Gerir ráð fyrir dýrum aðgerðum til að ná sátt á vinnumarkaði

Rík­is­stjórnin hyggst fara í „kostn­að­ar­samar ráð­staf­anir“ til að stuðla að því að sátt náist í yfir­stand­andi kjara­deilum. Einnig býst hún við „mynd­ar­legri aukn­ingu“ í rík­is­út­gjöldum til að kom­ast til móts við kóln­andi hag­kerfi.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra

Rík­is­stjórnin hyggst leggja sitt af mörkum í yfir­stand­andi deilur á vinnu­mark­aði með kostn­að­ar­sömum aðgerðum fyrir lág­tekju­fólk og fyrstu kaup­endur á hús­næð­is­mark­aði. Auk þess býst hún við „mynd­ar­legri aukn­ingu“ í fjár­fest­ingum hins opin­bera. Þetta kemur fram í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árin 2020-2024.

Í fjár­mála­á­ætl­un­inni nefnir hún að ýmsir óvissu­þættir steðji að hag­kerf­inu eftir um þriðj­ungs­aukn­ingu lands­fram­leiðslu á síð­ustu níu árum. Hins vegar sé staða rík­is­sjóðs sterk, þar sem hann hafi verið rek­inn með afgangi und­an­farin ár, en gert er ráð fyrir áfram­hald­andi afgangi af rekstr­inum á árunum 2020-2024 sem nemi um 0,8 til 1 pró­senti af lands­fram­leiðslu á hverju ári.

Myndarleg aukning

Samhliða spáðri kólnun í efna­hags­líf­inu gerir rík­is­stjórnin ráð fyrir „mynd­ar­legri aukn­ingu“ í fjár­fest­ingum hins opin­bera, bæði í innviðum félags­lega stuðn­ings­kerfis sam­fé­lags­ins og í efn­is­legum innviðum. Þar beri helst að nefna átak í upp­bygg­ingu sam­göngu­mann­virkja, en fyr­ir­huguð raun­út­gjöld til sam­göngu­fram­kvæmda á næstu tveimur árum yrðu þau hæstu í tutt­ugu ár. Til við­bótar við sam­göngu­mál mætti einnig búast við sókn í nýsköp­unar-og þró­un­ar­verk­efnum, en fram­lög til þess mála­flokks mun hækka um ríf­lega fjórð­ung frá fyrri áætlun. Heild­stæð nýsköp­un­ar­stefna verði svo til­kynnt seinna í ár.

Rík­is­stjórnin bendir á að þrátt fyrir að útlit sé fyrir lít­inn hag­vöxt í ár geti hann tekið við sér á næsta ári. Einnig er ítrekað áætl­un­inni að aðgerðir síð­ustu ára geri það að verkum að hag­kerfið sé mun betur í stakk búið en áður til að bregð­ast við verri horfum. Skuldir rík­is­sjóðs vegna end­ur­fjár­mögn­unar fjár­mála­kerf­is­ins hafi verið greiddar af fullu og aðrar skuldir vegna halla­rekst­urs und­an­far­inna ára hafi verið lækk­aðar mikið.

Aukinn stuðningur fyrir lágtekjufólk og fyrstu kaupendur

Samkvæmt áætl­un­inni stefnir rík­is­sjóður einnig á að gerðar verði kostn­að­ar­samar ráð­staf­anir til að stuðla að því að sam­komu­lag náist um kjara­samn­inga á vinnu­mark­aði.

Þar beri helst að nefna auk­inn stuðn­ing við bygg­ingu hús­næðis fyrir lág­tekju­fólk og við fyrstu kaup­endur á hús­næð­is­mark­aði í ljósi þess að hús­næðis- og leigu­verð hefur lækkað tals­vert umfram laun síð­ast­liðin ár.

Einnig bendir rík­is­stjórnin á breyt­ingar á vaxta­bóta­kerf­inu og aukið öryggi á leigu­mark­aði með upp­bygg­ingu almennra íbúða. Í fjár­mála­á­ætl­un­inni er bent á að mark­mið stjórn­valda sé að hús­næð­is­kostn­aður leigj­enda almennra íbúða fari að jafn­aði ekki umfram fjórð­ung tekna að teknu til­liti til hús­næð­is­bóta. Rík­is­stjórnin bendir svo á að lífs­kjara­bætur felist í fyr­ir­hug­uðum hækk­unum fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslna á kjör­tíma­bil­inu, en Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra stefnir að því að lengja fæð­ing­ar­or­lofið í 12 mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármálaáætlun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár