Þörfin á aðhaldsaðgerðum minnkað um rúman helming

Fjár­mála­ráð­herra segir að gera megi ráð fyrir að þær afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir sem hið opin­bera býst við að þurfa að ráð­ast á næstu árum til að draga úr skulda­söfnun verði helm­ingi minni en áður var talið.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Þörfin á svoköll­uðum afkomu­bæt­andi aðgerðum rík­is­sjóðs á árunum 2023-2025, sem fela annað hvort í sér skatta­hækk­anir eða nið­ur­skurð, er nú talin vera helm­ingi minni en hún var áður metin á, í ljósi þess að afkomu­horfur rík­is­sjóðs hafa batnað tölu­vert. Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra í sam­tali við Kjarnann.

Bjarni kynnti frum­varp sitt til fjár­laga á blaða­manna­fundi fyrr í dag, en þar sagði hann að kröftug við­spyrna og bætt staða í hag­kerf­inu valdi því að útlit sé fyrir að tekjur rík­is­sjóðs verði 66 millj­örðum króna hærri á næsta ári en gert var ráð fyrir í fjár­mála­á­ætlun síð­ast­liðið vor. Bætta afkoman skýrist mest af auknum skatt­tekjum og þá sér í lagi auknum tekju­skatti lög­að­ila.

Íslandsbanki seldur og minni niðurgreiðslur til rafbíla

Til við­bótar við þetta kynnti Bjarni aðrar fyr­ir­hug­aðar aðgerðir til að bæta afkomu hins opin­bera í náinni fram­tíð, líkt og áfram­hald­andi sala Íslands­banka og breytt fyr­ir­komu­lag varð­andi elds­neyt­is­notkun og öku­tækja­kaup.

Kjarninn hefur fjallað um síð­ar­nefndu áformin, en þau fela í sér að dregið verði úr íviln­unum fyrir raf­bíla og tengilt­vinn­bíla. Samkvæmt Bjarna verður nauð­syn­legt að ráð­ast í slíkar aðgerðir, þar sem elds­neyt­is­gjöld, sem er mik­il­vægur tekju­stofn hins opin­bera, séu „að hverfa smám sam­an“ sam­hliða orku­skiptum. Bjarni lagði þó áherslu á að þessar aðgerðir ættu ekki að ógna orku­skipt­unum.

Búist við aðhaldsaðgerðum eftir tvö ár

Kjarninn hefur einnig fjallað um svo­kall­aðar afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir, sem hið opin­bera gerir ráð fyrir að þurfa að ráð­ast í á tíma­bil­inu 2023-2025 sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun þessa árs og næstu fjög­urra ára sem var kynnt í vor. Þar var gert ráð fyrir að þessar ráð­staf­anir, sem fela annað hvort í sér skatta­hækkun eða nið­ur­skurð í útgjöldum, muni nema 34 millj­örðum á ári, en geti numið allt að 50 millj­örðum króna á ári ef efna­hags­horfur versna.

Nýjar horfur fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins búast hins vegar við að skulda­þróun hins opin­bera verði mun hag­stæð­ari en fjár­mála­á­ætl­unin gerði ráð fyrir, til að mynda er nú talið að skuldir muni nema um 34 pró­sentum af lands­fram­leiðslu á næsta ári, í stað 42 pró­senta.

Samkvæmt Bjarna mun bætt afkoma rík­is­sjóðs, auk áætl­an­anna um að selja Íslands­banka og minnka nið­ur­greiðslur til raf­bíla­eig­endur, leiða til þess að umfang fyr­ir­hug­aðra aðhalds­að­gerða verði innan við helm­ingur af því sem fjár­mála­á­ætl­unin gerði ráð fyrir. Nýút­gefin fjár­málsa­stefna sýni ekki nákvæma sund­ur­liðun á því hvernig þessum ráð­stöf­unum yrði háttað, en fram­reikn­ingur ráðu­neyt­is­ins á afkomu hins opin­bera sýnir að mun minna lifi eftir af þörf­inni fyrir slíkum aðgerðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármálaáætlun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár