Bensínverð hækkað um ellefu prósent á árinu

Verð á elds­neyti á Íslandi er í hæstu hæðum um þessar mundir. Hækk­un­ar­hrinan náði hámarki í júní og verðið hefur ekki verið hærra en það var þá í rúm þrjú ár.

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni á Íslandi um miðjan ágúst 2018 var 217,8 krónur á lítra og hélst óbreytt frá júlí­mán­uði. Verðið hefur hækkað skarpt það sem af er ári og náði sú hækk­un­ar­hrina hámarki í júní síð­ast­liðnum þegar verðið var 219,9 krónur á lítra. Verðið hafði ekki verið í þeim hæðum frá því í júlí 2015, eða í þrjú ár. Þetta kemur fram í ný birtri Bens­ín­vakt Kjarn­ans sem unnin er í sam­vinnu við Bens­ín­verð.is.

Frá ára­mótum hefur bens­ín­verðið hækkað um 21,9 krónur á lítra, eða um rúm ell­efu pró­sent. Á sama tíma hefur gengi íslensku krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­doll­ar, sem inn­kaup á bens­íni fara fram í, styrkst um rétt rúm­lega eitt pró­sent. Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur hins vegar hækkað um 20 pró­sent á sama tíma. Flestir sér­fræð­ingar virð­ast sam­mála um að elds­neyt­is­verð eigi eftir að halda áfram að hækka á næstu mán­uðum.

Ríkið tekur rúmlega helming

Íslenska ríkið tekur til sín stóran hluta af hverjum seldum lítra af bens­íni. Þannig fór 20,25 pró­sent af verði hans um miðjan ágúst í sér­stakt bens­ín­gjald, 12,56 pró­sent í almennt bens­ín­gjald og 3,8 pró­sent í kolefn­is­gjald. Þá er ótalið að 19,35 pró­sent sölu­verðs er virð­is­auka­skatt­ur. Sam­an­lagt fór því 121,88 krónur af hverjum seldum lítra til rík­is­ins, eða 55,96 pró­sent. Hæstur fór hlutur rík­is­ins í 60,26 pró­sent í júlí 2017.

Bens­ín­vakt Kjarn­ans reiknar einnig út lík­legt inn­kaups­verð á bens­íni út frá verði á lítra til afhend­ingar í New York í upp­hafi hvers mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands.

[adspot]Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­um. Mis­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.

Lík­legt inn­kaups­verð í síð­ustu birtu Bens­ín­vakt var 59,59 krónur á lítra og hefur hækkað um 21,3 pró­sent frá því um miðjan des­em­ber 2017.

Olíufélögin fá minna en oft áður

Bens­ín­vaktin reiknar loks út hlut olíu­fé­lags í hverjum seldum lítra sem afgangs­stærð þegar búið er að greina aðra kostn­að­ar­liði, líkt og farið er yfir hér að ofan. Hlutur olíu­fé­laga, þ.e. álagn­ingin sem fer í þeirra vasa, er nú að minnsta kosti 36,35 krónur á hvern seldan bens­ín­lítra. Hún hefur lækkað umtals­vert á síð­ast­liðnu ári. Í maí 2017 fengu olíu­fé­lögin 41,74 krónur í sinn hlut af hverjum seldum lítra, eða um 15 pró­sent meira en þau gera í dag.

Olíu­fé­lögin taka nú að minnsta kosti 16,69 pró­sent af hverjum seldum olíu­lítra. Það hlut­fall náði lægsta punkti sínum í sept­em­ber 2017 þegar olíu­fé­lögin fengu 11,38 pró­sent í sinn hlut.

Til sam­an­burðar þá fengu þau 21,3 pró­sent af hverjum seldum lítra í maí 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvakt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár