hrifum. Drög að til­lög­unni voru kynnt um tveggja vikna skeið í lok árs 2017. Engin athuga­semd barst.

[adspot]

Eggjabú hefur verið starf­rækt á jörð­inni Vallá á Kjal­ar­nesi frá árinu 1970. Á árunum 2013 og 2015 voru reist þar tvö ný eld­is­hús sem eru útbúin svoköll­uðum Aviary-varp­bún­aði en í eldri húsum, sem eru fjögur tals­ins, hefur eldið farið fram í búrum og með lausa­göngu hæn­anna á rista­gólfum.

Stjörnu­egg áformar nú að ráð­ast í end­ur­nýjun á varp­bún­aði í eldri hús­unum og hætta þar með notkun á búrum og lausa­göngu á ristum. Í til­lögu að mats­á­ætlun kemur fram að Aviary-varp­kerfið sé byggt upp á pöllum, sem auki „aðgengi­legt gólf­rými fugl­anna miðað við grunn­flöt hús­anna sjálfra. Með þessum breyt­ingum eykst aðgengi­legt rými og húsin geta rúmað fleiri fugla. Að auki bætir þetta aðstöðu til muna, t.d. hvað varðar þrif“.

Í til­lög­unni kemur enn­fremur fram að með breyt­ingu á bún­aði megi auka fram­leiðslu­getu bús­ins og mæta auk­inni eft­ir­spurn eftir eggjum. Þá segir að búið upp­fylli kröfur um aðbúnað ali­fugla.

Í til­lög­unni, sem unnin er af verk­fræði­stof­unni Eflu, er áform­uðu fyr­ir­komu­lagi lýst með eft­ir­far­andi hætti: Að breyt­ingum loknum verða alls 12 eld­is­deildir á búinu og hverri deild skipt í rými fyrir að hámarki 4.000 fugla. Verður aðgengi­legt svæði fyrir 8.000-13.360 fugla í deildum bús­ins. Þegar end­ur­bótum og upp­setn­ingu á Aviary-varp­bún­aði er lokið verður á búinu aðgengi­legt rými fyrir allt að 95.000 fugla á mis­mun­andi vaxt­ar­stigum.

Farið að reglum um velferð alifugla

Þar sem nýja varp­kerfið er á pöllum eykst sá fer­metra­fjöldi sem hægt er að halda fugla á og verður sam­tals 6.525 fer­metrar þó grunngólf­flötur sé mun minni. Í til­lög­unni kemur einnig fram að í reglu­gerð um vel­ferð ali­fugla skuli að hámarki vera 9 fuglar innan við 2,4 kíló að þyngd á hvern fer­metra.

Samkvæmt til­lög­unni fer upp­eldi hænu­unga fram á búum í Sætúni og í Saltvík sem eru í nokk­urra kíló­metra fjar­lægð frá Vallá. Unghænur eru fluttar 13-18 vikna gamlar í eld­is­húsin á Vallá. Þá tekur við 4-5 vikna vaxt­ar­tími áður en fugl­arnir hefja varp. Heildar dval­ar­tími fugla í húsum á Vallá er um 60 vikur eða rétt rúm­lega ár. Að þeim tíma liðnum er eld­is­lotu lokið, eins og það er orðað, og hræjum fugl­anna komið til urð­unar hjá Sorpu. Síðan eru húsin tæmd, þrifin og sótt­hreinsuð. „Alls líður mán­uður frá því að slát­ur­fugl er fjar­lægður uns nýjar ung­hænur koma inn í húsin.“

3.500 tonn af skít

Meðal þeirra umhverf­is­þátta sem fjallað er um í til­lög­unni, og ítar­legri grein verður gerð fyrir í frum­mats­skýrslu sem er næsta skref skipu­lags­ferl­is­ins, er að hænsna­skítur frá eld­is­húsum Vallá sé í dag fluttur á nær­liggj­andi bú, Geld­ingaá í Leir­ár­sveit. Þar er hann not­aður sem áburður. Fyr­ir­tækið Stjörnu­egg hefur gert sam­komu­lag við land­eig­endur Geld­ingaár og hefur til ráð­stöf­unar um 300 hekt­ara lands til að dreifa skítnum auk heima­túna.

Aukið magn af hænsna­skít mun falla til frá eggja­bú­inu að Vallá á rekstr­ar­tíma vegna auk­innar fram­leiðslu. Í eld­is­húsi fellur skít­ur­inn niður á færi­band sem flytur hann í gám í enda húss­ins. Þaðan er hann fluttur að Geld­ingaá í Leir­ár­sveit.

Að jafn­aði falla að sögn Stjörnu­eggs um 100 grömm af hænsna­skít frá hverjum fugli á dag. Sé miðað við hámarks­nýt­ingu húsa með sam­tals 95.000 fuglum er áætlað árlegt magn skíts um 3.500 tonn.

Tillagan er aðgengi­leg á vef Skipu­lags­stofn­unar. Allir geta kynnt sér til­lög­una og lagt fram athuga­semdir. Athuga­semdir skulu vera skrif­legar og ber­ast eigi síðar en 27. júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár