Hlutur olíufélaga í hverjum seldum lítra dregst saman – Hlutur ríkisins í hæstu hæðum

Inn­kaupa­verð á bens­ín­lítra hefur hækkað skarpt eftir að hafa náð sínum lægsta punkti í sög­unni í apríl. Sá hlutur af hverjum seldum lítra sem lendir í vasa olíu­fé­lag­anna hefur dreg­ist saman um 40 pró­sent, en hlutur rík­is­ins vegna skatt­lagn­ingar auk­ist.

Stærsta bensínstöðvarkeðja landsins er N1.
Stærsta bens­ín­stöðv­ar­keðja lands­ins er N1. Mynd: Bára Huld Beck

Um miðjan apríl síð­ast­lið­inn hafði lík­legt inn­kaupa­verð íslenskra olíu­fé­laga á bens­í­lítra lækkað um meira en 60 pró­sent. Sú lækkun, sem var til­komin vegna hruns á olíu­verði á heims­mark­aði, skil­aði sér til íslenskra neyt­enda á þeim tíma, enda var bens­ín­verð nán­ast það sama 15. apríl og það var um miðjan mars. Hlutur íslensku olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra var hins vegar 78 pró­sent hærri en hún var í mars.

Síðustu tvo mán­uði hefur þessi staða lag­ast umtals­vert. Samkvæmt nýj­ustu Bens­ín­vakt Kjarn­ans, sem unnin er í sam­vinnu við Bens­ín­verð.is, hefur krónu­talan sem skilar sér til olíu­fé­lag­anna af hverjum seldum lítra farið úr því að vera 63,35 krónur í apríl að að vera 37.94 krónur nú. Hlut­deild olíu­fé­lag­anna hefur því dreg­ist saman um 40 pró­sent á tveimur mán­uðum.Á sama tíma hefur við­mið­un­ar­verð á bens­íni farið úr því að vera 208,9 krónur á lítra í 198 krónur. Verðið hefur lækkað um fimm pró­sent frá því í apríl.

Innkaupverð skýst upp

Líklegt inn­kaupa­verð á bens­íni hefur snar­hækkað und­an­farna tvo mán­uði. Í apríl var 19,92 krónur á lítra, sem er það lægsta sem það hefur nokkru sinni verið. Nú er það 36,54 krónur og hefur því hækkað um 83 pró­sent frá miðjum mars. Vert er þó að taka fram að hið gríð­ar­lega verð­fall sem varð á heims­mark­aði olíu gerði það að verkum að verðið féll um tæp­lega 61 pró­sent milli mars og apríl. Það er því að leið­rétta sig að nýju. Ástæð­urnar fyrir þessum miklu sveiflum eru, líkt og áður sagði, ann­ars vegar verð­fall á heims­mark­aði og hins vegar mik­ill sam­dráttur í neyslu vegna COVID-19, meðal ann­ars vegna þess að flug­ferðir voru að mestu aflagðar.

[adspot]Bens­ín­vakt Kjarn­ans reiknar út lík­­­­­legt inn­­­­­kaups­verð á bens­íni út frá verði á lítra til afhend­ingar í New York í upp­­­hafi hvers mán­aðar frá banda­rísku orku­­­stofn­un­inni EIA og mið­gengi Banda­ríkja­dals gagn­vart íslenskri krónu í yfir­­­stand­andi mán­uði frá Seðla­­­banka Íslands.

Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­­­punkti vegna lag­er­­­stöðu eða skamm­­­tíma­­­sveiflna á mark­aði. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­­­upp­­­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­­­um. Mis­­­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­­­­­leitt mjög lít­ill.

Hlutur rík­­is­ins í hverjum lítra 62,83 pró­­sent

Íslenska ríkið tekur til sín stóran hluta af hverjum seldum lítra af bens­íni. Þannig fór 23,43 pró­­­sent af verði hans um miðjan júní í sér­­­stakt bens­ín­gjald, 14,55 pró­­­sent í almennt bens­ín­­­gjald og 5,05 pró­­­sent í kolefn­is­­­gjald. Þá er ótalið að 19,35 pró­­­sent sölu­verðs er virð­is­auka­skatt­­­ur.

Sam­an­lagt fór því 124,4 krónur af hverjum seldum lítra til rík­­­is­ins, eða 62,83 pró­sent.

Það er næst hæsti hlut­falls­legi hlutur rík­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra. Eina skiptið sem hann hefur verið hærri var í maí 2020, þegar hann var 63,27 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvakt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár