Landinn óður í útivist

Uppselt er í margar ferðir Ferða­fé­lags Íslands og félagið hefur þurft að bæta við ferðum. Níu af hverjum tíu ætla að ferð­ast inn­an­lands í sumar sam­kvæmt könnun Ferða­mála­stofu.

Laugavegurinn er ein allra vinsælasta gönguleið landsins en gengið er frá Landmannalaugum.
Lauga­veg­ur­inn er ein allra vin­sælasta göngu­leið lands­ins en gengið er frá Land­manna­laugum. Mynd: EPA

Lands­menn virð­ast í auknum mæli sækja í úti­vist þetta sum­arið. Spreng­ing hefur orðið í bók­unum á ferðum hjá Ferða­fé­lagi Íslands og sam­kvæmt nýlegri könnun Ferða­mála­stofu ætla níu af hverjum tíu að ferð­ast inn­an­lands í sumar.

Starfs­fólk Ferða­fé­lags Íslands finnur vel fyrir auknum áhuga á ferðum félags­ins í sumar. Sést það meðal ann­ars í því að félags­mönnum hefur fjölgað um rúm­lega 300 á síð­ustu vikum. Fjöldi félaga nálg­ast 10.000 og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þá hefur selst upp í margar ferðir félags­ins og það þurft að bæta við ferðum.

„Þegar ljóst var hversu mik­ill áhugi var á ferðum félags­ins um miðjan apríl, þá kom ferða­nefndin aftur saman og bætt var við ferðum og verk­efnum. Segja má að við­bót nýrra ferða og bók­anir nemi þegar um 30% aukn­ingu og eigum við þó enn eftir að bæta við ferðum og munum gera það á næstu tveimur vikum.“ segir Páll Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Ferða­fé­lags­ins, í sam­tali við Kjarnann.

„Í ljósi þessa mikla áhuga þá höfum við bætt við starfs­fólki í sum­ar­störf í afgreiðslu sem er auð­vitað mjög ánægju­legt miðað við hvað staðan er víða þung í atvinnu­líf­inu,“ bætir hann við.[adspot]

Halldór Hreins­son eig­andi Fjalla­kof­ans hefur ekki farið var­hluta af auknum áhuga land­ans á úti­vist. „Frá nið­ur­fell­ingu sam­komu­banns er þetta líkt og skrúfað hafi verið frá krana,“ segir Halldór um aðsókn­ina í úti­vist­ar­vörur.

Að hans mati er ljóst að sam­komu­bann og aukin inni­vera sem henni fylgdi hafi aukið áhuga fólks á úti­vist. „Við erum að taka á móti mikið af fjöl­skyldum sem eru að stíga upp úr sóf­anum og ætla að ferð­ast inn­an­lands af því að þau kom­ast ekki til sól­ar­landa. Þetta er jákvæð þróun í þeirri merk­ingu að við­kom­andi ein­stak­lingar og fjöl­skyldur kynn­ast land­inu og hvort öðru betur í svona ferða­lögum.“

Halldór bendir á að mesta aukn­ingin sé þó í sölu fjalla­skíða. „Þetta er búið að fjór­fald­ast núna miðað við eðli­legt árferði, bara á síð­ustu mán­uðum og maí er búinn að vera klikk­aður,” segir Halldór sem telur margt fólk vera að stíga sín fyrstu skref í þeirri teg­und úti­vistar.

Þeir Páll og Halldór eru báðir sann­færðir um að fækkun erlendra ferða­manna muni auka áhuga Íslend­inga fyrir því að heim­sækja þá ferða­manna­staði sem almennt eru vin­sæl­astir. „Vegna mik­ils fjölda ferða­manna á þekktum ferða­manna­stöðum und­an­farin ár höfum við Íslend­ingar víða hörfað af þeim svæðum og leitað annað. Nú er því kær­komið tæki­færi að heim­sækja þessa staði á ný,” segir Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár