Óvíst að efnahagsleg óvissa verði minni í haust en nú

Frumvarp fjár­mála­ráð­herra gerir ráð fyrir að end­ur­skoðuð fjár­mála­stefna og upp­færð fjár­mála­á­ætlun verði lögð fram á sama tíma og fjár­lög 1. októ­ber. Fjár­mála­ráð gerir athuga­semd við að stefnu­mörk­unin fær­ist öll á einn tíma­punkt.

Bjarni Benediktsson hefur lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um opinber fjármál.
Bjarni Bene­dikts­son hefur lagt fram frum­varp um breyt­ingu á lögum um opin­ber fjár­mál. Mynd: Bára Huld Beck

Fjár­mála­ráð telur það áhyggju­efni að ekki sé víst að hin efna­hags­lega óvissa sem nú ríkir verði minni í haust en hún er núna. Þetta kemur fram í bréfi sem fjár­mála­ráð sendi Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vegna áforma hans um frestun á fram­lagn­ingu á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2021-2025 og þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um end­ur­skoðun fjár­mála­stefnu fyrir árin 2018-2022.

„Fjár­mála­ráð hefur ítrekað kallað eftir því að óvissu verði mætt með gerð sviðs­mynda til að tryggja eftir megni festu í stefnu opin­berra fjár­mála. Nú reynir á slíkt sem aldrei fyrr,“ segir enn fremur í bréfi fjár­mála­ráðs.

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um opin­ber fjár­mál. Í grein­ar­gerð segir að frum­varpið veiti nauð­syn­legt ráð­rúm í kjöl­far heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar til þess að und­ir­búa end­ur­skoðun fjár­mála­stefnu fyrir árin 2018-2022, fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2021-2025 og fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2021. Auk þess er gert ráð fyrir að end­ur­skoðuð fjár­mála­stefna, fjár­mála­á­ætlun og fjár­laga­frum­varp verði lögð fram sam­hliða á Alþingi 1. októ­ber næst kom­andi.

Samkvæmt núgild­andi lögum ber ráð­herra að leggja fyrir Alþingi til­lögu til þings­á­lykt­unar um fjár­mála­á­ætlun til næstu fimm ára eigi síðar en 1. apríl. Jafn­framt ber ráð­herra að leggja fram, eins fljót og kostur er, end­ur­skoð­aða fjár­mála­stefnu „ef grund­vall­ar­for­sendur hennar bresta eða fyr­ir­sjá­an­legt er að þær muni bresta vegna efna­hags­á­falla, þjóð­ar­vár eða ann­arra aðstæðna sem óger­legt er að bregð­ast við með til­tækum úrræðum.“ Slík end­ur­skoðun á fjár­mála­stefnu var síð­ast lögð fram í maí 2019 í kjöl­far falls WOW air.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að nauð­syn­legar for­sendur um þróun efna­hags­mála hafi enn sem komið er ekki skýrst nægi­lega til þess að hægt sé að leggja fram end­ur­skoð­aða fjár­mála­stefnu. Í bréfi sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sendi til Alþingis í mars síð­ast­liðnum kom fram að stefnt yrði að því að leggja fjár­mála­ætlun fyrir Alþingi eftir miðjan maí sem og end­ur­skoðun á gild­andi fjár­mála­stefnu. Eins og áður segir gerir frum­varpið ráð fyrir að það frest­ist til 1. októ­ber.

Í fylgi­skjali með frum­varp­inu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og skrif­stofu opin­berra fjár­mála birt­ast sviðs­myndir um afkomu- og skulda­horfur rík­is­sjóðs og hins opin­bera. Þar segir að nið­ur­stöður grein­ingar ráðu­neyt­is­ins séu á þá leið að hag­kerfið gæti dreg­ist saman um um það bil 8,5 pró­sent í ár ef for­sendur hennar raun­ger­ast. Þar er einnig ítrekað að veru­leg óvissa ríki í efna­hags­horfum.

Þá er í fylgi­skjal­inu einnig vikið að grein­ingu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins en stofn­unin stytti spá­tíma­bil sitt fyrir grein­ingu sína sem birt var í apríl. Stofn­unin hefur gefið út að ný og svart­sýnni spá verði birt í júní næst kom­andi. Þá eru nið­ur­stöður grunn­spár Seðla­bank­ans sagðar í grunn­at­riðum keim­líkar nið­ur­stöðum sviðs­myndar ráðu­neyt­is­ins. Sviðs­myndir bank­ans sýna að hag­vöxtur geti orðið nei­kvæður um sem nemur 5,6 til 10,4 pró­sentum í ár en jákvæður á næsta ári, á bil­inu 3,7 til 5,6 pró­sent. „Hér er um gríð­ar­legan mun að ræða og lita þær efna­hags­horfur mörg ár fram í tím­ann enda er óvíst að hversu miklu leyti fram­leiðslu­getan verður fyrir var­an­legum skaða,“ segir í fylgi­skjal­inu.

Fjár­mála­ráð sér ástæðu til þess að gera athuga­semd við að lagt sé til að til­lögur um end­ur­skoð­aða fjár­mála­stefnu og upp­færð fjár­mála­á­ætlun verði lögð fram á sama tíma og fjár­lög. „Stefnu­mörk­unin fær­ist þannig öll á einn tíma­punkt. Spyrja má hvort ekki sé heppi­legra að end­ur­skoðuð fjár­mála­stefna sé lögð fram fyrr til að umfjöllun um hana verði lokið þegar fjár­mála­á­ætlun verður lögð fram,“ segir í svari fjár­mála­ráðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármálaáætlun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár