Bensínverð ekki verið hærra í tæp þrjú ár

Bens­ín­verð hefur hækkað um tæp­lega tíu pró­sent frá ára­mótum. Verðið hefur ekki verið hærra frá því í ágúst 2015. Ríkið tekur til sín 56,44 pró­sent af sölu­and­virði hvers lítra en hlut­deild olíu­fé­lag­anna er 17,66 pró­sent.

Viðmiðunarverð á bensíni á Íslandi um miðjan maí 2018 var 214,9 krónur á lítra og hækkaði um 8,1 krónu frá fyrri mánuði. Verðið hefur ekki verið hærra í tæp þrjú ár, eða frá því að það var 215,6 krónur í ágúst 2015. Þetta kemur fram í ný birtri Bensínvakt Kjarnans sem unnin er í samvinnu við Bensínverð.is.

Bensínverð hefur hækkað umtalsvert frá áramótum, en það var 195,9 krónur á lítra um miðjan desember síðastliðinn. Það þýðir að lítraverðið hefur hækkað um tæplega tíu prósent frá þeim tíma. Á sama tíma hefur gengi íslensku krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar, sem innkaup á bensíni fara fram í, styrkst um tæpt eitt prósent. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hins vegar hækkað um 25 prósent og í ljósi þess að slíkar hækkanir taka oft nokkurn tíma til að skila sér í smásöluverði á Íslandi má búast við því að verð á bensíni hérlendis haldi áfram að hækka í nánustu framtíð.

Stór hluti fer til ríkisins

Íslenska ríkið tekur til sín stóran hluta af hverjum seldum lítra af bens­íni. Þannig fór 20,52 pró­sent af verði hans um miðjan maí í sér­stakt bens­ín­gjald, 12,73 pró­sent í almennt bens­ín­gjald og 3,8 pró­sent í kolefn­is­gjald. Þá er ótalið að 19,35 pró­sent sölu­verðs er virð­is­auka­skattur. Sam­an­lagt fór því 121,29 krónur af hverjum seldum lítra til rík­is­ins, eða 56,44 pró­sent. Hæstur fór hlutur rík­is­ins í 60,26 pró­sent í júlí 2017.

Bens­ín­vakt Kjarnans reiknar einnig út lík­legt inn­kaups­verð á bens­íni út frá verði á lítra til afhend­ingar í New York í upp­hafi hvers mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands.

Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veitum. Mismunur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.

Líklegt inn­kaups­verð í síð­ustu birtu Bens­ín­vakt var 55,66 krónur á lítra og hefur hækkað um 13,3 pró­sent frá því um miðjan des­em­ber 2017.

Hlutdeild olíufélaga hefur dregist saman

Bens­ín­vaktin reiknar loks út hlut olíu­fé­lags í hverjum seldum lítra sem afgangs­stærð þegar búið er að greina aðra kostn­að­ar­liði, líkt og farið er yfir hér að ofan. Hlutur olíu­fé­laga, þ.e. álagn­ingin sem fer í þeirra vasa, er nú að minnsta kosti 37,95 krónur á hvern seldan bens­ín­lítra. Það er nán­ast sama upp­hæð og var í mán­uð­inum áður en hún hefur lækkað umtals­vert á síð­ast­liðnu ári. Í maí 2017 fengu olíu­fé­lögin 41,74 krónur í sinn hlut af hverjum seldum lítra, eða tíu pró­sent meira en þau gera í dag.

Olíu­fé­lögin taka nú að minnsta kosti 17,66 pró­sent af hverjum seldum olíu­lítra. Það hlut­fall náði lægsta punkti sínum í sept­em­ber 2017 þegar olíu­fé­lögin fengu 11,38 pró­sent í sinn hlut.

Til sam­an­burðar þá fengu þau 21,3 pró­sent af hverjum seldum lítra fyrir ári síðan. Hlutur olíu­fé­lag­anna hefur því hlut­falls­lega dreg­ist saman um fimmt­ung á einu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvakt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár